Fréttablaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 64
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Arnhildur Jónsdóttir
Kópavogsbraut 1a,
Kópavogi,
lést 26. desember sl. á líknardeildinni
í Kópavogi. Útförin fer fram frá
Kópavogskirkju föstudaginn 10. janúar kl. 15.00.
Sigurður Kjartansson
Helga Sigurðardóttir
Kjartan Örn Sigurðsson Svanborg Matthíasdóttir
Sigurborg Sigurðardóttir Sigurður Þorsteinsson
og ömmubörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Hrafnhildur Ingólfsdóttir
sjúkraliði,
lést 28. desember eftir stutt veikindi.
Útför fer fram 8. janúar kl. 13.30 frá
Akureyrarkirkju.
Hreiðar Jónsson
Ingólfur Hreiðarsson Svanborg Ísberg
Hadda Hreiðarsdóttir
Hildur Ýr, Hjörtur Jónas, Ævar Hrafn, Fanney Þorbjörg,
Hrafnhildur Magnea, Hreiðar Nói, Una Barbara,
Benjamin Mio og Benedikt Ásgeir
Ástkær sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir afi og langafi,
Ragnar Gunnlaugsson
Hátúni,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi 30. desember.
Útförin fer fram frá Glaumbæjarkirkju
10. janúar kl. 14.00.
Björg Baldursdóttir
Finna Guðrún Ragnarsdóttir Garðar Smárason
Valgarður Ingi Ragnarsson Jórunn Sigurðardóttir
Ragna María Ragnarsdóttir Guðmundur Hreinsson
afa- og langafabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Elín Jónsdóttir
kennari,
til heimilis að dvalarheimilinu
Hlíð, Akureyri,
lést annan jóladag.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
7. janúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á líknarfélög.
Aníta L. Þórarinsdóttir Jón Helgi Þórarinsson
Erna Þórarinsdóttir Ingibjörg Svafa Siglaugsdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir og amma,
Þóra Alberta
Guðmundsdóttir
kennari,
Glæsibæ 9, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut,
laugardaginn 21. desember. Útförin fer fram frá
Árbæjarkirkju, mánudaginn 6. janúar kl. 13.00.
Bjarni Sighvatsson
Kristján Guðni Bjarnason Ásdís Pétursdóttir
Ingimar Guðjón Bjarnason Sólveig Fríða Jóhannsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir,
Tómas B. Guðmundsson
Lýsubergi 13,
Þorlákshöfn,
sem andaðist laugardaginn
28. desember, verður jarðsunginn frá
Kotstrandarkirkju, Ölfusi, fimmtudaginn
9. janúar, kl. 14. Þeim sem vilja minnast hans, er bent á
líknarfélagið Alfa.
Pálína I. Tómasdóttir Sigurjón Bergsson
Sigríður Tómasdóttir Árni I. Sigvaldason
Víðir Tómasson Elísabet Guðmundsdóttir
Guðmundur Smári
Tómasson Sigríður Ósk Zoëga Sigurðardóttir
Ragnheiður Tómasdóttir Brynjólfur Magnússon
J. Brynja Tómasdóttir Helgi Helgason
og fjölskyldur.
Okkar ástkæra og yndislega móðir,
Guðrún Soffía Jónsdóttir
Grensásvegi 60,
varð bráðkvödd á jóladagskvöld.
Jarðarförin fer fram frá Guðríðarkirkju
þriðjudaginn 7. janúar, klukkan 13.00.
Arna Jóna Backman, Guðjón Broddi Backman,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Magnhildur Sigurðardóttir
frá Efsta-Dal,
lést fimmtudaginn 2. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni,
föstudaginn 10. janúar kl. 13.00.
