Fréttablaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 57
Norðurþing og Tjörneshreppur
- útboð
Norðurþing og Tjörneshreppur óska eftir tilboðum
í verkið
Söfnun, flutningur, afsetning og endurvinnsla
úrgangs ásamt rekstri móttökustöðvar á Húsavík
fyrir sveitarfélögin Norðurþing og Tjörneshrepp
2020-2025.
Verkið felst í tæmingu á sorp- og endurvinnslu-
ílátum við íbúðarhúsnæði í þétt- og dreifbýli,
stofnunum, leigu á ílátum, flutningi úrgangs til
afsetningar og rekstri móttökustöðvar.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Útboðsgögn fást send frá og með mánudeginum
27. janúar 2020. Sendið beiðni á utbod@efla.is og
gefið upp nafn samskiptaaðila í útboði, símanúmer
og netfang.
Tilboðum skal skilað í Stjórnsýsluhús Norður-
þings, Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík fyrir kl 11.00
föstudaginn 28. febrúar 2020 og verða þau opnuð
þar.
Styrkir úr Endurmenntunar
sjóði grunnskóla 2020
Stjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum í Endur
menntunarsjóð grunnskóla vegna endurmenntunarverk
efna skólaárið 20202021.
Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir félags
menn í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi
Íslands (SÍ) geta sótt um framlög úr sjóðnum, þar á meðal
grunnskólar, skólaskrifstofur, sveitarfélög, háskólar, sí
menntunarstofnanir, félög, fyrirtæki og aðrir. Gert er ráð
fyrir að endurmenntunarverkefnum verði að fullu lokið eigi
síðar en við lok skólaársins 20202021. Verði ekki unnt að
ljúka námskeiðum innan þeirra tímamarka fellur styrk
veiting niður.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á
heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga,
www.samband.is. Umsóknir á öðru formi verða ekki
teknar gildar. Ekki er tekið á móti viðbótargögnum og því
verða allar upplýsingar að koma fram í umsókninni.
Í umsóknum skal gefa ítarlegar upplýsingar um hvers
konar endurmenntun umsækjandi hyggst bjóða, m.a. inni
hald, skipulag og markmið verkefnis/námskeiðs, stað og
tíma, áætlaðan fjölda þátttakenda, fyrirlesara, ábyrgðar
mann og annað það sem máli kann að skipta við mat á
umsóknum. Einnig skal tilgreina áætlaðan kostnað.
Þær umsóknir einar koma til álita sem sýna fram á að
endurmenntunarverkefnin mæti þörfum grunnskólans,
séu byggð á skólastefnu, aðalnámskrá, fagmennsku og
gæðum. Styrkir eru eingöngu greiddir vegna launakostn
aðar fyrirlesara. Annar kostnaður er ekki greiddur.
Þegar fyrir liggur ákvörðun um hverjir fá styrk verður
gerður sérstakur samningur um hvert endurmenntunar
verkefni.
Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2020.
Stefnt er að því að svarbréf berist umsækjendum í lok apríl
2020.
Reglur um Endurmenntunarsjóð grunnskóla er að finna á
heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga,
www.samband.is og eru umsækjendur hvattir til að kynna
sér þær.
Nánari upplýsingar um Endurmenntunarsjóð grunnskóla
veitir Klara E. Finnbogadóttir í síma 515 4900 eða í tölvu
pósti á klara.e.finnbogadottir@samband.is.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið:
Íþróttamiðstöðin að Varmá
- Endurbætur á þaki yfir sal 1-2
Mosfellsbær er að endurbæta þak á Íþróttamiðstöðinni
að Varmá. Hluti af þakinu hefur verið endurbættur en fyrir
liggur að framkvæma endurbætur á þeim hluta sem er óvið-
gerður. Sá hluti sem þegar er viðgerður er einungis lítill hluti
af þakfletinum.
Verkefni þetta felur í sér útvegun og smíði á þeim hluta
burðarvirkisins sem þarf að endurnýja, þ.e. einingum sem
eru á milli burðarsperra í húsinu. Þeim verði skilað og komið
fyrir eins og þær einingar sem fyrir eru.
Þær eru einangraðar og fullfrágengnar að neðan. Verktaki
skal setja nýjan þakdúk samavarandi þeim sem fyrir er,
ásamt því að endurnýja og tengja rafdrifnar reyklosunar-
lúgur. Öll útvegun efnis og allur frágangur fylgi verklýsingum
og verði unnin í samráði við verkkaupa og verkeftirlit.
Helstu verkþættir í verki, sem þetta útboð nær til, eru eftir-
farandi:
Fjarlæging og förgun þakdúks og burðarplatna.
Viðgerðir á þaksperrum ( Gitter sperrur ).
Smíði á burðarplötum og frágangur ofan á sperrur.
Ásetning á nýjum þakdúki ásamt frágangi við þakbrúnir.
Endurnýjun reyklosunarlúga og tengingar
Efnisútvegun.
Varnir innanhúss vegna framkvæmda.
Helstu magntölur eru: Magn Eining
Endurbætur á þaki 2.400 m2
Fjöldi burðarplatna (áætlað) 20 stk
Verkinu skal að fullu lokið 12. ágúst 2020
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu
Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan 10:00
á þriðjudeginum 28.janúar 2020.
Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfells-
bæjar, eigi síðar en föstudaginn 14. febrúar 2020 kl.13:00 og
þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Kynning á lýsingu
Breytingar á aðal- og deiliskipulagi vegna
búsetukjarna fyrir fatlaða við Kirkjubraut
Bæjarstjórn stefnir að því að reistur verði búsetukjarni
fyrir fatlað fólk á nýrri lóð sem staðsett verður við Kirkju
braut 16 og 18 og á móti Kirkjubraut 19 og 21.
Vegna þessa þarf að breyta bæði aðalskipulagi og
deiliskipulagi Valhúsahæðar. Gerð hefur verið lýsing, þar
sem fyrirætlunum og staðháttum er lýst.
Lýsingin er fyrsta skrefið í framangreindum skipulags
breytingum og er hún sett fram og kynnt í samræmi við
30. gr. og 40. gr. skipulagslaga, nr. 123/2010 og skipulags
reglugerð nr. 90/2013.
Bæjarstjórn samþykkti þann 20. desember sl. að kynna
lýsingu á breytingu á aðal og deiliskipulagi vegna
búsetukjarna fyrir fatlaða við Kirkjubraut. Hliðstæð
lýsing var kynnt í febrúar 2018 og þá haldinn íbúafundur
þar sem ýmsar gagnlegar ábendingar komu fram og
hafðar hafa verið til hliðsjónar við frekari mótun lýsingar
innar. Staðsetning búsetukjarnans hefur breyst frá fyrri
kynningu.
Tillagan liggur frammi á 1. hæð skrifstofu Seltjarnarnes
bæjar að Austurströnd 2, virka daga frá kl. 8:00 til 14:00,
frá 24. janúar 2020 til og með 21. febrúar 2020. Einnig má
sjá tillöguna á heimasíðu bæjarins www.seltjarnarnes.is
undir liðnum skipulagsmál. Mikilvægt er að íbúar kynni
sér efni hennar vel og skili inn ábendingum ef þeir telja
að eitthvað megi betur fara.
Öllum þeim sem vilja koma ábendingum á framfæri
er boðið að senda þær skriflega til bæjarskrifstofu
Seltjarnar nesbæjar, eða í tölvupósti til
postur@seltjarnarnes.is, í síðasta lagi 21. febrúar 2020
en tillagan verður til sýnis með fyrrgreindum hætti fram
á þann dag.
FISKRÆKTARSJÓÐUR
Salmonid Enhancement Fund
Styrkir 2020
Fiskræktarsjóður starfar á grundvelli laga nr. 72/2008, með
síðari breytingum. Meginhlutverk sjóðsins er að veita lán
eða styrki til verkefna sem þjóna þeim markmiðum að efla
fiskrækt, bæta veiðiaðstöðu, styðja við rannsóknir í ám og
vötnum og auka verðmæti veiði úr þeim. Umsóknarfrestur
um lán og styrki úr Fiskræktarsjóði, sem koma til greiðslu
árið 2020, er til og með 1. mars 2020.
Þeir sem fengið hafa styrk úr sjóðnum og sækja aftur um
vegna sama verkefnis, skulu skila inn framvinduskýrslu með
nýrri umsókn.
Umsóknareyðublöð vegna styrkveitinga úr Fiskræktarsjóði
má nálgast á http://www.fiskistofa.is undir lax- og silungs-
veiði, skila skal umsókn í fimmriti. Þar má einnig nálgast
verklagsreglur sjóðsins. Einnig er hægt að hafa samband
við Höllu Björk Garðarsdóttur, starfsmann Fiskistofu, í síma
569 7900. Umsóknum um styrki eða lán úr sjóðnum skal
skila til formanns Fiskræktarsjóðs á eftirfarandi heimilis-
fang:
Fiskistofa
v/Fiskræktarsjóðs
Borgum v/Norðurslóð
600 Akureyri
kopavogur.is
kopavogur.is
kopavogur.is
ÚTBOÐ
Raforkukaup fyrir
Kópavogsbæ
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í raforku
fyrir bæjarfélagið 2020 til 2023. Um er að
ræða alla raforku fyrir sveitarfélagið, stofnanir
þess og veitur. Götulýsing er ekki hluti af út
boði þessu.
Útboð þetta er auglýst á Evrópska efnahags
svæðinu (EES)
Ársnotkun Kópavogsbæjar á raforku er um
það bil 12,7 GWst. sem skiptist á milli 127
orkumæla með um það bil 5,7 GWst. árs
notkun og 10 fjarmældar veitur með um það
bil 7 GWst. ársnotkun.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt og skulu
þeir sem óska eftir útboðsgögnum fyrir inn
kaupin, senda tölvupóst á netfangið
utbod@kopavogur.is frá og með mánudegin
um 27. janúar nk. Í tölvupósti skal koma fram
nafn tengiliðs vegna tilboðsins, nafn raforku
seljanda, símanúmer og tölvupóstfang.
Tilboð skulu hafa borist í Þjónustuver Kópa
vogsbæjar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogur
fyrir kl. 13:00 miðvikudaginn 4. mars nk. og
verða þá opnuð í viðurvist þeirra sem þar
mæta.
Útboðið er einnig auglýst á
www.utbodsvefur.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR 21 L AU G A R DAG U R 2 5 . JA N ÚA R 2 0 2 0