Fréttablaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 92
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Laugardagur
hvar@frettabladid.is
25. JANÚAR 2020
Ýmsir viðburðir
Hvað? Sögu- og föndurstund
Hvenær? 13.00–14.30
Hvar? Borgarbókasafnið í Sól-
heimum
Föndurefni á staðnum en ef fólk á
gamla ullarsokka er það beðið að
koma með þá.
Hvað? Ári rottunnar fagnað
Hvenær? 14.00
Hvar? Kínasafn Unnar, Njálsgötu
33B
Hvað? Ráð við skapsveiflum
Hvenær? 14.00
Hvar? Borgarbókasafnið Kringlunni
Eve Markowitz Preston, doktor í
sálfræði, fjallar um þau atriði sem
liggja að baki árstíðabundnu þung-
lyndi og bendir á ráð til að takast á
við það.
Hvað? Opnunarathöfn Myrkra
músíkdaga
Hvenær? 19.00
Hvar? Norræna húsið
Opnun hátíðar og ávarp Þórunnar
Grétu Sigurðardóttur, formanns
TÍ. Útnefning heiðursfélaga, Jóns
Ásgeirssonar og Bjarkar Guð-
mundsdóttur. Hamrahlíðarkórinn
flytur Tímann og vatnið eftir Jón
Ásgeirsson og Sonnets og Cosmo-
gony eftir Björk. Opnun Sjónsmíðar
1, vídeóinnsetningar eftir Atla
Bollason.
Myndlist
Hvað? Ljósmyndabrenglun
Hvenær? 13.00
Hvar? Gerðarsafn, Kópavogi
Á fjölskyldustund býður Hall-
gerður Hallgrímsdóttir ljósmyndari
fólki að búa til sína eigin camera
obscura- pappakassamyndavél og
kynnast því hvernig myndavélin
virkar. Aðgangur ókeypis og allir
velkomnir.
Hvað? Árstíðir
Hvenær? 14.00-16.00
Hvar? Gallerí Fold
Sýning á verkum eftir Víði Mýr-
mann Þrastarson. Unnur Birna og
Björn Thoroddsen ásamt Skúla
Gísla og Sigurgeiri Skafta Flosasyni
halda uppi stemningu.
Hvað? Leiðsögn listamanns
Hvenær? 15.00
Hvar? Listasafn Reykjavíkur
Hafnarhúsi
Hrafnhildur Arnardóttir Shop-
lifter leiðir gesti um sýningu sína
Chromo Sapiens.
Tónlist
Hvað? Í brekkunni – Eyjatónleikar
Hvenær? 20.00
Hvar? Harpa
Landsliðið í tónlist rifjar upp
gömul og góð Eyjalög í bland við
þau nýju.
Hvað? Tryllt ródeó
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu 2
Tumi Árnason saxófónleikari
og Magnús Trygvason Eliassen
trymbill leiða saman hesta sína.
Aðgangur er ókeypis en á staðnum
verður hattur og platan Allt er
ómælið til sölu beint frá bændum.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
hvar@frettabladid.is
26. JANÚAR 2020
Leikhús
Hvað? Leiksýningin Dansandi ljóð.
Síðasta sýning.
Hvenær? 16.00
Hvar? Þjóðleikhúskjallarinn
Leikritið byggist á ljóðum Gerðar
Kristnýjar og dansi og tónlist
Fabúlu (Margrétar Kristínar Sig-
urðardóttur).
Tónlist
Hvað? Ljóðasöngvar
Hvenær? 12.15
Hvar? Hannesarholt Grundarstíg 8
Hvað? Oddur Arnþór og Bjarni Frí-
mann flytja ljóðasöngva Hugo Wolf
við texta Eduard Mörike.
Hvað? Ljóðatónleikar
Hvenær? 16.00
Hvar? Norðurljós Hörpu
Kristín R. Sigurðardóttir sópran og
Arnhildur Valgarðsdóttir organisti
f lytja ljóð eftir Schubert, Brahms og
Strauss. Miðaverð er kr 3.500.
Hvað? Opnunartónleikar Myrkra
músíkdaga
Hvenær? 20.00
Hvar? Norræna húsið
Strokkvartettinn Siggi leikur verk
eftir Dmitri Shostakovich, Atla
Heimi Sveinsson, Gunnar Andreas
Kristinsson og Hauk Tómasson.
Hvað? Blóðhófnir/Myrkir músík-
dagar
Hvenær? 20.00
Hvar? Iðnó
Verðlaunaljóðverk Gerðar Kristn-
ýjar, Blóðhófnir, við tónheim
Kristínar Þóru Haraldsdóttur. Forn
saga í nútíma söguljóði sem varpar
ljósi á of beldi og valdbeitingu,hér
sögð af kvenröddum, strengjahljóð-
færum og myndum.
Kvöldmessa
Hvað? Fyrsta Tómasarmessa ársins
Hvenær? 20
Hvar? Breiðholtskirkja Mjódd
Umfjöllunarefni messunnar verður:
Saman við borðið. Fimm prestar og
djáknar sjá um altarisþjónustuna.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir pré-
dikar og Matthías V. Baldursson
leiðir tónlist, ásamt Páli Magnús-
syni. Fjölskylduhljómsveit Björns
Magnússonar kemur í heimsókn.