Sigurður Sigurðsson
Jórunn Sigurðardóttir Sigurður K. Eggertsson
Sigrún Sigurðardóttir Þröstur Þorvaldsson
Jón Sigurðsson Ingibjörg Þóra Arnarsdóttir
Hilmar Steinar Sigurðsson Þórdís Sigurðardóttir
Jóhanna Ellý Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðjón Haraldsson
Bjarkargrund 42, Akranesi,
lést á Landspítalanum,
fimmtudaginn 26. desember.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
fimmtudaginn 9. janúar kl. 13.00.
Herdís Magnúsdóttir
Jón Magnús Guðjónsson
Sigríður Guðjónsdóttir Brynjólfur Sigurvinsson
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hilmar Þorkelsson
Vogatungu 75, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans á
gamlársdag, 31. desember 2019.
Útför hans fer fram frá Lindakirkju
miðvikudaginn 8. janúar kl. 13.00.
Guðlaugur Ævar Hilmarsson
Jóhannes Ævar Hilmarsson Berglind Jóhannsdóttir
Sverrir Ævar Hilmarsson Steinunn Sigríður Jakobsdóttir
Jakob Ævar Hilmarsson Kristín Þorsteinsdóttir
Hilmar Ævar Hilmarsson Anna Heiða Pálsdóttir
Kristinn Ævar Hilmarsson Suwanna Munthong
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
Vilhjálmur Húnfjörð
lést í faðmi mínum á
nýársdagsmorgun.
Elma Diego
Álf heiður Erla Sigurðar-dóttir heldur upp á sjö-tugsaf mæli sitt með óhefðbundnum hætti. Í stað þess að boða til veislu ætlar hún að setja
upp sína fyrstu listsýningu í safnaðar-
heimili Grafarvogskirkju. Listsýningin
mun aðeins vara þennan eina dag.
Í rúm þrjátíu ár hefur Álf heiður
starfað í félagsstarfi aldraðra og leið-
beint þeim með margs konar handverk.
„Ég hef kynnst yndislegu fólki í þessu
hlutastarfi mínu sem ég er þakklát
fyrir,“ segir Álfheiður. Hún hefur komið
að fjölbreyttum sýningum á handverki
eldri borgara en aldrei sett upp sýningu
á eigin verkum, þar til nú.
„Ég efast stórlega um að ég hefði látið
slag standa ef ekki væri fyrir hvatningu
og stuðning minna nánustu. Dóttir mín
starfar sem markþjálfi og hefur leynt
og ljóst verið að markþjálfa mig. Það er
kannski kveikjan að þessu,“ segir Álf-
heiður og hlær. Hún segist eiga marga
góða að en vinir og vandamenn hafa
hjálpað henni við að setja upp sýning-
una síðustu daga.
Álf heiður segist hafa haft brenn-
andi áhuga á hvers konar listsköpun frá
barnsaldri en hafi átt erfitt með að ein-
beita sér að tilteknu listformi. „Ég hefði
örugglega verið greind ofvirk og með
athyglisbrest. Ég hef áhuga á öllu og hef
alltaf haft mikla þörf til þess að stússast
í einhverju og að skapa,“ segir hún.
Afleiðingin er sú að sýningin er afar
fjölbreytt. „Ég hef ekki tölu á öllum verk-
unum en þetta er bara hluti þeirra. Ég hef
gefið mikið af verkum og selt nokkur,“
segir Álfheiður. Nánar er rætt við hand-
verkskonuna á vef Fréttablaðsins. – bþ
Skipulagði listasýningu í
stað veislu á stórafmælinu
Álfheiður Erla Sigurðardóttir fagnar sjötugsafmæli sínu í dag, laugardaginn 4. janúar.
Hún hefur leiðbeint eldri borgurum með handverk í þrjá áratugi og nýtt frítíma sinn í
margs konar listsköpun. Ástvinir hvöttu hana til að skipuleggja sína fyrstu sýningu.
Álfheiður Erla Sigurðardóttir hefur ekki tölu á þeim fjölda verka sem eftir hana
liggja. Hún hefur haft áhuga á listsköpun frá barnsaldri og alltaf verið að skapa.
4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT