Fréttablaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 72
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Jean Paul Gaultier tilkynnti fyrir nokkrum dögum að sýningin sem hann hélt á
miðvikudag yrði hans síðasta.
Hönnuðurinn er orðinn 67 ára og
á um hálfrar aldar feril að baki í
tískuheiminum, þar sem hann
hefur verið mikill brautryðjandi
og oft farið óhefðbundnar leiðir.
Sýningin fór fram í hinu fræga
Théâtre du Châtelet í París og þar
mátti sjá meira en 200 útlit sem
voru nokkurs konar samansafn af
helstu smellum Gaultier í gegnum
tíðina. Í mörgum tilvikum notaði
Gaultier gamalt útlit og flikkaði
upp á það, en í bréfi sem hann
sendi til allra áhorfenda lagði hann
áherslu á mikilvægi þess að endur-
vinna föt.
Sýningin var stórglæsileg í alla
staði og margir af fremstu hönn-
uðum og fyrirsætum heims voru á
staðnum eða tóku þátt. Hönnuðir
eins og Christian Louboutin, Isabel
Marant, Dries van Noten, Nicolas
Ghesquiere, Mary Katrantzou
og Christian Lacroix voru meðal
gesta, en mörg þeirra hafa unnið
með Gaultier á einhverjum tíma-
punkti.
Margar af frægustu fyrirsætum
heims, sem og gamlir samstarfs-
félagar Gaultier, sýndu fötin. Á
sviðinu mátti meðal annars sjá
báðar Hadid-systurnar, Winnie
Harlow, Coco Rocha, Dita Von
Teese og Paris Jackson. Boy George
kom líka fram og flutti lag Amy
Winehouse, Back to Black, en á
sýningunni var dans og tónlist
listilega blandað við tískuna.
Áhorfendur sýndu ánægju sína
af ákafa og þetta var greinilega
tilfinningaþrungin stund fyrir
marga, enda endalokin á löngu
og merku tímabili í tískusögunni.
En Gaultier getur allavega verið
ánægður með að hafa kvatt með
glæsibrag. Fólk stóð upp eftir sýn-
inguna til að klappa og fagnaðar-
lætin virtust aldrei ætla að enda.
Glæsileg
lokasýning
Gaultier
Tískuveisla ársins gæti þegar verið að
baki, þótt árið sé nýhafið. Hinn goð-
sagnakenndi hönnuður Jean Paul
Gaultier hélt sína síðustu sýningu og
hún var sérlega fjölbreytt og glæsileg.
Franski tískhönnuðurinn Jean Paul Gaultier hélt magnaða
lokasýningu á miðvikudag og virðist hafa skemmt sér
gríðarlega vel, rétt eins og áhorfendur. MYNDIR/GETTY
Boy George kom fram og flutti lag Amy Winehouse, Back to Black.
Winnie Harlow var ein af frægu fyrirsætunum sem
komu fram á sýningunni.
Dita Von Teese
vakti athygli í
þessum kjól,
sem minnti
suma á kjólinn
sem Gaul-
tier hannaði
fyrir Blonde
Ambition tón-
leikaferðalag
Madonnu árið
1990.
Systurnar Gigi og Bella Hadid tóku þátt og sýndu báðar fleiri en eitt útlit.
BYGGINGARIÐNAÐURINN
Nánari upplýsingar veitir:
Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is • Sími 694 4103
Mánudaginn 10. febrúar gefur Fréttablaðið út sérblað um allt sem
viðkemur byggingariðnaðinum á Íslandi, hvort sem það eru bæjarfélög,
verktakafyrirtæki, trésmiðjur eða söluaðilar byggingarvöru.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér got glýsingaplá s
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . JA N ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R