Fréttablaðið - 08.02.2020, Page 28
Eva María og Birna Hrönn stofnuðu Pink Iceland fyrir níu árum og hafa skipulagt um 600 brúðkaup á þeim tíma. MYND/JULIETTE ROWLAND
ástæður fyrir valinu. „Ég er alin upp
frá 8 ára til 15 ára aldurs á þessu
svæði og hef margoft heimsótt
Positano og saman höfum við Birna
dvalið þar þrisvar. „Við höfðum allt-
af hugsað um það hversu geggjaður
staður þetta væri til að gifta sig á.“
En aftur á móti er þessi strandbær
ekki sá praktískasti fyrir stórveislu,
þorpið er byggt í miklum bratta og
því þurfti að hafa mikið fyrir því
að flytja þangað vistir og farangur.
„Við þurftum að ráða menn í að
bera allt okkar upp 250 þrep í hvert
sinn. En þó að þetta hafi ekki endi-
lega verið praktískasti staðurinn
varð upplifunin persónulegri fyrir
vikið og við fórum með fólkið okkar
á okkar uppáhaldsstaði og leyfðum
því til dæmis að smakka götumat í
Napólí. Napólí er frekar framandi
fyrir Íslendinga en ég tala ítölsku og
meira að segja mállýsku þeirra svo
það hjálpaði verulega til.“
Falleg vinatengsl mynduðust
Eva María leggur áherslu á að eftir
13 ára samband hafi þær Birnu
langað að gera eitthvað virki-
lega spennandi með fólkinu sínu.
Hópurinn sem fagnaði á Ítalíu taldi
tæplega 50 nánustu fjölskyldu-
meðlimi og vini brúðhjónanna.
Ekki þekktust allir innbyrðis fyrir
ferðina og segir Eva María það
vissulega hafa verið vissa áhættu.
„Ég vissi til dæmis ekki hvort
saumaklúbburinn minn myndi
passa við alla strákavinina okkar.
En þau urðu bara bestu vinir. Allt
sem okkur dreymdi um að myndi
gerast gerðist og þarna átti sér stað
tengslamyndun á svo fallegan og
hreinskilinn máta.
Eins og um daginn þá hitti
Jóhannes, bróðir minn, Elsu,
hjúkkuvinkonu Birnu, á förnum
vegi og þau féllust í faðma. Það
mynduðust ótrúlega skemmtileg
vinatengsl í þessari ferð.“
Þær Eva María og Birna höfðu
unnið góða undirbúningsvinnu í
alla staði og til að mynda buðu þær
öllum gestum í matarboð heim
til sín fyrir ferðina. „Það var auð-
vitað boðið upp á ítalskan mat og
við grínuðumst með að þetta væri
eins konar Úrval Útsýn undirbún-
ingsfundur. Við sögðum gestunum
okkar að þeim væri boðið þar sem
þeir væru mikilvægasta fólkið í lífi
okkar.“
200 manna dragveisla á Íslandi
Eins og fyrr segir eru þær Eva María
og Birna vinmargar auk þess sem
ekki gátu allir þeir sem þær hefðu
viljað taka með sér til Ítalíu lagt í
slíkt ferðalag. Því varð úr að halda
veislu hér á landi mánuði eftir
Ítalíu ferðina. „Þá fórum við allt aðra
leið og leigðum Gamla bíó undir 200
manna brúðkaupsveislu sem þó var
gjörólík því sem Íslendingar eiga að
venjast. Þema veislunnar var Drag –
Royal – Glimmer en allt þetta tengir
okkur á ólíkan hátt.“
Hannes Pálsson, vinur brúð-
hjónanna og meðeigandi þeirra
í Pink Iceland, gaf þær saman í
báðum athöfnum. „Hér heima
var hann í dragi sem Sigyn Fish
ásamt öðrum hvorum gesti. Sjálfar
vorum við í sömu brúðarkjólunum
en bættum einfaldlega á okkur
skrauti.“
Athöfnin fór fram á staðnum og
var með óhefðbundnu sniði, vinir
og fjölskylda héldu stuttar ræður í
athöfninni og brúðirnar fóru með
heit hvor til annarrar eins og tíðkast
í bandarískum brúðkaupum. „Þetta
voru virkilega ólíkir atburðir þó svo
að innihaldið væri að miklu leyti
það sama. Þessi veisla var meira
partí en veislan á Ítalíu, en þó svo
stútfull af ást og einlægni.“
Enduðu allir eins og jólakúlur
Eva María segir veisluna hér heima
hafa komið sér skemmtilega á óvart
þegar hún tengdi saman ólíka hópa.
„Við erum öll föst í okkar eigin
félagslegu búbblum. Það var gaman
að heyra fullorðna gagnkynhneigða
karlmenn segja frá því eftir á hversu
merkilegt þeim fannst að sjá fúl-
skeggjaða menn í dragi að vera
fabjúlöss og skemmta sér vel. Ég
held að þessir karlkyns vinir okkar
hafi ekkert endilega upplifað slíkt
áður og þeir töluðu um að þeir hefðu
aldrei upplifað sig eins frjálsa.“ Sem
dæmi um það bendir Eva María á að
gagnkynhneigðir karlkyns gestir
hafi ekki síður notast við glimmer
förðunarstöðina sem þær létu setja
upp í salnum. „Þeir enduðu allir eins
og jólakúlur,“ segir hún og hlær.
