Fréttablaðið - 08.02.2020, Side 51
Búmenn hsf
Húsnæðissamvinnufélag
Lágmúla 7
108 Reykjavík
Sími 552 5644
bumenn@bumenn.is
www.bumenn.is
Fundarboð
Aukaaðalfundur Búmanna hsf. verður
haldinn á Grand Hótel við Sigtún 38 í
Reykjavík í fundarsalnum Hvammi,
þriðjudaginn 3. mars 2020
og hefst kl. 14.00
Dagskrá:
1. Kjör fundarritara og fundarstjóra.
2. Tillögur stjórnar Búmanna hsf. um breytingar á
samþykktum Búmanna hsf.
3. Önnur mál.
Tillögur að breytingum á samþykktum Búmanna hsf. hafa
verið birtar á heimasíðu Búmanna, www.bumenn.is
Einnig er hægt að nálgast tillögur að breyttum samþykktum
á skrifstofu Búmanna að Lágmúla 7, 5. hæð, Reykjavík.
Stjórn Búmanna hsf.
Byggðarannsóknastyrkir
Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum
um styrki úr Byggðarannsóknasjóði til
rannsókna á sviði byggðamála.
Í umsóknum skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing
á rannsókninni, markmiðum hennar, ávinningi, nýnæmi og
hvernig hún styður við tilgang sjóðsins.
Við mat á umsóknum er meðal annars litið til hvernig
verkefnið styður við markmið sjóðsins, vísindalegs- og
hagnýts gildis þess og hæfni umsækjenda.
Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-,
þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar.
Styrkir verða veittir til eins árs. Sjóðurinn hefur allt að 10
milljónir króna til úthlutunar. Samkvæmt reglum sjóðsins er
miðað við að styrkirnir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en
fimm í hvert sinn.
Rafrænt umsóknarform, reglur Byggðarannsóknasjóðs og
starfsreglur stjórnar sjóðsins er að finna á vef
Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgrímsdóttir.
Netfang: sigga@byggdastofnun.is. Sími 4555461 og 8697203.
Umsóknir þurfa að berast Byggðastofnun fyrir miðnætti
fimmtudaginn 12. mars 2020.
postur@byggdastofnun.is
byggdastofnun.isSími: 455 54 00 Fax: 455 54 99
Veiði í Reykjadalsá
Til sölu eru veiðileyfi í Reykjadalsá í Reykholtsdal
í Borgarfirði, sumarið 2020. Veiðitímabilið er frá
20. júní til 30. september og rennt er fyrir laxi
og urriða.
Í boði eru ýmist einn eða fleiri dagar og veitt er
á tvær stangir.
Auðvelt er að komast að ánni, ágætt veiðihús er á
staðnum og liðlega klukkutíma akstur frá höfuð-
borgarsvæðinu. Mjög góð veiði hefur verið í ánni
undanfarin ár. Verð eru frá 14.400 kr á stöng fyrir
daginn. Frekari upplýsingar um verð og lausa
daga gefur Hörður Guðmundsson í gegnum:
reykjadalsa@hotmail.com
Auglýsing – Fiskislóð 41
Faxaflóahafnir sf. auglýsa hér með lóðina Fiskislóð 41 í Reykjavík lausa til umsóknar
samkvæmt almennum skilmálum Faxaflóahafna sf. um lóðaúthlutun og lóðagjöld.
Lóðin er 5.127 m2 og hámarkshæð er allt að 14 metrar á hluta lóðarinnar. Landnotkun á
lóðinni er skilgreind sem hafsækin þjónusta, verslun, þjónusta og fínlegri atvinnustarfsemi.
Greiða skal lóðagjald fyrir lóðina miðað við nýtingarhlutfallið 0,5 eða 0,6 með millipöllum.
Deiliskipulagi lóðarinnar var nýverið breytt þannig að nú er heimilt að byggja samkvæmt
nýtingarhlutfallinu 1. Greiða þarf viðbótargatnagerðargjald, samkvæmt gjaldskrá
Reykjavíkurborgar, fyrir fermetra umfram nýtingarhlutfallið 0,5 eða 0,6 með millipöllum.
Umsóknum skal skilað til skipulagsfulltrúa
Faxaflóahafna (hildur@faxi.is) sem veitir
einnig frekari upplýsingar um lóðina.
Umsóknum skal skilað fyrir fimmtudaginn 20.
febrúar n.k. ásamt greinargóðri lýsingu á
fyrirhugaðri nýtingu lóðarinnar, fyrirhugaðar
framkvæmdir og fjármögnun. Við úthlutun
lóðarinnar verður horft til framangreindra
þátta.
Skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna sf.
Hafnarfjarðarbær auglýsir Vesturgötu 8 til
leigu og óskar eftir tilboðum. Staðsetning
fasteignar býður upp á mikla möguleika.
Áhersla er lögð á að starfsemi í húsinu falli vel
að stefnu bæjarins um að styrkja miðbæinn og
auka enn frekar aðdráttarafl hans.
Húsið verður afhent vorið 2020
Fasteignin er hæð og ris, alls 138,3 m². Húsið er
timburhús, byggt árið 1985. Tilboðsgjafi þarf að
skila ítarlegum upplýsingum og greinargerð um
ráðgerðan rekstur í húsinu. Skrifleg tilboð þurfa
að berast fyrir kl. 10 þann 20.mars 2020.
Nánar á hafnarfjordur.is
FALLEGT ATVINNUHÚSNÆÐI
Í HJARTA HAFNARFJARÐAR
hafnarfjordur.is585 5500
Skrifstofa borgarstjóra
Skrifstofa borgarstjóra
Borgarverkfræðingur
Borgarverkfræðingur
Hagdeild
Hagdeild
Dagvist barna
Dagvist barna
STYRKIR ÚR HÚSVERNDARSJÓÐI REYKJAVÍKURBORGAR
Húsverndarsjóður Reykjavíkurborgar auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af
listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.
Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn:
1. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
2. Tímaáætlun.
3. Kostnaðaráætlun.
4. Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til.
Frekari upplýsingar eru veittar í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni sem opin er á miðvikudögum frá kl. 15-17 og í síma 411 6333 á sama tíma.
Umsóknir eru eingöngu mótteknar á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna á rafrænni Reykjavík; http://rafraen.reykjavik.is.
Opnað verður fyrir aðgengi að umsóknum þann 12. febrúar 2020, kl. 13:00, og lokað verður þann 4. mars 2020, kl. 23:59.
Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað verður 2020 og verða ekki nýttir fyrir lok árs 2021 falla niður.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 17 L AU G A R DAG U R 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0