Fréttablaðið - 08.02.2020, Qupperneq 10
Það var tekið á
þessum atriðum
um leið og þau komu í ljós.
Freydís D. Sigurðardóttir,
fagstjóri hjá MAST
Aukahlutapakkinn er: Hiti í framrúðu og rúðusprautum, hiti í stýri og stýri klætt mjúku leðri,
rafdrifin upphituð leður framsæti með stillingu á 10 vegu, hiti í aftursætum, 380W Meridian
hljóðkerfi, sjálfvirk háljósaaðstoð, svartur útlitspakki, tvöfalt krómað púst, skyggðar rúður
að aftan, lykillaus opnun, rafknúinn afturhleri, hiti í aftursætum.
800.000 kr. aukahlutapakki
fylgir Jaguar E-Pace S D150
B
ún
að
ur
b
íls
á
m
yn
d
e
r
fr
áb
ru
g
ð
in
n
au
g
lý
st
u
ve
rð
i
VERÐ: 7.990.000 KR.
Jaguar E-Pace S D150, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur.E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
8
1
1
1
J
a
g
u
a
r
E
-
P
a
c
e
5
x
2
0
f
e
b
VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
JAGUAR
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
FJÓRHJÓLADRIFINN E-PACE
JAGUAR E-PACE
LANDBÚNAÐUR Skoðunarmenn
frá Eftirlitsstofnun EFTA komu til
Íslands í haust og tóku út hrein-
læti og hollustuhætti kjöt- og
mjólkurafurða. Könnuðu þeir búin
sjálf, mjólkurstöðvar og sláturhús
og hvernig eftirlitsmenn Matvæla-
stofnunar (MAST) störfuðu. Fundu
þeir margt aðfinnsluvert á öllum
stigum og skiluðu skýrslu með til-
mælum til MAST um úrbætur.
Á einu mjólkurbúi var óviðun-
andi geymsla mjólkur sem var
óvarin skordýrum og ekki nægilega
aðgreind frá því svæði sem hýsti
dýrin. Að auki voru kýrnar skítugar,
sem eykur mengunarhættu mjólkur.
Í mjólkurstöð fundu skoðunar-
menn vörur í skemmdum umbúð-
um, útrunnar vörur, ómerktar og
myglaðar. Samkvæmt starfsmanni
stöðvarinnar átti að nota þær til
framleiðslu smurosts. Þá voru ekki
allar vörur prófaðar fyrir salmon-
ellu, til dæmis mysa, eins og skylt er.
Skoðunarmennirnir gerðu einnig
margar aðfinnslur við kjötvinnslu.
Meðal annars fundur þeir að lélegri
loftræstingu, lélegu frárennsli, stífl-
uðum og yfirflæðandi handþvotta-
vaski, svuntum þvegnum í vöskum,
ósamræmi við dauðhreinsun á
hnífabúnaði og vítissódi notaður til
að þrífa lambahöfuð til manneldis.
Í nokkrum sláturhúsum sáu skoð-
unarmenn skrokka í kælum, sem var
búið að merkja hæfa til manneldis
en voru greinilega með óhreinindi,
svo sem þarmainnihald og hár. Í einu
sláturhúsi fannst mæna í nautgripa-
skrokk, eftir að hann var merktur
hæfur til manneldis, sem er alls ekki
leyfilegt, enda talið sérstakt áhættu-
efni ásamt heila og augum.
Skoðun dýra eftir slátrun var
fullnægjandi þegar kom að svínum.
En sömu sögu var ekki að segja um
sauðfé, nautgripi og hesta. Til að
mynda voru höfuð lamba ekki skoð-
uð þrátt fyrir að stærstur hluti væri
notaður til matvælaframleiðslu. Þá
voru lifur sauðfjár og nautgripa eða
gallrásir ekki skoðaðar sem skylt er.
Merkingar dýra samræmdust
ekki reglum. Í nokkrum tilvikum
voru merkingar sauðfjár fjarlægjan-
legar. Enginn gagnagrunnur er til
skráningar svína sem skylt er.
Þjálfun tímabundinna starfs-
manna MAST var ófullnægjandi
og dýralæknanemar í eftirliti. Var
þetta talið auka líkurnar á því að
matur sem ekki er hæfur til mann-
eldis komist í umferð.
Freydís D. Sigurðardóttir, fag-
sviðsstjóri eftirlits búfjárafurða hjá
MAST, segir skýrsluna ekki áfellis-
dóm yfir framleiðslunni en vissu-
lega þurfi að taka atriðin til greina.
„Það var tekið á þessum atriðum
um leið og þau komu í ljós, bæði
með heimsókn og bréfi,“ segir hún.
Aðspurð um af hverju þetta hafi
ekki verið lagað fyrr segir hún að
starfsmenn komi kannski hálfs-
mánaðarlega á staðina og nái ekki
að komast yfir öll atriði. Nú hafi öll
atriði verið skoðuð.
Freydís segir að notkun nema hafi
verið leyfileg í íslenskum lögum en
þar sem það stangist á við Evrópu-
reglur verði það ekki gert framar.
„Við þurfum að bæta þjálfun tíma-
bundinna starfsmanna. Evrópusam-
bandið gerir kröfu um tímafjölda
sem við höfðum ekki uppfyllt.“
Íslendingar hafa lengi státað af
heilnæmri matvælaframleiðslu og
Freydís tekur undir að algert traust
verði að ríkja um framleiðsluna. „Ef
við skoðum örverufræðilegu niður-
stöðurnar, þá eru þær allar í lagi.
Þetta er ekki óörugg vara en það má
samt sem áður bæta úr.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
Þarmainnihald og hár á skrokkum
Skoðunarmenn frá Eftirlitsstofnun EFTA gerðu athugasemdir við hreinlæti og hollustuhætti. NORDICPHOTOS/GETTY
Skoðunarmenn Eftir-
litsstofnunar EFTA gera
margar aðfinnslur í
skýrslu um hreinlæti og
hollustuhætti íslenskra
kjöt- og mjólkurafurða.
Fagstjóri hjá MAST
segir að tekið hafi verið
á atriðunum og þjálfun
starfsmanna verði bætt.
8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð