Fréttablaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 34
Þrátt fyrir að hátt í
20 ár séu liðin frá
frumsýningu myndar-
innar er hún enn ein
tekjuhæsta franska
kvikmyndin á alþjóð-
legum markaði.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Kvikmyndin Amélie er fyrir löngu orðin klassísk en hún var frumsýnd árið 2001
og er því á svipuðum aldri og
Franska kvikmyndahátíðin. Kvik-
myndin fór sigurför um heiminn
og vann til fjölda verðlauna. Hún
hlaut meðal annars Bafta verð-
laun fyrir besta handritið auk
þess sem hún var tilnefnd til bæði
Golden Globe og Óskarsverðlauna
sem besta erlenda kvikmyndin.
Farsælasta franska kvikmyndin
Leikstjóri myndarinnar, Jean Pierre Jeunet, stillir sér upp við veggspjald af
myndinni á Óskarsverðalaunahátíðinni árið 2002. MYNDIR/GETTYIMAGES
Aðalleikkona myndarinnar Audrey Tautou hefur sagt að henni hafi fundist
frægðin sem fylgdi í kjölfarið óþægileg. Myndin vakti mikla athygli.
Í tilefni af því
að Frönsk kvik-
myndahátið er
haldin hér á landi
í tuttugasta sinn
verður sérstök
afmælissýning
á kvikmyndinni
Amélie í Bíói
Paradís í kvöld.
Amélie var fjórða kvikmynd leik-
stjórans Jean Pierre Jeunet í fullri
lengd en hann hafði áður leikstýrt
frönsku myndunum Delicatessen
og The City of the Lost Children
og Alien Resurrection sem er enn
sem komið er eina bandaríska
myndin sem hann hefur leikstýrt.
Aðalleikkona myndarinnar,
Audrey Tautou, var tiltölulega
óþekkt þegar hún lék í Amélie.
Hún varð þekkt á augabragði og
tilboðum frá Hollywood rigndi
inn. Þrátt fyrir það hefur hún ekki
leikið í nema tveimur kvikmynd-
um á ensku, Dirty Pretty Things
og The Da Vinci Code þar sem hún
lék á móti Tom Hanks.
Audrey hefur einbeitt sér að
kvikmyndaleik í heimalandinu
Frakklandi og á þar farsælan feril
að baki. Hún hefur sagt frá því
í viðtölum að hún eigi sér enga
Hollywood-drauma og hafi ekki
áhuga á að búa í Los Angeles. Auk
þess sem henni finnst hún ekki
hafa fengið nógu áhugaverð tilboð
frá Bandaríkjunum.
Eftir að hún lék í Amélie og
varð skyndilega þekkt á götum
úti áttaði hún sig á því að frægðin
sem fylgir því að vera fræg leik-
kona átti ekki við hana. Þrátt
fyrir að henni líki vel starfið segir
hún að sér finnist óþægilegt að
geta ekki lengur farið í til dæmis
neðanjarðarlestina eða gert aðra
hversdagslega hluti án þess að
vekja athygli.
Þrátt fyrir að hátt í 20 ár séu
liðin frá frumsýningu myndar-
innar er hún enn ein tekjuhæsta
franska kvikmyndin á alþjóð-
legum markaði. Kvikmyndina
fjallar um ungu konuna Amélie
Poulain sem hlaut nokkuð
óvenjulegt uppeldi. Hún er mikill
einfari og vinnur sem gengilbeina
á kaffihúsi í Montmartre-hverfinu
í París. Helstu samskipti hennar
við annað fólk eru við mjög sér-
staka nágranna og viðskiptavini
sem hún einsetur sér að hjálpa á
nokkuð frumlegan hátt. En um
leið áttar hún sig á að hún þarf að
leita að hamingjunni fyrir sjálfa
sig líka. Myndin verður sýnd í Bíói
Paradís í kvöld klukkan 20.00 og
allir sem ekki hafa séð myndina
ættu að nýta tækifærið og skella
sér á þessa fallegu mynd. Líka þeir
sem hafa séð hana áður því það
er aldrei hægt að horfa á Amélie
of oft.
Franska kvikmyndahátíðin
hófst í gær og stendur yfir til 2.
febrúar. Hún er haldin af Alliance
Française í Reykjavík, franska
sendiráðinu á Íslandi og Bíói
Paradís, í samstarfi við Institut
français. Kvikmyndahátíðin fer
að mestu fram í Bíói Paradís en
verður líka í boði á Akureyri, á
Ísafirði og á Egilsstöðum. Dagskrá
hátíðarinnar má finna á bio-
paradis.is.
Opið alla daga
vikunnar frá
kl. 11:00 - 22:00
Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi
www.kinahofid.is l Sími 554 5022
TILBOÐ
SÚPA OG FJÓRIR RÉTTIR
Kjúklingur í karrýsósu
Núðlur með grænmeti
Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu
Lambakjöt í piparsósu
Tekið með heim
1.890 kr. (á mann)
Borðað á staðnum
2.200 kr. (á mann)
Frábær hóptilboð
Sjáðu öll tilboðin okkar á
www.kinahofid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . JA N ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R