Fréttablaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 12
Bandaríkjastjórn mótmælt í Íran
Bandaríkjamenn hafa tekið ábyrgð á árásinni sem varð Qasem Soleimani að bana og segja herforingjann hafa líf
mörg hundruð Bandaríkjamanna á samviskunni, dauði hans hafi bjargað fjölda mannslífa. NORDICPHOTOS/GETTY
Bandaríkjamönnum og banda
mönnum þeirra er nú mótmælt
á götum Teheran en bandarískir
miðlar segja tugi þúsunda manna
mótmæla Bandaríkjastjórn í höfuð
borg Írans.
Pentagon sem lýsti árásinni á
hendur Bandaríkjunum í fyrrinótt
hefur haldið því fram að Soleimani
hafi líf mörg hundruð bandarískra
borgara á samviskunni og utan
ríkisráðherra Bandaríkjanna, Mike
Pompeo, segir árásina á Soleimani
hafa bjargað fjölda mannslífa.
Leiðtogar ríkjanna tveggja skipt
ust á að senda yfirlýsingar í gær.
Þannig varaði Ayatollah Ali Khame
nei við hörðum viðbrögðum í yfir
lýsingu á vefsíðu sinni og Donald
Trump, forseti Bandaríkjanna, brást
við með tísti þess efnis að Íran hefði
aldrei unnið stríð en aldrei tapað í
samningaviðræðum.
Drónaárásin sem gerð var á f lug
velli í Írak hefur einnig valdið mikl
um titringi í Írak og hafa bandarísk
yfirvöld lokað sendiráði sínu þar í
landi og öllum sendiskrifstofum.
Bandarískir ríkisborgarar hafa einn
ig verið hvattir til að yfirgefa landið
en geta ekki, af fyrrgreindum ástæð
um, notið aðstoðar sendiráðsins.
Atburðirnir hafa vakið misjöfn
viðbrögð meðal þjóðarleiðtoga.
Ráðamenn víða í Evrópu hafa
varað við öllum aðgerðum sem
auka spennu á svæðinu og hafa lýst
áhyggjum af stöðunni. Evrópu
leiðtogar hafa lagt töluvert á sig
á undanförnum misserum til að
halda stöðugleika í viðkvæmum
samskiptum Vesturlanda við Íran.
Eftir að Donald Trump setti við
skiptaþvinganir á Íran í fyrra leituð
ust leiðtogar í Evrópu við að koma
ríkinu til aðstoðar í milliríkjavið
skiptum sínum.
Utanríkisráðherra Bretlands
sagði við þarlenda fjölmiðla í gær að
þótt unnt væri að viðurkenna hætt
una sem stafaði af Soleimani hefðu
Bretar enga hagsmuni af frekari
átökum á svæðinu. Utanríkisráð
herra Rússlands lýsti áhyggjum af
alvarlegum afleiðingum sem árásin
gæti haft. Hann sagði ekki hægt að
þræta fyrir hlutverk Soleimani í bar
áttunni gegn ISIS. Þetta verk Banda
ríkjamanna væri vanhugsað og ekki
til þess fallið að auka stöðugleika á
svæðinu. Aðrir leiðtogar í Evrópu
hafa tekið í svipaðan streng og varað
borgara sína í Íran við því að vera á
ferli. Benjamin Netanyahu, forsætis
ráðherra Ísraels, hrósaði Trump hins
vegar í hástert fyrir aðgerðina sem
hann kallaði sjálfsvörn.
Helsti sérfræðingur Sameinuðu
þjóðanna um aftökur án dóms
og laga lýsti því á Twitter í gær að
árásin væri að öllum líkindum
ólögleg og færi í bága við alþjóðleg
mannréttindaákvæði. „Þegar ekki
er um virkt gíslatökuástand að
ræða er notkun dróna eða annarra
tækja við skipulögð dráp nánast
aldrei lögleg,“ sagði Agnes Sal
lamard, sérstakur erindreki Sam
einuðu þjóðanna, á Twitter í gær.
adalheidura@frettabladid.is
Íranskur herforingi myrtur
Mikil ólga er fyrir botni Miðjarðarhafs eftir að íranski herforinginn, Qasem Soleimani, var felldur í
drónaárás bandaríska hersins við flugvöll í Bagdad í Írak í fyrrinótt. Íranar mótmæla Bandaríkjastjórn.
Drónaárásin sem gerð
var á flugvelli í Bagdad hefur
einnig valdið miklum
titringi í Írak og hafa Banda-
ríkjamenn lokað sendiráði
sínu þar í landi.
Hér má sjá Soleimani með hringinn
á vinstri hönd. NORDICPHOTS/GETTY
Atvikið þegar hershöfðinginn
Qasem Soleimani var myrtur í
drónaárás Bandaríkjahers við flug
völl í Írak í gær náðist á upptöku
öryggismyndavéla.
Á myndbandinu sést mikil
sprenging sem verður Soleimani og
ráðgjafa hans að bana. Samkvæmt
frétt The Daily Mail eru líkin afar
illa farin eftir sprenginguna og
var einungis hægt að bera kennsl
á Soleimani út frá hring sem hann
var vanur að bera á fingri vinstri
handar.
Hringurinn sem fannst á svæðinu
þar sem sprengjan sprakk og er tal
inn vera hringur Soleimani er stór
gullhringur með veglegum steini,
áþekkur þeim sem hann hefur sést
bera við ýmis tilefni.
Mikill f jöldi fólks safnaðist
saman þegar kista, með því sem
taldar eru jarðneskar leifar Solim
ani, var borin út úr líkhúsi í Bagdad
í gær. – bdj
Báru kennsl á
Soleimani út frá
hringnum hans
Hópur fólks kom saman í miðborg Kasmír í gær og mótmælti Bandaríkjastjórn vegna morðsins á einum valdamesta manni Írans, Qasem Soleimani
sem myrtur var í Írak aðfaranótt föstudags. Mótmælendur báru margir skilti sem á voru rituð orðin „Niður með Bandaríkin“. NORDICPHOTS/GETTY
Bæði Geor ge W. Bush og Barack
Obama, sem voru for setar á undan
Donald Trump, höfðu neitað að ráð
ast gegn íranska hers höfðingjanum
Qasem Soleimani, af ótta við að það
myndi leiða til stríðs.
Mögu legt er að á kvörðun Trumps
sé mis tök sem muni leiða til þess að
ítök Banda ríkja manna í Írak muni
minnka.
Vegna ótta fyrr verandi for
seta Banda ríkjanna við að árás á
Soleimani myndi leiða til á taka við
Íran, hafði hann þar til í morgun
farið um undir ó form legri frið
helgi. Í frétt á vef New York Times er
meðal annars sagt frá því að banda
rískum flug vélum á vegum hersins
hafi verið lagt á sömu f lug völlum
og f lug vél Suleimani. Banda rískar
og ísraelskar leyni þjónustur höfðu
hins vegar lagt mikla á herslu á að
fylgjast með ferðum íranska hers
höfðingjans og að vita hvar hann
héldi sig. – gis
Fyrri forsetar
vildu ekki vega
herforingjann
Einungis var hægt að
bera kennsl á Soleimani út
frá hring sem hann var
vanur að bera á vinstri hönd.
VÆRINGAR Í MIÐAUSTURLÖNDUM
Sprengingin sem varð við við flug-
völlinn í Bagdad var afar kraftmikil.
4 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð