Fréttablaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 104
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Njóttu
Ekki geta Danir legið óbættir hjá garði eftir skarpa greiningu á Norðmönnum í
Bakþönkum dagsins í gær.
Við erum alltaf að hefna harma
gegn Dönum. Nú snerist það um
Guðmund Guðmundsson, sem
gerði Dani að Ólympíumeist-
urum, en naut aldrei sannmælis.
Það gerði sigurinn sætari.
Undir kraumar rígur milli
tveggja þjóða sem deildu sömu
krúnu öldum saman. Aldrei var
skýrt hvort Ísland var hluti af
danska ríkinu eða nýlenda. Enda
gekk Ísland inn í norska ríkið sem
frjálst sambandsland með Gamla
sáttmála. Þó að danska og norska
krúnan sameinuðust, þá gáfum
við okkur aldrei á vald Dönum.
Enn er sambandið óskýrt. Eftir
tapið gegn Íslandi sagði Politiken
að nú þyrfti Ísland að koma „stóra
bróður til aðstoðar“. Hvort lýsti
það yfirlæti eða væntumþykju?
Guðjón Valur lét Dani heyra
það: „Þið látið eins og þetta snúist
allt um ykkur … Við erum að fara
að berjast við Ungverja og sá
leikur snýst ekki um Danmörku.“
Hann talaði þó vel um Dani og
víst má þakka þeim ýmislegt, svo
sem vistina á Gamla garði og skil
á handritum. Leitun er að þjóðum
sem skila menningarverðmætum
aftur til nýlendna. Eins og að
skoða ránsfeng að koma í söfn
gamalla heimsvelda.
Tilfinningarnar eru f lóknar,
kannski eins og á milli systkina.
Einokunarverslunin og myglaða
mjölið situr í Íslendingum. En
okkur þykir vænt um Margréti
Danadrottningu. Danskan getur
verið torf en nokkrir af mínum
allra bestu kennurum voru
dönskukennarar – augu þeirra
ljómuðu þegar orðið „dejligt“ bar
á góma.
Eitt er víst – það er sætt að sigra
Dani. Svo eigum við aftur landslið
á heimsmælikvarða. „Dejligt“.
Danarígurinn
Péturs
Blöndal
BAKÞANKAR
©
Inter IKEA System
s B.V. 2020
Verslun opin 11-21 alla daga - Veitingasvið opið 9:00-20:30 - IKEA.is
Tilboðið inniheldur
tvö pizzadeig, pizzasósu,
ost, pepperoni, skinku
og grænmetisbakka.
Gildir út morgundaginn.