Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.02.2020, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 26.02.2020, Qupperneq 44
ÉG VARÐ ÞVÍ AÐ BREGÐA Á ÞAÐ RÁÐ AÐ PLATA TENGILIÐINN MINN Á STAÐNUM TIL AÐ MÚTA STARFSMANNI BÚÐARINNAR TIL AÐ REDDA OKKUR. RÚV sýndi annan þátt af átta í sænsk-íslensku spennuþáttaröðinni Ísalög á sunnudags-k völd . L ei k st jór a r þáttanna eru þrír og Guðjón Jónsson eini Íslendingur- inn. Þættirnir eru að mestu teknir upp á Íslandi þótt sögunni vindi mest fram á Grænlandi en Guðjón sá alfarið um tökurnar þar. „Við erum með eitthvað um 800 brelluskot í þessu. Allt frá því að hreinsa bara leikara, sem ákveðið var að kynna síðar til sögunnar, út úr skoti og út í að skipta um SMS- skilaboð í síma eða setja inn ísjaka eða ísbirni,“ segir Guðjón sem stjórnaði tölvubrellunum að leik- stjórnarskyldum loknum. Happafleyið Lance „Við breyttum Stykkishólmi í hálf- gert kvikmyndaþorp í tvo mánuði meðan á tökum stóð. Bæjarbúar tóku okkur mjög vel og við erum þeim sérstaklega þakklát fyrir hlý- legar viðtökur en við fengum að setja upp leikmyndir um allan bæ, breyta skiltum og koma með ísbrjót frá Noregi inn í höfnina. Guðjón segir ísbrjótinn RSV Per Berger gegna mikilvægu hlutverki í þáttunum en óhætt er að segja að honum hafi verið landað í Stykkis- hólmshöfn eftir krókaleiðum. „Mörgum mánuðum fyrir tökur var ég búinn að vera að reyna að fá þetta skip, Lance, til að nota fyrir Per Berger því það passaði akkúrat við tegund skipsins í handritinu. Skipið er frá Tromsö í Noregi og kostnaðurinn við að sigla því til Íslands var of mikill en fyrir röð tilviljana gekk skipið í gegnum eigendaskipti og það vildi svo skemmtilega til að það var sent í slipp á Íslandi að ósk nýju eig- endanna þar sem þeir fengu besta dílinn í að mála það. Við fréttum af skipinu í Reykjavík, fórum í málið og fengum skipið sem ég hafði óskað mér.“ Hnattræn truflun Guðjón segir vinda yfirleitt hafa blásið með þeim þótt gróðurhúsa- áhrifin hafi sett strik í nákvæma útreikninga. „Við vorum ótrúlega heppin með veður vegna þess að það var nefnilega oft alveg snarvit- laust. Það gerði til dæmis brjálaðan storm fyrsta tökudaginn okkar á hálendinu og það var akkúrat veðrið sem okkur vantaði til að ná þeim áhrifum sem við vildum úr senunum,“ segir Guðjón sem var þó við öllu búinn. „Við vorum samt með allar öf l- ugustu vindvélarnar á landinu á svæðinu og notuðum þær stundum en ekki nærri því jafn mikið og við áttum von á. Það var samt nauð- synleg trygging að vera með allt til taks. Maður treystir ekki á veður á Íslandi.“ Tassilaq á austurströnd Græn- lands er miðpunktur atburðarásar- innar og þangað stefndi Grænlands- leiðangur Guðjóns þegar óvænt hlýnaði í kolunum, eða ísnum öllu heldur. „Við lentum í smá baráttu við hnattræna hlýnun því að við vorum á leiðinni til Tassilaq eftir að hafa ráðfært okkur við sérfræðinga og skoðað gervihnattarmyndir frá síðustu árum og vissum nákvæm- Stykkishólmur færður til Grænlands Í spennuþáttunum Ísalög eru um 800 brelluskot þannig að margt er ekki sem sýnist. Stykkishólmur verður til dæmis þorpið Ittoqqortoormiit