Fréttablaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 35
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti og
póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti og tengd
mál. Hjá PFS starfa 27 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, viðskiptalegra
og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar. Sjá nánari upplýsingar á www.pfs.is
Sérfræðingur í netöryggissveit PFS (CERT-ÍS)
Póst-og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings í netöryggissveit PFS.
Netöryggissveitin hefur það hlutverk að fyrirbyggja, draga úr og bregðast við hættu vegna netárása eða hliðstæðra öryggisatvika í þeim tölvukerfum sem falla
undir starfssvið hennar. Sveitin leitast við að greina atvik af þessu tagi, takmarka útbreiðslu þeirra og tjón af þeirra völdum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Meðhöndlun öryggisatvika og greining veikleika í tölvu- og netkerfum
• Upplýsingaskipti við þjónustuhóp og aðra ytri aðila
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi um öryggi Internetsins
• Ráðgjöf og upplýsingar varðandi öryggismál á netinu
• Aðstoð við uppbyggingu þekkingar í meðhöndlun öryggisatvika hjá
innlendum netöryggishópum
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða á öðrum sviðum ef viðkomandi hefur
haldgóða reynslu á sviði netöryggis
• Sérmenntun eða starfsreynsla á sviði hugbúnaðargerðar og/eða öryggisgreininga
er æskileg
• Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa
yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi
• Gerð er krafa um mikla greiningarhæfni, öguð og skipulögð vinnubrögð
• Búa yfir skilningi á internettækni ásamt færni til að meta upplýsingar um áhættu og áhrif
• Geta til að miðla tæknilegum upplýsingum til annarra
• Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og rituð, er áskilin
• Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum
PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni.
Vilt þú móta framtíð net- og upplýsingaöryggis á Íslandi?
Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar nk.
Umsjón með starfinu hefur Þorleifur Jónasson forstöðumaður tæknideildar. Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu PFS www.pfs.is eða á Starfatorgi.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavot-
torðs. Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra.
Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
Gæðastjóri hjá framleiðslufyrirtækiFyrirtækið er rótgróið og traust framleiðslufyrirtæki .í nágrenni við höfuðborgina
Starfið felst í alhliða umsjón með gæðaeftirliti og skráningu, sannprófunum og innri úttektum á
gæðakerfi, þjálfun og skráningu starfsfólks, umsjón með dýravelferð og mánaðarlegum
sannprófunum á HACCP kerfi auk úttektar á meindýravörnum. Gæðastjóri annast jafnframt samskipti
um innkaup á rekstrarvöru m.a. fyrir rannsóknarstofu auk þess að annast samskipti við dýralækna og
móttöku í reglubundnu eftirliti auk annarra ra starfatilfallandi dagleg .
Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi háskólamenntun á sviði matvælafræði eða sambærilega
menntun og á sviði matvælavinnslu, auk þekkingar og/eða reynslu á innnra eftirlitihaldbæra þekkingu
byggðu á HACCP auk þekkingar á rannsóknarstofu og vinnslu sýna, en reynsla af verkefnastjórnun er
kostur. Áhersla er lögð á gott vald á íslensku og ensku í tali og riti, færni í alhliða tölvunotkun, fagleg
vinnubrögð, skipulagshæfni, útsjónarsemi, og metnað til árangurs í starfi. Styrkur íreglusemi
mannlegum samskiptum er nauðsynlegur. Starfið hentar umsækjendum af báðum kynjum.
Um er að ræða áhugavert atvinnutækifæri fyrir t.d. þá sem búa í Mosfellsbæ eða nágrenni.
Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar nk. Gengið verður frá ráðningu fljótlega. Vinsamlega
sendið umsóknir/starfsferilskrár til stra@stra.is. Þeir sem eiga umsóknir fyrirliggjandi hringi eða sendið
rafpóst og tilkynnið þátttöku.
Guðný Harðardóttir hjá STRÁ ehf., veitir frekari upplýsingar í síma 588 3031, en símaviðtalstími er
frá kl.13-15 alla virka daga.
Sjá nánar heimasíðu www.stra.is
Ertu að leita að sérfræðingi?
hagvangur.is