Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 98
Fyrstu fimm lögin sem þyk ja þess verð að toppa Hatara frá því í fyrra verða lögð í dóm áhorfenda á RÚV í kvöld klukkan 19.45 og Frétta
blaðið fékk fimm yfirlýsta Júró
visjónspekinga til þess að velja það
lag sem þau ýmist ætla að kjósa
eða telji að muni enda sem framlag
Íslands í Eurovision í vor.
toti@frettabladid.is
steingerdur@frettabladid.is
Sturlaður sjarmi Kid Isak
„Ég á erfitt með að gera upp á milli
þriggja í þessum riðli,“ segir sá ann
álaði Júróvisjónnörd, Jóhannes Þór
Skúlason. „Dimma togar í rokkar
ann, Brynja Mary er með mjög flott
lag, sérstaklega á ensku, en það
sem gerir gæfumuninn fyrir mig í
þessum riðli er að Kid Isak er bara
svo sturlað sjarmerandi með þetta
létta og leikandi partílag. Hann
mun skína á sviðinu.
Ég verð að játa að ef við horfum
á líklega mótherja á stóra sviðinu
í lokakeppninni þá er Ævintýri
hugsanlega ekki nægilega sterkur
frambjóðandi í hakkavélina „síma
kosning Evrópuþjóða“. Það myndi
allt velta á sviðsetningu og fram
komu hvort það færi upp úr riðlin
um. Svona „feelgood“ lög hafa ekki
endilega riðið feitustu hestunum frá
úrslitakeppninni síðustu ár.“
Fagnar endurkomu Hildar Völu
„Það er hressandi að loksins hljóm
ar megnið af lögunum ekki eins og
þau hafi verið samin sérstaklega
fyrir Eurovision árið 1993. Auð
vitað eru þau misskemmtileg en
þar ræður auðvitað aðeins smekkur
þess sem á hlýðir. Meirihlutinn gæti
þó einfaldlega verið hluti dægurtón
listar nútímans, án þess að einhvers
konar kappleikur væri í gangi,“ segir
Markús Þórhallsson, þáttastjórn
andi á Útvarpi Sögu.
„Það er líka ánægjuefni að sjá hve
margt ungt listafólk er tilbúið að
leggja lag sitt við söngvakeppnina í
bland við reynslubolta í faginu og ég
fagna því sérstaklega að sjá og heyra
í Hildi Völu aftur.
Það er samt ekki spurning að
Dimma mun fá mitt atkvæði á fyrra
undanúrslitakvöldinu, þótt þetta sé
hvorki besta lagið sem ég hef heyrt
með þeirri stórgóðu hljómsveit né
besta rokklagið sem keppt hefur um
hylli Evrópubúa.
Strákarnir hafa auðvitað gríðar
lega f lotta sviðsframkomu, munu
vekja athygli fyrir að vera töffar
arnir sem þeir eru og fyrir að syngja
á íslensku. Ég er samt hræddur um
að þeir gætu lent í vandræðum með
dómnefndir og þann hóp atkvæða
greiðenda sem fílar ekki þungarokk.
Ég efast ekki um að þeir gætu komist
upp úr riðli, án þess að vita enn alveg
hver samkeppnin er, en myndu svo
lenda um miðja lokakeppni. En ég er
hræðilegur spámaður.“
Fimm tímasprengjum
kastað fram í kvöld
Í kvöld hefst Söngvakeppnin 2020 þar sem tíu lög berjast í tveimur
þáttum um þann eftirsótta en vandmeðfarna heiður að keppa
fyrir Íslands hönd í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
Elísabet er Adele Íslands
„Besta lagið finnst mér Elta þig með
Elísabetu Ormslev. Elísabet er stór
kostlegur f lytjandi, Adele Íslands,
og lagið er dýnamískt og býður
upp á skemmtilega sviðsetningu.
Ég vona að teymið nýti sér hinn
sjónræna miðil og gefi okkur ein
hverja veislu,“ segir fjöllistakonan
og sirkusdívan Margrét Erla Maack.
„Þegar Elísabet keppti með lagið Á
ný fannst mér atriðið ekki nógu
sjónrænt ... Svo koma svo!“
Hvatningaróp Margrétar segir
í raun allt sem segja þarf. Elísabet
er hennar keppandi í kvöld. „Elísa
bet er örugg á sviði og með rosalega
rödd svo ég held að í stóru keppn
inni gangi henni afar vel. Ég er ekk
ert brjálæðislega bjartsýn á að lagið
skori hátt í stigum, en flutningurinn
og atriðið væru landinu til sóma.“
Kid Isak með poppneglu
„Ferskustu lagahöfundar landsins
eru núna mættir í Evróvisjón, og án
autotune. Með sænskan sexkant að
vopni senda þeir í keppnina litríka
poppneglu,“ segir plötusnúðurinn
og heilsunuddfræðineminn Styrmir
Örn Hansson og efast ekki um sig
urvegara kvöldsins.
„Flytjandi lagsins, Kid Isak, hefur
sykursæta ómótaða útgeislun í anda
hvítrússneskættaðanorskafiðlu
dvergsins. Lagið er aðgengilegt og
grípandi og ætti að fara áfram úr
undankeppninni og ná í topp 16. En
með popplög þá skiptir framsetning
atriðisins miklu máli, því verður
spennandi að fylgjast með í kvöld.“
Klukkan tifar best
„Það er ekkert lag í fyrri undan
keppninni sem grípur mig almenni
lega þótt þau séu nokkur ágæt,“
segir Freyja Steingrímsdóttir,
aðstoðarmaður formanns Sam
fylkingarinnar. „En af þeim lögum
sem eru að keppa um helgina er það
sennilega Klukkan tifar sem mér
finnst best. Stebbi Hilmars er auð
vitað goðsögn í íslensku tónlistar
lífi. Hann semur íslenska textann
sem er mjög 90’s sem heillar mig.
Lagið sjálft er ágætt. Ég held að það
standi og falli því með flutningnum
og stelpurnar munu þurfa að heilla
mann upp úr skónum ef það á að
eiga möguleika á að komast út.
Ef f lutningurinn er góður þá
kemst lagið mögulega upp úr und
ankeppninni í Rotterdam en ég spái
því þá að við myndum lenda neðar
lega í aðalkeppninni.“
Jóhannes Þór Skúlason,
Júróvisjónnörd
Margrét Erla Maack,
skemmtikraftur
Markús Þórhallsson,
sagnfræðingur
Styrmir Örn Hansson,
plötusnúður.
Freyja Steingrímsdóttir,
stjórnmálaráðgjafi
Atið um hvaða lag keppir fyrir Ísland í Eurovision í kjölfar Hatara hefst með látum í kvöld. FRETTABLADID/SIGTRYGGUR
8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R50 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