Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 34
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Við erum báðir aldir upp í Garðabæ og vinnum við tónlist, bæði spilamennsku
og kennslu. Áhuginn liggur víða en
eldamennska og matur almennt
er mikið áhugamál okkar beggja,“
svara þeir bræður þegar þeir eru
beðnir um að segja frá sér.
Athygli vekur að þeir bræður
virðast mjög samstiga í lífi og
listum en hvaðan er þessi tón-
listaráhugi sprottinn? „Gríðar-
legur tónlistaráhugi og góður
stuðningur foreldra okkar, einnig
er Ingibjörg, systir okkar, sópran-
söngkona þannig að við höfðum
frábæra fyrirmynd.“
Bræðurnir segjast mjög þakklátir
fyrir hvor annan, samstarf þeirra
sé bæði farsælt og mikil gæfa. „Það
eru forréttindi að fá að vinna með
bróður sínum og ómetanlegt. Það
hjálpar að við erum frekar ólíkir
þegar kemur að því hvernig við
nálgumst músíkina og það gefur
meiri breidd. Við vinnum mikið
saman í hinum ýmsu verkefnum,
eins og hljómsveit okkar ADHD,
sem er búin að vera á stífum tón-
leikaferðalögum síðustu átta ár.“
Ferðalög og lagræn sveifla
Þá er nóg á döfinni hjá þeim.
„Hljómsveitin ADHD fer í hljóm-
leikaferðalag í mars til Þýskalands
og Sviss. Svo eru alls konar verk-
efni sem drífa á daga okkar eins og
þessi góði BókasafnsJazz,“ segja
þeir, en bræðurnir taka um þessar
mundir þátt í viðburðinum „Jazz
í hádeginu“ undir yfirskriftinni
„Bræður velja sín uppáhalds“. Er
þetta í fyrsta skipti sem þeir taka
þátt í viðburðinum en þeir komu
fram í gær og í fyrradag og verða
síðustu tónleikarnir í þeirri röð
í hádeginu í dag, á Borgarbóka-
safninu í Spönginni.
Segir í viðburðarlýsingu að þeir
bræður muni hvor um sig velja
og flytja nokkra af sínum „uppá-
halds jazz-standördum“ svo-
kölluðum. En hvað í ósköpunum
eru djass-standardar? „Aðallega
amerísk sönglög frá þriðja, fjórða
og fimmta áratugnum sem djass-
leikarar hafa gert að sínum,“ svara
þeir. Og hverju mega gestir eiga
von á? „Lagrænni sveiflu með leik-
gleðina að leiðarljósi.“
Viðburðurinn „Jazz í hádeginu“
fer fram á Borgarbókasafninu í
Spönginni í dag, frá kl. 13.15–14.00.
Ómetanlegt og forréttindi
að vinna með bróður sínum
Bræðurnir Ómar og Óskar Guðjónssynir deila ýmsu öðru en erfðaefni en þeir eru báðir mennt-
aðir og starfa sem tónlistarmenn, eru saman í hljómsveitinni ADHD og hafa auk þess mikla
ástríðu fyrir eldamennsku. Þeir koma fram í dag á viðburðinum „Jazz í hádeginu“ í Grafarvogi.
Bræðurnir Óskar og Ómar Guðjónssynir eiga ótalmargt sameiginlegt og segja það mikla gæfu að fá að skapa og flytja tónlist við hlið hvor annars. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það hjálpar að við
erum frekar ólíkir
þegar kemur að því
hvernig við nálgumst
músíkina og það gefur
meiri breidd. Við vinnum
mikið saman, eins og í
hljómsveit okkar ADHD,
sem er búin að vera á
stífum tónleikaferða-
lögum síðustu átta ár.
FERMINGARBLAÐ
FRÉTTABLAÐSINS
Veglegt sérblað Fréttablaðsins um ferminguna
kemur út þriðjudaginn 10. mars.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Áhugasamir auglýsendur hafi samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími 550 5654
jonivar@frettabladid.is
Arnar Magnússon
Sími 550 5652
arnarm@frettabladid.is
Atli Bergmann
Sími 550 5657
atlib@frettabladid.is
Ruth Bergsdóttir
Sími 694 4103
ruth@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R