Fréttablaðið - 08.02.2020, Page 100
Lífið í
vikunni
02.02.20-
08.02.20
ER EKKI TILVALIÐ AÐ
SJÁLFUR KISUKÓNG-
URINN OG ÁSTARFÍKILLINN
ELVIS SJÁI UM SVONA KVÖLD?
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@
frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@
frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
SLÓ Í GEGN Á BAFTA
Hildur Guðnadóttir
hlaut verðlaun fyrir
bestu tónlist í kvik-
mynd og þótti bera
af í klæðavali að mati
Vogue, eins virtasta
tískutímarits
heims. Góðar
líkur eru taldar
á að hún muni
hampa
Óskarsverð-
laununum
annað kvöld.
RAFTÓNLISTARVEISLA
Hollenski
plötusnúð-
urinn Up-
sammy
spilar á
Vetrar-
blóti í
Hörpu
í kvöld.
Hún hefur
áður spilað
hér á landi á lista-
hátíðinni LungA. Atli Bollason, einn
aðstandenda hátíðarinnar, segist
spenntur að upplifa alvöru klúbba-
kvöld.
LEITAÐI MÚSÍKRÓTANNA
Valgeir Guðjónsson leitaði músík-
rótanna til að „afpoppa“ sig og
uppskar þá lög sem falla vel að kór-
söng. Hann spáir ansi skrautlegum
tónleikum sem fram fara í dag í
Langholtskirkju.
NÝ SNJÓBRETTAMYND
Víðir Björnsson
og Rúnar Pétur
Hjörleifsson hafa
gefið út snjóbretta-
myndina Volcano
Lines. Í henni
fara íslensk
náttúra og
snjóbretta-
tilþrif
Rúnars
Péturs
með
aðal-
hlut-
verkið.
TILBOÐ Á OPEL ATVINNUBÍLUM FRAMLENGT TIL 29. FEBRÚAR
Frábær vinnukraftur! Birt með fyrirvara um
verð- og textabrengl.
benni.is Opel á Íslandi
Reykjavík
Krókhálsi 9
590 2000
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
Verið velkomin í reynsluakstur
2.870.000 kr.
VIVARO VAN
Listaverð 3.890.000 kr.
Tilboðsverð
án vsk. 3.742.000 kr.
VIVARO COMBI - 9 manna
Listaverð 4.990.000 kr.
Tilboðsverð
án vsk.2.145.000 kr.
COMBO CARGO
Listaverð 2.990.000 kr.
Tilboðsverð
án vsk.
Næsta föstudag er Valentínusardagur. K at t a k a f f i hú s ið stendur fyrir við-burði um kvöldið þar sem einstakl-
ingar geta mætt og farið á svokölluð
hraðstefnumót. Þá gefst þeim færi á
að kynnast öðrum einhleypum með
því að eiga stutt spjall. Það verður
svo alvöru Elvis-eftirherma sem sér
um að allt fari rétt fram og heldur
stuðinu í þátttakendum.
Ekki bara rómantík
„Okkur fannst spennandi að prófa
eitthvað nýtt, það er orðið svo
þreytt að hanga bara á Tinder og
hittast á börum. Svo erum við að
fara að vera með alls konar uppá-
komur hjá okkur, spilakvöld,
prjónakvöld og alls konar sniðugt.
Þetta er fyrsti svona viðburður-
inn hjá okkur og því langaði okkur
að gera þetta með stæl,“ segir Gígja
Sara Björnsson, annar eigenda
Kattakaffihússins.
Hraðstefnumótin ganga þann-
ig fyrir sig að hver umferð er 5–7
mínútur. Á borðunum verða svo
skemmtilegar spurningar sem
hægt er að brydda upp á ef ske
kynni að fólk yrði uppiskroppa með
umræðuefni.
„Elvis lætur svo þátttakendur vita
þegar næsta umferð hefst. Það verða
að sjálfsögðu klósett- og snarlpásur
og þá er bakkelsið okkar og drykkir
í boði. Þegar kvöldinu lýkur láta
þátttakendur okkur vita hvaða fólk
það væri til í að hitta aftur. Ef báða
aðila langar að halda kynnunum
áfram, þá látum við þá fá upplýs-
ingar um hvort annað,“ segir Gígja.
Hún segir að planið sé ekki endi-
lega bara að skapa einhverja róman-
tík.
„Þetta þarf ekkert endilega að
vera rómantísk stund, þetta getur
verið skemmtilegt og létt spjall
sem leiðir til þess að maður eignast
vin eða bara spjall við áhugaverða
manneskju.“
Kisukóngurinn Elvis
„Af því hann er rosalega skemmti-
legur og rómantískur. Okkur fannst
tilvalið að hafa eitthvað smá fyndið
í gangi. En það er skemmtileg stað-
reynd að Elvis var kallaður „The Cat
King“, eða Kisukóngurinn, í Kína. Er
ekki tilvalið að sjálfur Kisukóngur-
inn og ástarfíkillinn Elvis sjái um
svona kvöld?“ spyr Gígja, sposk í
bragði.
Gígja er handviss um að nærvera
kattanna hafi góð áhrif á stemning-
una á föstudaginn.
„Kettir eru þekktir fyrir að róa
fólk og ef þú hefur ekkert að segja þá
er tilvalið að skoða kött eða fylgjast
með kisunum. Það myndi róa mig
mikið ef ég væri með kisu í fanginu
á deiti,“ segir Gígja.
Felix og Logi
Það hafa alls fimmtíu kettir fengið
nýtt heimili fyrir tilstilli Kattakaffi-
hússins, en gestir geta ættleitt kett-
ina sem búa þar.
„Það eru rosa margar skemmti-
legar sögur en mér þykir alltaf mjög
vænt um eina. Felix og Logi eru tveir
högnar sem komu inn á Kattakaffi-
húsið á svipuðum tíma. Logi var
algjör kettlingur og kelirófa en Felix
smá fýlupúki og skrítinn. Eftir smá
tíma urðu þeir ótrúlega góðir vinir,
en það er sjaldgæft að sjá. Það voru
aðrar kisur hérna á þeim tíma en
þeir einhvern veginn urðu bara
mjög góðir vinir. Konan sem ætlaði
að taka Loga endaði á því að taka
Felix líka þar sem hún vildi ekki
slíta þá í sundur. Ég er eiginlega
viss um að Felix hefði verið lengi
að fá heimili þar sem hann var svo
mikill fýlupúki, en mér fannst svo
sætt hvað þeir urðu nánir og að hún
sýndi því skilning,“ segir Gígja.
Fjörið hefst klukkan 19.00 næsta
föstudag og hægt er að skrá sig á
kattakaffihusid.is.
steingerdur@frettabladid.is
Rómantík og Elvis á Kattakaffihúsinu
Á föstudaginn fara
fram hraðstefnumót
á Kattakaffihúsinu
við Bergstaðastræti
10a. Það er enginn
annar en sjálfur El-
vis sem stjórnar við-
burðinum. Gestum
gefst svo færi á að
leika við kettina sem
búa á Kattakaffihús-
inu að sögn Gígju,
annars eiganda
Kattakaffihússins.
Gígja Sara Björnsson og Ragnheiður Birgisdóttir stofnuðu Kattakaffihúsið árið 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
8 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð