Fréttablaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 34
Lögfræðingur
Menntamálastofnun leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi
með mikla þekkingu á opinberri stjórnsýslu til að annast lögfræðistörf hjá stofnuninni.
Lögfræðingur hefur umsjón með að starfsemi stofnunarinnar sé í samræmi við lög
og reglur og vandaða stjórnsýslu. Þá er einnig gert ráð fyrir að lögfræðingur komi að
mannauðsmálum hjá stofnuninni.
Verkefni og ábyrgð:
• Veitir lögfræðilegt álit og ráðgjöf um afgreiðslu mála og einstök verkefni á grund-
velli viðeigandi laga og reglugerða.
• Veitir ráðgjöf um mannauðsmál.
• Vaktar og veitir upplýsingar um breytingar sem gerðar eru á lögum og reglum er
varða málaflokka stofnunarinnar.
• Veitir álit á og gerir tilllögur um breytingar á lögum og reglum er varða starfsemi
stofnunarinnar.
• Hefur yfirumsjón með samningum á vegum stofnunarinnar.
• Vinnur að innleiðingu gæða- og verkefnastjórnunar í samvinnu við önnur svið.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
• Mjög góð þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
• Þekking og reynsla af mannauðsmálum æskileg.
• Mjög góð hæfni í íslensku og meðferð ritaðs máls.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
• Mjög góðir samskiptahæfileikar og færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum
verkefnum.
• Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði og þjónustulund.
Um er að ræða 100% starf og laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum fjármála-
ráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil, kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið
ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um
starfið.
Umsókn sendist á skjalasafn@mms.is merkt: Lögfræðingur. Öllum umsóknum verður
svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar veitir Arnór Guðmundsson, forstjóri í síma 514-7500, netfang:
arnor.gudmundsson@mms.is.
Umsóknafrestur er til og með 14. janúar 2020.
Sviðsstjóri miðlunarsviðs
Menntamálastofnun leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi
með góða stjórnunarhæfni og mikla þekkingu og áhuga á starfsemi grunnskóla og
námsgögnum, til að leiða miðlunarsvið stofnunarinnar. Starfið heyrir beint undir for-
stjóra og sviðsstjóri situr í framkvæmdastjórn Menntamálastofnunar.
Miðlunarsvið Menntamálastofnunar annast útgáfu námsefnis fyrir grunnskóla á Ís-
landi. Sviðsstjóri stýrir starfi sviðsins og ber ábyrgð gagnvart forstjóra á starfi þess og
daglegri framkvæmd verkefna. Í því felst fagleg ábyrgð á stefnumótun innan sviðsins,
ábyrgð á verkefnum, ábyrgð á stjórnun mannauðs og ábyrgð á fjármálum sviðsins. Þá
tekur sviðsstjóri þátt í mótun og innleiðingu stefnu fyrir stofnunina og vinnur í sam-
ræmi við gildi og framtíðarsýn hennar. Hann veitir faglega forystu á starfssviði sínu
og hefur eftirlit með að verkefni uppfylli kröfur um gæði og verklag.
Verkefni og ábyrgð:
• Leiðir öflugt teymi sérfræðinga á miðlunarsviði.
• Hefur umsjón með og stýrir gerð og útgáfu námsgagna.
• Hefur umsjón með gerð útgáfuáætlana og eftirfylgni með framgangi þeirra.
• Er ábyrgur fyrir útboðum og verksamningum, innkaupum á námsefni, ritstjórn og vali
og ráðningum höfunda.
• Er ábyrgur fyrir þróun og miðlun rafræns efnis, t.d. hönnun og umsjón með fram-
leiðslu útgáfuefnis á hinum ýmsu miðlum.
• Er ábyrgur fyrir gæðamálum, þróun og nýtingu námsefnis.
• Er ábyrgur fyrir upplýsingamiðlun, ráðgjöf við stjórnvöld, kynningum og leiðbein-
ingum fyrir skóla og almenning.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði stjórnunar, uppeldis- og kennslu-
fræða eða miðlunar.
• Mjög góð þekking og reynsla af skólastarfi í grunnskóla.
• Haldbær reynsla af stjórnun skilyrði svo og auðsýndur árangur í slíku starfi.
• Þekking og reynsla af bókaútgáfu og þróun og miðlun á rafrænu efni æskileg.
• Framúrskarandi hæfni í íslensku og meðferð ritaðs máls.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Mjög góð samskiptahæfni og færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verk-
efnum.
• Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði og þjónustulund.
Um er að ræða 100% starf og laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum fjármála-
ráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil, kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið
ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um
starfið.
Umsókn sendist á skjalasafn@mms.is merkt: Sviðsstjóri miðlunarsviðs. Öllum umsókn-
um verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar veitir Arnór Guðmundsson, forstjóri í síma 514-7500, netfang:
arnor.gudmundsson@mms.is.
Umsóknafrestur er til og með 14. janúar 2020.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 4 . JA N ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R