„Þetta er í takti við það sem við
sköpum hjá Pink Iceland. Við erum
alltaf að minna okkar pör á að þau
þurfi ekki að vera föst í hefðum. Við
erum mikið með Bandaríkjamenn
en þar eru afskipti fjölskyldunnar
mikil og við segjum fólki: „Gleymið
öllu sem þið hafið lært. Þetta þarf
ekki að vera eins og þið hafið séð
það.“
Hvar er brúðguminn?
Eva María hefur undanfarið verið
beðin að halda fyrirlestra um starf-
semi Pink Iceland víða um heim.
„Ég hef sagt frá hinsegin brúð-
kaupum, ævintýrabrúðkaupum
og eins f lokkast okkar þjónusta
undir umhvefisvænni brúðkaup. Á
dögunum var ég beðin að tala um
hinsegin málefni í Dúbaí en þar
þurftum við sérstaka vernd vegna
umræðuefnisins. Þó að þetta séu
hænuskref þá eru þau ánægjuleg
og í rétta átt og frábært að við séum
einhvers konar fyrirmynd í þessum
málefnum.
Þetta er í raun ástæðan fyrir því
að við stofnuðum þetta fyrirtæki
– til að búa til vettvang fyrir hin-
segin fólk þar sem það getur verið
það sjálft og liðið vel.“
Talið berst að fordómum og
viðurkennir Eva María að það hafi
verið viss áskorun að halda sam-
kynhneigt brúðkaup á Suður- Ítalíu.
„Ég heyrði fólk tala sín á milli og
spyrja spurninga eins og: „Hvar er
brúðguminn?“ Fólk áttaði sig auð-
vitað ekki á því að ég ljóshærða
talaði ítölsku og skildi allt sem það
var að segja um okkur, svo ég svar-
aði að það væri enginn brúðgumi.
Ég var ákveðin í að vera jákvæð
allan tímann en skjóta samt þegar
ég heyrði eitthvað misjafnt. Planta
litlum fræjum hér og þar.“
Íslensk brúðkaup erlendis
Pink Iceland er nú með í undirbún-
ingi nokkur brúðkaup Íslendinga
erlendis, á Spáni og í Marrakesh.
„Þar eru sömu áherslur og við erum
með, að skapa minningar með
sínum nánustu. Leggja áherslu á það
sem mestu máli skiptir. Brúðkaup
eru oft svo mikið að þjóna hefðum,
gestum og fjölskyldum. Eins og það
að verða að bjóða öllu frændfólkinu
sem er oft bara ómögulegt.
Sjálf vildi ég ekki hafa brúð-
kaupsdaginn minn þannig að ég
næði aðeins að tala við tíu prósent
gestanna minna. Þessi ferð skapaði
tíma með öllum – eitt kvöld er ekk-
ert nóg,“ segir Eva María og hlær.
„Ástin dettur ekki úr tísku og því
er þetta fínn bransi til að velja sér.“
Í dag starfa níu manns hjá Pink Ice-
land og þar af eru sex alfarið í brúð-
kaupsskipulagningu svo heyra má
að það er stór hluti rekstursins.
„Það er orðið töluvert af gagn-
kynhneigðum pörum sem leita til
okkar en þau eru að sækja í þessa
hugmyndafræði og lífsviðhorf sem
við höldum á lofti.“ Eva María hlær
að viðsnúningnum þegar gagn-
kynhneigt fólk spyr hvort það megi
versla við fyrirtækið, eitthvað sem
hinsegin fólk kannast við og hefur
upplifað.
Mikilvægasti dagur lífsins
Það er sífellt að verða vinsælla hjá
Íslendingum að gifta sig erlendis en
Eva María segir okkur svolítið sein
til enda hafi svokölluð áfangastaða-
brúðkaup verið vinsæl lengi annars
staðar. „Það er ótrúlega gefandi að
búa til einstakar upplifanir fyrir
fólk.“ Aðspurð um kostnaðarhlið-
ina segir Eva María hana auðvitað
stjórnast af áfangastað og fleiru.
„Þetta er auðvitað dýrt, kannski
sérlega fyrir Íslendinga sem virðast
alltaf þekkja einhvern sem getur
reddað einhverjum dílum hér
heima. En ef þetta er mikilvægasti
dagur lífs þíns – af hverju ekki fjár-
festa aðeins í honum?“
Eva María segir fólk sem er að
gifta sig í annað sinn sækja töluvert
í þjónustu þeirra. „Þetta er fólk sem
er kannski með slæma reynslu af
miklu stressi og að hafa ekki notið
sín. Fólk vill líka gera eitthvað allt
annað en það hefur gert áður. Ég hef
heyrt setningar á við: „Ég var ung og
vitlaus og átti að gera þetta svona.““
Eva María og Birna af þökkuðu
allar gjafir en bentu þeim sem
vildu láta eitthvað af hendi rakna á
að leggja inn á umhverfissjóð sem
þær stofnuðu. „Nú í vor ætlum við
svo að bjóða öllum gestum brúð-
kaupanna að koma með okkur og
planta trjám fyrir söfnunarfjár-
hæðina. Það verður þá eins konar
uppskeruhátíð. Það eiga þá allir sitt
tré og eftir 20 til 30 ár getum við
vonandi heimsótt heilan skóg.“
ALLT SEM OKKUR DREYMDI
UM AÐ MYNDI GERAST
GERÐIST OG ÞARNA ÁTTI
SÉR STAÐ TENGSLAMYND-
UN Á SVO FALLEGAN OG
HREINSKILINN MÁTA.
Eva María
ÉG HEYRÐI FÓLK TALA SÍN
Á MILLI OG SPYRJA SPURN-
INGA EINS OG „HVAR ER
BRÚÐGUMINN?“
Eva María
8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð