Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 80
Elísabet Ormslev söng-kona segist aldrei hafa verið hrædd við að svara fyrir sig. „Þannig ól mamma mín mig upp,“ segir hún.
Elísabet, sem verður 27 ára
eftir viku, ólst að mestu leyti upp
í Laugardalnum þar sem hún bjó
með mömmu sinni, Helgu Möller
söngkonu, og eldri bróður. Áður en
fjölskyldan f lutti í Laugardalinn,
þegar Elísabet var átta ára, gekk hún
í Hvassaleitisskóla þar sem hún varð
fyrir miklu einelti. „Ég veit ekki einu
sinni hvernig ég á að lýsa þessu. Ég
var svo ótrúlega lítil, bara sex til átta
ára, og ég skildi ekki af hverju krakk-
arnir tóku mig fyrir,“ segir hún.
„Ég hef alltaf verið þybbin og ég
var mjög þybbinn krakki og það var
gert mikið grín að því,“ segir Elísa-
bet. „Svo er ég með exem og þegar ég
var krakki var ég alltaf með rosalega
mikið exem í andlitinu þannig að
það sást alltaf og það var sérstaklega
mikið í kringum munninn. Krakk-
arnir gerðu grín að því á hverjum
einasta degi, gengu svo langt að
kalla mig mengaða,“ segir hún.
„Ég var skilin út undan og mátti
ekki vera með í neinu. Kennar-
arnir þurftu að segja krökkunum
að leyfa mér að vera með en það er
ekkert góð tilfinning að fá að vera
með vitandi að enginn vilji hafa þig
með,“ segir Elísabet.
„Ég man sérstaklega vel eftir því
þegar ég var í fjórða bekk, ég byrjaði
að fá brjóst mjög snemma og þurfti
auðvitað að byrja að ganga í brjósta-
haldara en allar hinar stelpurnar
voru enn bara í nærbolum. Það var
gert ótrúlega mikið grín að þessu og
í þessi rúm þrjú og hálft ár sem ég
var í þessum skóla kom ég grátandi
heim úr skólanum á nánast hverjum
einasta degi,“ segir hún.
Skipti um skóla
Þegar Elísabet var átta ára skildu
foreldrar hennar, hún flutti í Laug-
ardalinn og fór í Laugarnesskóla.
„Þar gekk allt vel í upphafi og ég fór
að eignast vini. Ég eignaðist samt
ekki raunverulegar vinkonur fyrr
en ég fór í Laugarlækjarskóla,“ segir
Elísabet og bætir við að hún gleymi
aldrei kvöldinu þegar hún kynnt-
ist krökkunum sem enn eru vinir
hennar í dag.
„Það var partí í hverfinu sem átti
að byrja klukkan sex en mér var
sagt að það byrjaði klukkan átta. Ég
vissi að það hefði verið gert til þess
að ég myndi mæta of seint og varð
ótrúlega leið og hágrét,“ útskýrir
Elísabet.
„Ég ákvað samt að fara af því að
ég ætlaði ekki að missa andlitið. Ég
hringi í stelpuna sem er að halda
partíið til að fá nákvæmt heimilis-
fang og önnur stelpa svarar í sím-
ann. Hún segist bara hlaupa út og
taka á móti mér. Við höfum verið
vinkonur síðan. Þetta var í fyrsta
skipti í skóla sem ég eignaðist vin-
konu og fann að það var í alvöru,“
segir hún.
Vildi verða söngkona
Eineltið hafði margvísleg áhrif á
Elísabetu og átti hún í langan tíma
erfitt með að treysta ásetningi fólks
og þjáðist af kvíða. „Ég var alltaf
að spá í það hvað öðrum fannst
um mig. Hvort fólki fyndist ég of
feit, ljót eða í ljótum fötum. Ég rit-
Í ÞESSI RÚM ÞRJÚ OG
HÁLFT ÁR SEM ÉG VAR
Í ÞESSUM SKÓLA KOM ÉG
GRÁTANDI HEIM ÚR
SKÓLANUM Á NÁNAST Á
HVERJUM EINASTA DEGI.
Get aldrei þóknast öllum
Elísabet Ormslev flytur lagið Elta þig í Söngvakeppninni í kvöld. Hún upplifði mikið einelti í skóla en var ákveðin
í að láta ekkert stoppa sig og drauma sína. Elísabet hefur mikinn áhuga á seinni heimsstyrjöldinni og eldra fólki.
Mikið hefur verið í gangi hjá Elísabetu undanfarna mánuði en hún tekur þátt í Söngvakeppninni í kvöld. Í miðju æfingaferlinu missti hún ömmu sína skyndilega. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn@frettabladid.is
8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð