Fréttablaðið - 08.02.2020, Side 26

Fréttablaðið - 08.02.2020, Side 26
Eva María Þórarinsdóttir Lange og Birna Hrönn Björnsdóttir stofnuðu fyrirtækið Pink Iceland fyrir níu árum. Upp-haflega hugmyndin var hinsegin ferðaþjónusta en í dag skipuleggur fyrirtækið um 100 til 130 brúðkaup ár hvert. Um er aðallega að ræða svokölluð áfanga- staðabrúðkaup þar sem erlendir aðilar ferðast hingað til lands ásamt gestum sínum og blanda saman ferðalagi og hjónavígslu. Meirihluti viðskiptavina er samkynhneigður en sífellt færist í vöxt að gagnkyn- hneigð pör óski eftir þjónustu þeirra enda líki þeim hugmynda- fræðin sem fyrirtækið byggir á. Fullorðnaðist hratt „Við kynntumst árið 2007 í gegnum vinkonur okkar eins og týpískt er í íslensku samfélagi – ekki síst í hin- segin samfélaginu sem er pínulítið og allir þekkja alla. Ég mundi eftir Birnu, hún var alltaf að DJ-a með vini sínum Erlingi og mér fannst þau voða lítil og krúttleg, þó að það séu aðeins þrjú ár á milli okkar,“ segir Eva María og Birna skýtur inn í: „Það er ekki af því að ég var svo barnaleg heldur af því að þú varst orðin húsmóðir í Hlíðunum 12 ára,“ og skellir upp úr. Eva María hlær að þessari fullyrðingu eiginkonu sinnar: „Ég var búin að kaupa mér íbúð og farin að búa aðeins 19 ára gömul og varð fullorðin mjög hratt.“ Tónlistin leiddi þær saman Eva María segist hafa verið nýkom- in úr löngu sambandi þegar þær Birna kynntust og ætlunin hafi alls ekki verið að festa sig strax aftur. „Ég reyndi því að berjast gegn því í nokkra mánuði. Ég lét eins og þetta væri bara „f ling“ en fólk var f ljótt að sjá í gegnum það. Við segjum oft að tónlistin hafi leitt okkur saman enda vorum við báðar að DJ-a með vinum okkar á þessum tíma. Þegar svo vantaði DJ á eitt kvöld Hinsegin daga tókum við tvær það að okkur og þá varð ekki aftur snúið.“ Saman spiluðu þær í átta til níu ár undir nafninu DJ Glimmer og segja tónlist alltaf hafa verið fyrirferðarmikla í þeirra sambandi. Óttuðust að verða óþolandi „Við rákum Kaffihúsið Trúnó árið 2011 sem varð til þess að við eignuð- umst rosalega mikið af kunningjum sem flækti málið aðeins þegar kom að því að fara að bjóða í brúðkaup. Gestalistinn var mjög f ljótlega kominn upp í 400 manns. Í gegnum Pink Iceland höfum við skipulagt hátt í 600 brúðkaup hér á landi og þekkjum því innviði mjög vel. Við höfðum því áhyggjur af því að ef við héldum klassískt íslenskt brúðkaup í sal hér á landi yrðum við hreinlega óþolandi gestir. Við gætum ekki slakað á og færum að hengja okkur í smáatriðin vitandi nákvæmlega hvernig hlutirnir eiga að ganga fyrir sig á hverjum stað,“ útskýrir Eva María. „Það er svo órómantískt og praktískt,“ bætir Birna við. Þær eru sammála um að það hafi verið léttir fyrir þær að ákveða að gifta sig erlendis auk þess sem gestalistinn hafi minnkað niður í 1/10. Þegar þær ákváðu að brúð- kaupið færi fram á Ítalíu settu þær ströng skilyrði fyrir því hverjum yrði boðið og viðurkenna að þótt niðurskurðurinn hafi ekki verið sársaukalaus hafi hann verið lær- dómsríkur. Strangar gestalista-kríteríur „Við vorum með kríteríur sem við fórum í gegnum og settum upp spurningar eins og: „Myndi ég hringja í þessa manneskju ef ég væri döpur og þyrfti að fá einhvern til að hitta mig á kaffihúsi til að spjalla? Myndi mér líða vel með það eða væri það skrítið? Eða myndi ég jafn- vel aldrei gera það? Hvernig hafa samskipti okkar verið í gegnum tíð- Eitt kvöld er ekkert nóg Eva María Þórarinsdóttir Lange og Birna Hrönn Björnsdóttir vissu hvað þær vildu þegar kom að brúðkaupum þeirra sjálfra síðasta vetur, enda koma þær að skipu- lagningu um 130 brúðkaupa ár hvert. ina og langar mig að hafa viðkom- andi í lífi mínu í framtíðinni? Svona fórum við í gegnum gestahópinn.“ Niðurskurðurinn var harður og til að mynda var mökum nánustu vina þeirra ekki boðið. „Jafnvel þó að í mörgum tilfellum þekkjum við þá nánast jafn vel og vinina. Ég er til dæmis í æskuvinkvennahópi og hef þekkt maka þeirra í 20 ár eða jafn- vel lengur. Það var alveg pínu erfitt að tilkynna að aðeins konunum væri boðið,“ segir Eva María en til að vikulöng ferðin á þrjá áfangastaði gengi upp mátti hópurinn ekki vera of stór. „Vinkonur mínar eiga sem betur fer þannig maka að allir tóku vel í þetta og þeir voru eftir hér með börnin.“ Birna sem þarf að yfirgefa okkur til að fara að hitta tilvonandi brúð- hjón fyrir athöfn daginn eftir skýtur inn í: „Við erum líka búnar að fylgj- ast með því í átta ár hvernig upp- lifun það er að halda svona áfanga- staðabrúðkaup og hvað það gefur hópnum mikið. Okkur langaði því að fá að gera þetta fyrir okkar fólk. Og það rættist svo sannarlega og sinnum hundrað,“ segir hún áður en hún kveður. Alin upp á Ítalíu Ítalíuferðin var sjö daga löng og skipulögð af brúðhjónunum. „Gest- irnir vissu því ekki alveg hvað þeir voru að fara út í en við fengum góð verð miðað við hversu mikil lúxus upplifun þetta var.“ Ferðin hófst í Róm þar sem gist var í tvær nætur, þaðan lá svo leiðin til Napólí þar sem gist var aðrar tvær og síðustu dagarnir voru í strandbænum Positano skammt frá. Þar höfðu þær Eva María og Birna leigt villu undir gestina og aðalviðburðinn, brúð- kaupið sjálft. Þegar Íslendingar velja sér áfanga- stað á Ítalíu er Napólí og svæðið þar í kring kannski ekki fyrsti valkostur en Eva María og Birna höfðu sínar Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is Þær Eva María og Birna Hrönn giftu sig í smábænum Positano á Suður-Ítalíu að viðstöddum sínum nánustu en héldu svo 200 manna veislu í Gamla bíó mánuði síðar. MYND/ KRISTÍN MARÍA OKKUR LANGAÐI ÞVÍ AÐ FÁ AÐ GERA ÞETTA FYRIR OKKAR FÓLK. OG ÞAÐ RÆTTIST SVO SANNARLEGA OG SINNUM HUNDRAÐ. Birna Hrönn 8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.