Fréttablaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 18
Þegar ég var að velja
mér mót til þess að
fara á var ánægjulegt að geta
gert það áhyggjulaus.
Annie Mist Þórisdóttir ætlar að bregða sér í hin ýmsu hlutverk á meðan CrossFit-mótið á Reykjavíkurleikunum stendur yfir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 5 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
CROSSFIT Annie Mist Þórisdóttir er
mjög ánægð með að CrossFit sé orðið
hluti af glæsilegri dagskrá Reykja-
víkurleikanna en keppt verður í
greininni í fyrsta skipti á leikunum
í þetta skiptið. Keppt verður bæði í
keppni yngri iðkenda á mótinu sem
og í Mastersflokki. Annie Mist, sem
er mikil keppnismanneskja, hefur
stóra drauma fyrir CrossFit-hluta
leikanna í framtíðinni.
„Það er mjög ánægjulegt að Cross-
Fit hafi bæst við í þessa glæsilegu
leika. Ég er mjög spennt fyrir því
að sjá bæði keppnina í Masters-
f lokknum sem og unga og upp-
rennandi CrossFitara etja kappi.
Það eru tæplega 100 keppendur í
Masters-f lokknum og keppnin er
sterk. Hingað eru að koma öflugir
erlendir keppendur og það verður
fróðlegt að sjá hvar íslensku kepp-
endurnir standa í samanburði við
þá,“ segir Annie Mist um komandi
keppni en hún getur ekki keppt á
mótinu að þessu sinni.
„Ég er búin að reka hálfgerða
ferðaskrifstofu undanfarnar vikur
en erlendu keppendurnir sem eru að
koma hingað ætla að nota tækifærið
og skoða landið. Ég er búin að fá svo
mikið af fyrirspurnum að ég bjó til
staðlað svar við því hvað væri nauð-
synlegt að sjá á Íslandi.
Ég er meira að segja búin að búa
til mismunandi svör eftir því hversu
lengi fólk verður hér. Ég held að það
séu mikil tækifæri til að stækka
mótið á næstu árum,“ segir hún.
„Minn draumur er að þetta verði
fyrsta stóra mótið í CrossFitinu á
hverju ári og myndi bætast við flór-
una í CrossFitinu hér heima. Reykja-
vík CrossFit Championship fer fram
í apríl og er búið að festa sig í sessi
sem eitt af stóru mótunum á hverju
ári. Þetta mót getur hæglega bæst
við það á mótadagskránni.
Reykjavíkurleikarnir fara fram á
hentugum tíma hvað það varðar að
laða sterka keppendur til landsins.
Það er óraunhæft að hafa stórt og
fjölmennt mót yfir sumarið þar sem
bestu keppendurnir eru að hugsa
um Heimsleikana og mót sem koma
þér þangað inn á þeim tíma. Ég fann
fyrir virkilega miklum áhuga hjá
erlendum CrossFiturum á að koma
hingað til Íslands þrátt fyrir að það
sé hávetur. Laugardalshöllin hentar
vel fyrir CrossFit-keppni í hæsta
gæðaflokki,“ segir þessi metnaðar-
fulla afrekskona.
Skrýtið að vera komin til Dúbaí
Annie Mist hefur sjálf tryggt sér sæti
á Heimsleikunum en hún gerði það
óvenjulega snemma að þessu sinni.
Hún segir það skrýtna en jafnframt
góða tilfinningu að farseðillinn
til Dúbaí sé í höfn á þessum tíma-
punkti. Það sé þægilegt að geta stýrt
álaginu og vera ekki með pressu á
öxlunum fyrri hluta árs.
„Það var mikill léttir þegar ég
tryggði mér þátttökuréttinn á
Heimsleikunum en á sama tíma er
það mjög skrýtið að vera að skipu-
leggja árið án þess að vera að pæla
hvar ég næli mér í sæti á mótinu.
Ég er þannig gerð að mér líður best
undir pressu en nú reynir á mig að
stilla æfinga- og mótaplanið þannig
að ég haldi mér á tánum og toppi á
réttum tíma,“ segir Annie Mist um
keppnisárið sem fram undan er.
„Þegar ég var að velja mér mót til
þess að fara á var ánægjulegt að geta
gert það áhyggjulaus. Ég er í góðu
formi eins og staðan er núna og er
mjög spennt fyrir þeim verkefnum
sem ég er að fara í. Mér finnst geggj-
að að byrja árið á að hitta afreks-
íþróttafólk, bæði í CrossFitinu, og
öðrum íþróttagreinum. Reykja-
víkurleikarnir eru frábær byrjun á
árinu. Ég mun sinna bæði pepphlut-
verki og aðstoða við utanumhaldið
í CrossFit-keppninni og þess á milli
bregð ég mér í starf leiðsögumanns
um þá flottu staði sem Ísland hefur
upp á að bjóða,“ segir hún.
hjorvaro@frettabladid.is
Hef rekið hálfgerða ferðaskrifstofu
Þrátt fyrir að Annie Mist Þórisdóttir muni ekki keppa þegar CrossFit verður meðal greina á Reykjavíkurleikunum í fyrsta skipti
hefur hún hjálpað við skipulagningu mótsins. Annie Mist vill sjá mótið stækka og að þetta verði fyrsta stóra CrossFit-mót ársins.
NFL Borgarráð hefur veitt sjö
börum í Reykjavík leyfi til að hafa
lengur opið aðfaranótt 3. febrúar
þegar Super Bowl fer fram. Amer-
ican Bar, Gummi Ben, Bastard brew
and food, Lebowski, Ræktin, Keilu-
höllin og að sjálfsögðu Ölver þurfa
ekki að skella í lás fyrr en leik lýkur.
Keiluhöllin þarf reyndar ekki að
slökkva ljósin fyrr en klukkan sex
en gestir American Bar þurfa að
vonast eftir að leikurinn fari ekki
í framlengingu því þeirra leyfi
rennur út klukkan fjögur.
Fyrir f imm árum var aðeins
Glaumbar með leyfi til að sýna
Super Bowl þótt aðrir barir um
borgina hafi stolist til að hafa
kveikt á sjónvarpinu. Það var ekki
leyfilegt og mætti lögreglan á Ölver
sem dæmi þegar viðureign New
England Patriots og Seattle Sea-
hawk stóð sem hæst. Hún slökkti
ljósin og lokaði staðnum og voru
gestir reknir út í ískalda febrúar-
nóttina – enda ekkert leyfi til stað-
ar. Fyrir tveimur árum gáfu borgar-
yfirvöld út fjögur leyfi til að barir í
borginni gætu sýnt frá leiknum.
Að þessu sinni mætast San Franc-
isco 49ers og Kansas City Chiefs
með Íslandsvininn Patrick Ma-
homes sem leikstjórnanda. Útsend-
ing hefst um klukkan 22 en hann fer
fram í Miami og venju samkvæmt
er dagskráin jafn spennandi utan
vallar og innan hans. Demi Lovato
syngur þjóðsönginn og þær Jenni-
fer Lopez og Shakira eiga að trylla
lýðinn í hálf leik meðan auglýsing-
arnar rúlla vestan hafs. Þar kosta 30
sekúndur 5,6 milljónir dollara, eða
um 700 milljónir króna.
RÚV rukkaði auglýsendur um
540 þúsund fyrir 30 sekúndur í
hálfleik Íslands og Argentínu á HM
í fótbolta og voru það sagðar dýr-
ustu auglýsingasekúndur Íslands-
sögunnar af Morgunblaðinu. Í
sömu grein kom fram að verðið
í auglýsingatímanum á undan
Áramótaskaupinu væri yfirleitt
um 450 til 495 þúsund fyrir 30 sek-
úndna auglýsingu. -bb
Sjö barir fá leyfi til að sýna Super Bowl
Íslandsvinurinn og tengdasonur Mosfellsbæjar, Patrick Mahomes, er
kominn með sitt lið, Kansas City Chiefs, í Superbowl. NORDICPHOTOS/GETTY
Auglýsingaplássið í hálf-
leik seldist upp í nóvember á
síðasta ári. Óstaðfestar
fréttir herma að Donald
Trump hafi tryggt sér
auglýsingu.