Fréttablaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 70
Dagskráin
04.01. kl. 13.00
Srdjan Teparic, prófessor frá
Tónlistarakademíunni í Bel-
grad, heldur fyrirlestur fyrir
tónlistarfólk á Íslandi, á vegum
Tónskáldafélags Íslands.
06.01. kl. 19.00
Messa með kórnum á vegum
serbnesku rétttrúnaðarkirkj-
unnar á Íslandi í Neskirkju.
07.01. kl. 8.00
Rétttrúnaðar- jólamessa með
Rétttrúnaðarkórnum og píanó-
leikur á MasterClass stigi í Nes-
kirkju.
08.01. kl. 20.00
Serbían, píanóleikari frá Belgrad,
leikur í Hannesarholti.
10.01. kl. 19.00
Tónleikar og veisla. Kór, ein-
söngvari, harmóníkuleikur.
Bistro-tónlist frá Balkanskag-
anum í Neskirkju.
FÓLK SEM ER VANT AÐ
SÝNA VILL BARA TAKA
INN ÁHRIFIN FRÁ ÍSLANDI,
SAMFÉLAGINU OG HINUM
LISTAMÖNNUNUM.
Það er stöðugt stuð í kring um mig,“ segir Mireya Samper myndlistar-kona stödd í samkomu-húsinu í Garðinum. Að vanda heldur hún utan
um listahátíðina Ferska vinda sem
haldin er þar með miklum bravúr
annað hvert ár. Fjörutíu og fjögurra
manna alþjóðlegur hópur listafólks
hefur dvalið í Garðinum síðan 14.
desember við listsköpun og er að
opna sýningu á afrakstrinum nú
um helgina.
Spurð hvort hún hafi haldið
jól, svarar Mireya: „Já, við gerðum
hátíðlegt á aðfangadagskvöld og
bjuggum til lítil íslensk jól hérna í
samkomuhúsinu. Þetta eru bestu
jólin, mikill sköpunarkraftur
ríkjandi, fólk af 18 þjóðernum
samankomið með mismunandi
skoðanir á jólunum og ólíkar hug-
myndir. Hér eru allar listgreinar
undir sama þaki, öll þjóðerni, öll
kyn – allt litrófið!“
Mireya f lytur á staðinn þær
vikur sem Ferskir vindar standa.
„Þetta er gaman og nú næ ég orðið
aðeins betur andanum en þegar
ég byrjaði! Alltaf eru fleiri og fleiri
heimamenn sem vilja leggja hönd
á plóg, það gerir þetta starf enn
skemmtilegra. Fólk er að átta sig á
því að þessi starfsemi skiptir máli
fyrir bæinn.“
Yfirleitt kemur listafólkið ekki
með efnivið í verk sín að utan, að
sögn Mireyu. „Fólk sem er vant
að sýna vill bara taka inn áhrifin
frá Íslandi, samfélaginu og hinum
listamönnunum, anda svo út og þá
verður eitthvað til. Þó það sé með
eitthvað í huga þegar það kemur þá
breytist allt svo mikið við að koma
hingað,“ lýsir hún. „Tónlistarmenn
koma samt með sín sérstöku hljóð-
færi. „Hér er til dæmis einn frá Balí
og hann kom með hljóðfæri sem
einkenna hans tónlist. Svo eigum
við gott samstarf við Tónlistarskól-
ann og heimamenn og fáum hljóð-
færi lánuð.“
Allar listgreinar, ólík þjóðerni, öll kyn – allt litrófið
Það blása jafnan ferskir vindar um myndlistarkonuna Mireyu Samper. Sérstaklega þegar hún er í Garði í
Reykjanesbæ sem listrænn stjórnandi listahátíðarinnar Ferskra vinda sem þar er haldin annað hvert ár.
Mireya segir
mikinn sköp-
unarkraft
ríkjandi þegar
44 listamenn af
18 þjóðernum
hittast til að
vinna.
Myndlistin á sinn sess á hátíðinni. MYND/DAVÍÐ ÖRN Skúlptúr úr tré að verða til úti. MYND/CHEMA CHINO.
Serbneska samfélagið hér á landi er nokkuð stórt, í því eru um 1.000 manns,“ segir Ljubica
Fjóla Zivojinovic, verkfræðingur
og söngkona. Hún hefur skipulagt
serbneska menningardagskrá sem
hefst í dag og stendur til 10. janúar.
Að hennar sögn verða dagarnir
aðallega helgaðir hefðbundinni
serbneskri tónlist. „Þetta er í fyrsta
skipti sem við höldum svona hátíð.
Mér finnst gaman að það skuli vera
hægt að bjóða upp á vandaða tón-
leikadagskrá með fagfólki frá gamla
heimalandinu.“
Ljubica Fjóla segir f immtán
atvinnutónlistarmenn komna til
landsins frá Serbíu-Belgrad, til
að taka þátt í dagskránni, bæði
söngvara og hljóðfæraleikara. „Það
er kominn kór og sumir félagarnir í
honum eru í f leiri en einu hlutverki,
ein kona er til dæmis píanisti líka og
annar kórfélagi ætlar að halda fyrir-
lestur á vegum Tónskáldafélagsins í
dag, þannig að gestirnir eru að gera
mismunandi hluti.“
Tónlistin stendur Ljubicu Fjólu
nærri því sjálf er hún söngkona og
kveðst kannski taka undir með
löndum sínum á serbnesku tón-
listardögunum. „Ég lærði söng í
Serbíu og kom fram bæði ein og með
góðum kór sem söng meðal annars í
Metrópólítanóperunni í New York.
En nú bý ég á Íslandi og vinn sem
verkfræðingur, maðurinn minn
er serbneskur líka og við eigum
fyrirtæki, ég hef ekki mikið sungið
undanfarið,“ lýsir hún.
Í serbnesku rétttrúnaðarkirkj-
unni á Íslandi eru um 360 manns, að
sögn Ljubicu Fjólu. „Við erum ekki
með hús heldur leigjum við Nes-
kirkju fyrir þrjár til fjórar messur
á ári, meðal annars í tengslum við
stórhátíðir eins og jól og páska.“
Hún segir presta hafa komið frá
Serbíu til að sjá um athafnirnar
en stundum hafi Timur Timofei
Zolotuskii, prestur rússnesku rétt-
trúnaðarkirkjunnar á Íslandi, verið
þeim innan handar.
gun@frettabladid.is
Tónlistin er í öndvegi á fyrstu serbnesku menningardögunum í Reykjavík
Ljubica Fjóla hlakkar til að hlýða á serbneska tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/DIDDI
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Listdagskrá er bæði föstudaga og
laugardaga, þessa helgi og næstu, að
sögn Mireyu. „Þó sömu skúlptúrar
séu til sýnis og sömu málverkin þá
er ekki í boði að vera með sömu
sviðslistaatriðin tvisvar, því eru
ný tónlistar-, leik- og dansatriði á
hverju kvöldi,“ segir hún. „Yfirleitt
mæta margir á opnunina en ekki
eins margir hin kvöldin. Ég hef
stundum spáð í hvort fólk átti sig
ekki á því að hér sé alltaf eitthvað
nýtt að sjá og upplifa.“
4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING