Fréttablaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 52
Í boði eru eftirfarandi störf:
• Aðstoð við utanumhald og
skýrslugerð í nýsköpunarverkefnum
sem styrkt eru af ESB
• Kostnaðar- og fýsileikagreiningar
Við tökum á móti umsóknum
á ráðningarvef Carbfix,
starf.carbfix.com, þar sem nánari
upplýsingar um störfin er að finna.
Umsóknarfrestur er til og með
1. mars 2020. Jafnréttismál eru okkar
hjartans mál og því hvetjum við öll
kyn til að sækja um.
CarbFix er nýsköpunarfyrirtæki sem
hefur þann tilgang að berjast gegn
loftslagsvánni með því að stórauka
kolefnisförgun á heimsvísu.
Vilt þú vera kolefnisfargari?
Sumarstörf
hjá Carbfix
Carbfix / Bæjarhálsi 1 / 110 Reykjavík / carbfix.com
Til hvers að auglýsa ?
Ef þú auglýsir sjálf-/ur eftir starfsmanni eyðir þú verulegum tíma
í úrvinnslu innsendra umsókna.
Okkar styrkur er öflugur gagnabanki og yfir tveggja áratuga reynsla við að
þjónusta fyrirtæki við leit að starfsmanni.
Sparaðu þér tíma, kostnað og fyrirhöfn - leitaðu aðstoðar
fagmanna með langvarandi reynslu af ráðningarmálum.
STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - sími 588-3031
stra@stra.is - gudny@stra.is - www.stra.is.
Með starf
fyrir þig
Starfsemi STRÁ ehf. býr að
aldarfjórðungs reynslu og
þekkingu á sviði starfs-
manna- og ráðningarmála
en stofan hefur unnið fyrir
mörg helstu og leiðandi
fyrirtæki landsins um
árabil.
Rík áhersla er lögð á trúnað
varðandi vörslu gagna og
upplýsinga bæði gagnvart
umsækjendum, sem og
vinnuveitendum.
Ánægðir viðskiptavinir til
margra ára hafa notið
þjónustu STRÁ, en stofan
hefur jafnframt umsjón
með ráðningum í sérfræði-
og stjórnunarstöður.
www.stra.is
Tilkynningar um nýtt fólk Atvinnublað Fréttablaðsins
kemur út á laugardögum í viku hverri. Umsjónarmaður
blaðsins er Hrannar Helgason. Blaðið birtir valdar
greinar um ráðningu nýrra starfsmanna. Sendið til-
kynningar ásamt mynd af viðkomandi á netfangið:
nyttfolk@frettabladid.is
Nýtt fólk
Kristín til Listasafns
Árnesinga
Stjórn Listasafns Árnesinga hefur ráðið í starf forstöðu-manns safnsins, Kristínu
Scheving myndlistarmann.
Kristín nam myndlist við École
Supérieure des Arts Décoratifs
de Strasbourg í Frakklandi frá
1996-1999 og kláraði síðan BA-
gráðu í sjónlistum frá Manchester
Metropolitan University, Bretlandi 2001.
Árið 2003 útskrifaðist hún með MA-gráðu í Media Arts
frá sama háskóla, og kenndi síðan við þann háskóla í
sjónlistadeildinni til 2005. Eftir rúman áratug erlendis
f lutti Kristín aftur til Íslands og vann sem framkvæmda-
stjóri Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs frá 2005 og
byrjaði þá einnig með vídeólistahátíðina 700IS Hrein-
dýraland. Árin 2011-2013 vann hún sem verkefnastjóri
hjá Listahátíð í Reykjavík og Norræna húsinu í Reykjavík.
Árin 2013-2017 var Kristín deildarstjóri Vasulka-stofu hjá
Listasafni Íslands og síðustu tvö ár hefur hún unnið sem
sérfræðingur hjá BERG Contemporary og séð um að halda
utan um sýningar Vasulka verka, um útgáfur og lagaleg
mál vegna höfundarréttar verka þeirra.
Haukur Gíslason nýr
sviðsstjóri sölu
Haukur Gíslason hefur verið ráð-inn sem sviðsstjóri sölu hjá Men&Mice. Hlutverk Hauks
er að leiða stækkandi söluteymi
félagsins á alþjóðavísu. Hann
hefur áratuga reynslu í því að
leiða söluteymi til árangurs. Hann
flutti nýlega aftur til landsins frá
Austurríki en þar starfaði Haukur
sem framkvæmdastjóri sölusviðs
kortaþjónustufyrirtækisins PXP Financial.
Þar áður starfaði Haukur hjá Valitor í sjö ár sem yfir-
maður alþjóðasölu og hjá Latabæ þar sem hann sá um sölu
og dreifingu á efni til erlendra sjónvarpsstöðva á árunum
2003 til 2010. Haukur starfaði einnig sem sölustjóri hjá Tal
og Flugfélagi Íslands. Haukur er með BS-gráðu í viðskipta-
fræði frá Háskólanum á Bifröst og með diplómapróf í
samningatækni og leiðtogahæfni frá Harvard háskóla.
Sérfræðingur á fjármálasviði
Eignaumsjónar
Róbert Ingi Richardsson hefur verið ráðinn í stöðu sér-fræðings á fjármálasviði
Eignaumsjónar og hóf hann störf í
ársbyrjun 2020. Hann sinnir m.a.
stýringu fjármuna viðskiptavina
Eignaumsjónar í samvinnu við
fjármálastjóra, gerð kostnaðar- og
innheimtuáætlana, framkvæmda-
uppgjör og fjármálagreiningar ásamt
samskiptum við þjónustuaðila og fleiri.
Róbert Ingi er með B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði með
áherslu á alþjóðaviðskipti frá Háskólanum í Reykjavík.
Hann kemur til Eignaumsjónar frá Sixt bílaleigu þar sem
hann var tekjustjóri. Þar áður starfaði hann hjá Íbúðal-
ánasjóði sem ráðgjafi/lánafulltrúi á einstaklingssviði og
einnig hefur hann m.a. unnið hjá Arion verðbréfavörslu
og Tal.