Fréttablaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 33
Byggjum saman nýjan Landspítala
Nú eflum við liðsheild Hringbrautarverkefnisins
Nýr Landspítali ohf. eflir verkefnastjórn Hringbrautarverkefnisins og leitar að
öflugum fagmenntuðum starfsmönnum á ýmsum sviðum.
Leitað er að starfsmönnum sem eru menntaðir í verk- eða tæknifræði, arkitektúr, viðskiptafræði,
verkefnastjórn eða hafa aðra sambærilega menntun. Krafist er minnst fimm ára reynslu á sviði
verkefnastjórnunar verklegra framkvæmda, eftirlits-, hönnunar- eða fjármála eða sambærilegra
verkefna sem NLSH vinnur að.
Allar umsóknir eru trúnaðarmál og verða nöfn umsækjenda ekki birt opinberlega.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf og annað sem umsækjandi telur
skipta máli. Ítrekað er að farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál, í
samræmi við persónuverndarstefnu NLSH, og þeim svarað formlega.
Nýr Landspítali ohf. (NLSH)
hefur með höndum stjórnun á
Hringbrautarverkefninu sem
m.a. felur í sér uppbyggingu
gatnagerðar og bygginga-
framkvæmda á nýjum
Landspítala við Hringbraut.
Félagið, sem er að fullu í eigu
ríkisins, er í samstarfi við
fjölmarga hagsmunaaðila m.a.
stjórnvöld, Landspítalann,
Framkvæmdasýslu ríkisins,
Háskóla Íslands, sjúklinga-
samtök, Reykjavíkurborg og
Ríkiskaup. Fjöldi ráðgjafa
starfar fyrir og með NLSH. Nú
starfa tíu starfsmenn hjá NLSH.
Nánari upplýsingar um NLSH
má finna á www.nlsh.is
Nánari upplýsingar:
Ari Eyberg (ari@intellecta.is)
Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is)
Umsóknarfrestur: 10. janúar 2020.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is.
Við leitum að starfsmönnum til að annast m.a.:
• Aðalverkefnastjórn
• Áætlunar- og kostnaðareftirlit
• Stjórnunarverkfræði á verkstað
• Fjármálagreiningar
• Samræmingarstjórnun
• Tæknivinnslu á sviði Procore
• Sérfræðiþjónustu í WBS
• Öryggis- og umhverfisstjórnun
• BIM sérfræðivinnslu
• Verkefni vegna Breeam
• Fag- og verkeftirlit
• Verkefnastjórn hönnunarstarfa
• Hönnunareftirlit og hönnunarrýni