Víðir Mýrmann Þrastarson opnar sýningu með pomp og prakt í Gallerí Fold. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kristín R. Sigurðardóttir sópran heldur ljóðatónleika í Norðurljósum,
Hörpu, ásamt Arnhildi Valgarðsdóttur.
KVIKMYNDIR
Parasite
Leikstjórn: Bong Joon Ho
Aðalhlutverk: Kang-ho Song, Sun-
kyun Lee, Yeo-jeong Jo
Suðurkóreska kvikmyndin Para-
site, eða Sníkjudýrin, eftir leik-
stjórann Bong Joon
Ho, fjallar um hjón
með tvö börn á þrí-
tugsaldri. Fátæka
lágstéttarfjölskyldu
sem beitir ýmsum
brögðum til að
komast af og svífst
einskis í tilraunum
til að bæta stöðu
sína í samfélaginu.
Líf þeirra tekur
s t a k k a s k i p t u m
þegar sonurinn
fær vinnu við að
kenna dóttur ríkra
hjóna ensku.
M y n d i n e r
s k e m m t i l e g
blanda af svörtum
húmor og spennu
þar sem leikstjórinn skemmtir sér
greinilega við að stuða áhorfand-
ann sem veit stundum ekki hvort
hann eigi að hlæja eða gráta yfir
ósvífni hinnar fullkomlega tæki-
færissinnuðu Kim-fjölskyldu.
Innræti þeirra kemur í ljós
strax í byrjun þegar fylgst er með
systkinunum reyna að stelast í
Wifi nágrannanna og hrekja yfir-
mann þeirra í vörn þegar hann
kemur til þess að kvarta yfir því
hversu illa þau skila því einfalda
starfi að brjóta saman pitsukassa.
Þar smjúga þau inn í rammann eins
og rottur og þjarma þannig að yfir-
manninum að hann snýst frá því
að vera öskureiður yfir í að veita
systurinni stöðuhækkun.
Kim-f jölskyldan virðist vera
mjög samrýnd. Þau eru gjarnan
sýnd borða og drekka saman en
einnig vinna þau öll við að brjóta
saman fyrrnefnda pitsukassa í litlu
íbúðinni sinni. Park-fjölskyldan
eyðir hins vegar litlum tíma saman
og deilir sjaldan öllum atriðum í
myndinni. Þau eru alger andstæða
Kim-hyskisins og eiga ekki von á
góðu þegar sníkjudýrin finna af
þeim smjörþefinn.
Leikur að andstæðum
Bong Joon Ho leikur sér einmitt
mikið með andstæður, en einnig
form og rými. Þetta sést til dæmis
í mjög ólíkum híbýlum fjölskyldn-
anna. Fátæka Kim-fjölskyldan býr í
þröngri niðurgrafinni kjallaraíbúð
þar sem allt er á rúi og stúi. Íbúðin
er í vafasömu hverfi þar sem reglu-
lega kemur upp á að einhver létti á
sér beint fyrir utan stofugluggann.
Svo ólík eru hús fjölskyldnanna
tveggja að sonurinn, sem kemur
fyrstur inn í líf Park-fjölskyldunnar,
lítur út eins og hann hafi stigið inn
í annan heim þegar hann stígur þar
inn.
Til að komast að glæsihýsi Park-
fjölskyldunnar þarf að ganga upp
mikinn bratta
og um húsið
virðist nánast
hafa verið sleg-
ið skjaldborg
múrveggja og
runna til þess
að halda skríln-
um úti.
Í Park-hús-
inu er hátt til
lofts og vítt til
veggja. Allt er
óaðf innanlega
hreint og það
er röð og regla
í þessu dauð-
hreinsaða virki
úr steinsteypu
og gleri. En oft
er f lagð undir
fögru skinni. Bæði húsið og Park-
fjölskyldan hafa eitthvað að fela.
Maður veltir fyrir sér hvað Park-
pabbinn, sem er sjaldan heima, hafi
gert til þess að komast á þann stað í
lífinu sem hann er á. Er hann tæki-
færissinni? Sveifst hann einskis til
að bæta stöðu sína?
Skemmtilegur skollaleikur
Kang-ho Song er einstaklega góður
sem fjölskyldufaðir sníkjudýranna
sem þögull hugsar sitt og sér ekkert
athugavert við að nýta sér og sínum
ríkidæmi Park-fjölskyldunnar.
Yeo-jeong Jo er síðan frábær í
túlkun sinni á trúgjarnri og tauga-
veiklaðri auðkonunni sem hefur
áhyggjur af öllu nema því sem raun-
verulega er í gangi á hennar eigin
allsnægtaheimili.
Þótt leikurinn fari hér fram á
framandi tungumáli þannig að
maður skilur ekki orð ber ekki á
öðru en að leikararnir túlki per-
sónur sínar með miklum sóma og
þegar á líður gleymir maður því að
sagan á sér stað í óskilgreindri borg
í Suður-Kóreu.
Sagan er um stéttaskiptingu og
svik og efnistökin eru einfaldlega
það góð að hún springur út í sam-
mannlega og alþjóðlega tragikóme-
díu sem á við hvar sem er og hvenær
sem er. Edda Karítas Baldursdóttir
NIÐURSTAÐA: Góð mynd um stétta-
skiptingu og dæmisaga um hvernig
afleiðingar hennar kristallast í hráskinna-
leik þar sem bæði þau ríku og fátæku
níðast hvert á öðru sér til framdráttar.
Alls konar afætur
2 5 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð