Fréttablaðið - 08.02.2020, Page 51

Fréttablaðið - 08.02.2020, Page 51
Búmenn hsf Húsnæðissamvinnufélag Lágmúla 7 108 Reykjavík Sími 552 5644 bumenn@bumenn.is www.bumenn.is Fundarboð Aukaaðalfundur Búmanna hsf. verður haldinn á Grand Hótel við Sigtún 38 í Reykjavík í fundarsalnum Hvammi, þriðjudaginn 3. mars 2020 og hefst kl. 14.00 Dagskrá: 1. Kjör fundarritara og fundarstjóra. 2. Tillögur stjórnar Búmanna hsf. um breytingar á samþykktum Búmanna hsf. 3. Önnur mál. Tillögur að breytingum á samþykktum Búmanna hsf. hafa verið birtar á heimasíðu Búmanna, www.bumenn.is Einnig er hægt að nálgast tillögur að breyttum samþykktum á skrifstofu Búmanna að Lágmúla 7, 5. hæð, Reykjavík. Stjórn Búmanna hsf. Byggðarannsóknastyrkir Byggðastofnun auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Byggðarannsóknasjóði til rannsókna á sviði byggðamála. Í umsóknum skal meðal annars koma fram greinargóð lýsing á rannsókninni, markmiðum hennar, ávinningi, nýnæmi og hvernig hún styður við tilgang sjóðsins. Við mat á umsóknum er meðal annars litið til hvernig verkefnið styður við markmið sjóðsins, vísindalegs- og hagnýts gildis þess og hæfni umsækjenda. Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna-, þróunar- og háskólastofnanir eða aðrir lögaðilar. Styrkir verða veittir til eins árs. Sjóðurinn hefur allt að 10 milljónir króna til úthlutunar. Samkvæmt reglum sjóðsins er miðað við að styrkirnir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm í hvert sinn. Rafrænt umsóknarform, reglur Byggðarannsóknasjóðs og starfsreglur stjórnar sjóðsins er að finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is. Nánari upplýsingar veitir Sigríður K. Þorgrímsdóttir. Netfang: sigga@byggdastofnun.is. Sími 4555461 og 8697203. Umsóknir þurfa að berast Byggðastofnun fyrir miðnætti fimmtudaginn 12. mars 2020. postur@byggdastofnun.is byggdastofnun.isSími: 455 54 00 Fax: 455 54 99 Veiði í Reykjadalsá Til sölu eru veiðileyfi í Reykjadalsá í Reykholtsdal í Borgarfirði, sumarið 2020. Veiðitímabilið er frá 20. júní til 30. september og rennt er fyrir laxi og urriða. Í boði eru ýmist einn eða fleiri dagar og veitt er á tvær stangir. Auðvelt er að komast að ánni, ágætt veiðihús er á staðnum og liðlega klukkutíma akstur frá höfuð- borgarsvæðinu. Mjög góð veiði hefur verið í ánni undanfarin ár. Verð eru frá 14.400 kr á stöng fyrir daginn. Frekari upplýsingar um verð og lausa daga gefur Hörður Guðmundsson í gegnum: reykjadalsa@hotmail.com Auglýsing – Fiskislóð 41 Faxaflóahafnir sf. auglýsa hér með lóðina Fiskislóð 41 í Reykjavík lausa til umsóknar samkvæmt almennum skilmálum Faxaflóahafna sf. um lóðaúthlutun og lóðagjöld. Lóðin er 5.127 m2 og hámarkshæð er allt að 14 metrar á hluta lóðarinnar. Landnotkun á lóðinni er skilgreind sem hafsækin þjónusta, verslun, þjónusta og fínlegri atvinnustarfsemi. Greiða skal lóðagjald fyrir lóðina miðað við nýtingarhlutfallið 0,5 eða 0,6 með millipöllum. Deiliskipulagi lóðarinnar var nýverið breytt þannig að nú er heimilt að byggja samkvæmt nýtingarhlutfallinu 1. Greiða þarf viðbótargatnagerðargjald, samkvæmt gjaldskrá Reykjavíkurborgar, fyrir fermetra umfram nýtingarhlutfallið 0,5 eða 0,6 með millipöllum. Umsóknum skal skilað til skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna (hildur@faxi.is) sem veitir einnig frekari upplýsingar um lóðina. Umsóknum skal skilað fyrir fimmtudaginn 20. febrúar n.k. ásamt greinargóðri lýsingu á fyrirhugaðri nýtingu lóðarinnar, fyrirhugaðar framkvæmdir og fjármögnun. Við úthlutun lóðarinnar verður horft til framangreindra þátta. Skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna sf. Hafnarfjarðarbær auglýsir Vesturgötu 8 til leigu og óskar eftir tilboðum. Staðsetning fasteignar býður upp á mikla möguleika. Áhersla er lögð á að starfsemi í húsinu falli vel að stefnu bæjarins um að styrkja miðbæinn og auka enn frekar aðdráttarafl hans. Húsið verður afhent vorið 2020 Fasteignin er hæð og ris, alls 138,3 m². Húsið er timburhús, byggt árið 1985. Tilboðsgjafi þarf að skila ítarlegum upplýsingum og greinargerð um ráðgerðan rekstur í húsinu. Skrifleg tilboð þurfa að berast fyrir kl. 10 þann 20.mars 2020. Nánar á hafnarfjordur.is FALLEGT ATVINNUHÚSNÆÐI Í HJARTA HAFNARFJARÐAR hafnarfjordur.is585 5500 Skrifstofa borgarstjóra Skrifstofa borgarstjóra Borgarverkfræðingur Borgarverkfræðingur Hagdeild Hagdeild Dagvist barna Dagvist barna STYRKIR ÚR HÚSVERNDARSJÓÐI REYKJAVÍKURBORGAR Húsverndarsjóður Reykjavíkurborgar auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum. Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn: 1. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum. 2. Tímaáætlun. 3. Kostnaðaráætlun. 4. Ljósmynd af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmynd ef hún er til. Frekari upplýsingar eru veittar í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni sem opin er á miðvikudögum frá kl. 15-17 og í síma 411 6333 á sama tíma. Umsóknir eru eingöngu mótteknar á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna á rafrænni Reykjavík; http://rafraen.reykjavik.is. Opnað verður fyrir aðgengi að umsóknum þann 12. febrúar 2020, kl. 13:00, og lokað verður þann 4. mars 2020, kl. 23:59. Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað verður 2020 og verða ekki nýttir fyrir lok árs 2021 falla niður. ATVINNUAUGLÝSINGAR 17 L AU G A R DAG U R 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.