og ísjakar og miskátir ísbirnir koma og fara allt eftir því hvernig vindar blása. Ísbrjóturinn Lance komst loksins í sitt mikilvæga hlutverk sem RSV Per Berger eftir að hafa verið siglt eftir krókaleiðum til Stykkishólmshafnar. Guðjón sótti umhverfismyndefni mikið til á austurströnd Grænlands. Leikmyndadeildin kom húsi fyrir á hárréttum stað á hálendinu í hvítu og fallegu umhverfi sem þurfti eðlilega lítið að að eiga við í eftirvinnslunni. Lena Endre og Johannes Kuhnke koma út úr þyrlu í senu sem virðist í grunninn mjög einföld en var í raun tekin á þremur mismunandi stöðum allt eftir því hvernig leikarar sneru og í hvaða átt þeir horfðu. lega á hvaða tímapunkti við ættum að vera þarna,“ segir Guðjón. „Nema hvað, að svo bara hreins- ast fjörðurinn af ís og allur snjór fer bara á einum degi svona rúmum mánuði fyrr en venjulega og það náttúrlega setur okkar plön í upp- nám þar sem þetta er nú svona vetrarsería.“ Rölt um ísbjarnaslóðir Guðjón segir að ákveðið hafi verið að bíða í tvær til þrjár vikur og sjá til hvað myndi gerast í veðurkerfunum í kring en þar sem ekkert benti til þess að ísinn myndi birtast aftur var ákveðið að klára dæmið í Scores- bysundi. „Þannig að við leigðum okkur flugvél og flugum til Scoresbysund og gerðum þetta í Ittoqqortoormiit. Það var mjög áhugavert,“ segir Guð- jón en þorpið er það afskekktasta í veröldinni. „Við lentum á Nerlerit Inaat sem er eini f lugvöllurinn í fjarðarkerf- inu í Scoresbysundi en engir vegir liggja til eða frá honum og engin önnur þjónusta er í nágrenninu. Þarna eru ísbirnir tíðir gestir svo maður þurfti að vera var um sig þegar maður rölti á milli bygginga.“ Hólmurinn í Scoresbysundi Guðjón sótti mikið umhverfis- myndefni til Ittoqqortoormiit sem var síðan notað til þess að breyta leikmyndinni á Íslandi í Grænland. „Við skeyttum grænlenska bænum saman við Stykkishólm. Það höfðu 36 ísbirnir heimsótt bæinn þennan veturinn en þeir mega bara drepa 35 á hverju ári og einn var því flæmdur burt með skothvellum á meðan við vorum á svæðinu.“ Ittoqqortoormiit er sem fyrr segir eitt afskekktasta þorp í heimi og einangraðasti staður sem Guð- jón hefur heimsótt þótt víðförull sé. „Þarna eru um 800 kílómetrar í næsta bæ á Grænlandi og ég lenti í vandræðum þegar ég kom þarna því það var enginn veitingastaður í rekstri, búið að loka matvörubúð- inni og hana átti ekki að opna aftur fyrr en eftir tvo daga. Ég varð því að bregða á það ráð að plata tengiliðinn minn á staðnum til að múta starfsmanni búðarinnar til að redda okkur. Það hafðist en við keyptum eitthvað af frosnum vistum sem komu með síðasta skipi átta mánuðum áður en þangað koma aðeins tvö skip á ári. Bæði yfir sumartímann.“ toti@frettabladid.is Ísalög Þegar Norðurskautsráðið hitt- ist á Grænlandi til að undirrita, að undirlagi sænsks ráðherra, sáttmála um að olíuborun verði bönnuð á norðurheimskauts- svæðinu er ráðist á sænskt skip í nágrenninu. Áhöfninni er rænt og árásin reynist vera fyrsti hluti vel skipulagðrar aðgerðar sem ætlað er að koma í veg fyrir undirritun sáttmálans. 2 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.