Fréttablaðið - 25.01.2020, Blaðsíða 28
LEIKVANGURINN
Þrátt f y r ir að tíma-bilinu í NFL-deildinni sé að ljúka er Antonio Brown hvergi hættur að skrifa fyrirsagnir í fjöl-miðlana fyrir hegðun
sína utan vallar. Hann var á dögun-
um handtekinn fyrir að hafa ráðist á
vörubílstjóra og grýtt bíl hans þegar
hann yfirgaf svæðið eftir að Brown
neitaði að greiða honum fyrir flutn-
ing á eigum hans frá Los Angeles til
Flórída. Bílstjórinn er einn fjöl-
margra sem hafa stigið fram og lýst
yfir að Brown neiti að greiða fyrir
þjónustu sem hann kaupir.
Þá hefur hann verið kærður fyrir
kynferðisbrot, hótað fjölmiðlafólki
og borgað sig út úr ákæru eftir að
hafa hent húsgögnum fram af 14.
hæð sem litlu munaði að hæfðu fólk.
Það verður ekki um það deilt að
hann er einn af bestu útherjum
NFL-deildarinnar en nýjasta ákær-
an gæti verið kornið sem fyllti mæl-
inn. Hann er án félags og er hæpið
að sjá nokkuð félag tilbúið að takast
á við vandræðin sem virðast fylgja
Brown hvert sem hann fer.
kristinnpall@frettabladid.is
9. mars
n Skipt til Oakland Raiders eftir
deilur við liðsfélaga og þjálfara-
teymi. Buffalo Bills sýndi Brown
áhuga en hann tilkynnti á sam-
skiptamiðlum að hann hefði
ekki áhuga á að fara til Buffalo.
Við komuna til Raiders segist
hann vera í skýjunum og skrifar
undir nýjan samning.
3. ágúst
n Missir af æfingabúðum Raiders
og birtir myndir af kalsárum af
fótunum. Gleymdi að klæðast
viðeigandi fatnaði í lághitameð-
ferð sem hann fór í án sam-
þykkis félagsins.
9. ágúst
n Kærir ákvörðun NFL að hann
verði að skipta um hjálm. NFL
deildin setti skýrar reglur um
að hjálmar þyrftu að standast
ákveðnar öryggiskröfur. Reyndi
að breyta gömlum hjálm og fór
aftur með málið fyrir dómstóla
eftir synjun. Hótar að hætta ef
hann fær ekki kröfum sínum
framfylgt en sættir sig loksins
við nýjan hjálm mánuði síðar.
5. september
n Lendir í útistöðum við fram-
kvæmdastjóra Oakland Raiders
og birtir á samskiptamiðlum
sekt frá félaginu. Liðsfélagar
þurftu að halda aftur af Brown
en hann baðst afsökunar degi
síðar.
7. september
n Óskar eftir því að rifta samningi
sínum við Raiders eftir að hafa
verið sektaður af félaginu fyrir
samskipti sín við framkvæmda-
stjóra félagsins. Raiders leysir
hann undan samningi.
Skrifar samdægurs undir
samning við New England Pat-
riots og virðist himinlifandi að
fá að leika með Tom Brady, leik-
stjórnanda Patriots.
Antonio Brown kemst í mark með eina snertimark sitt sem leikmaður New England Patriots gegn Miami fyrr á þessu tímabili. Það gæti reynst síðasta snertimark hans. NORDICPHOTOS/AFP
Útherjinn Antonio Brown er ein stærsta stjarna NFL. NORDICPHOTOS/AFP
undir eftir að fjölmiðlar fóru að
fjalla um hótanir sem Brown
sendi til kvennanna.
22. september
n Segist vera hættur í NFL-deild-
inni og sakar fyrrum félög sín
um að standa ekki við tilgerða
samninga upp á fjörutíu milljónir
dollara. Bendir á brot annarra til
þess að vekja athygli á með-
ferðinni sem hann verður fyrir.
27. desember
n Æfir með New Orleans Saints en
fær ekki samning. Sakar félagið
um að hafa notað hann sem
auglýsingabrellu.
10. janúar
n Gefur út sitt fyrsta lag, Whole
lotta Money, þar sem hann
skýtur á Saints.
13. janúar
n Er í beinni á Instagram-síðu sinni
þegar barnsmóðir hans kemur
að sækja börn þeirra. Úthúðar
barnsmóður sinni sem Brown
á þrjú börn með og lögreglu-
þjónunum sem aðstoða barns-
móður hans, sakar hana um að
vera komna til að stela bíl.
22. janúar
n Handtökuskipun er gefin út
eftir að vörubílstjóri sakaði
Brown um líkamsárás. Brown
fékk vörubílstjórann til að ná í
eigur sínar í Kaliforníu og koma
með þær til Flórída. Brown
grýtti bíl vörubílstjórans þegar
vörubílstjórinn yfirgaf svæðið
eftir að Brown neitaði að greiða
fyrir þjónustuna. Þegar vörubíl-
stjórinn kom aftur stuttu seinna
réðst Brown með einkaþjálfara
sínum á manninn. Lögregluyfir-
völd vara við að hann sé líklegur
til að vera með skotvopn á sér.
23. janúar
n Mætir á lögreglustöð þar sem
hann er settur í fangelsi vegna
líkamsárásar á meðan beðið er
eftir niðurstöðu dómara.
Antonio Brown var handtekinn fyrir að
hafa ráðist á flutningamann í vikunni.
Nokkrir dagar eru síðan deila Brown við
barnsmóður sína leiddi til lögregluinngrips
og það í beinni á Instagram-síðu Brown.
Ferill Brown
á hraðri
niðurleið
10. september
n Fyrrverandi einkaþjálfari Brown
sakar hann um kynferðisbrot og
nauðgun sem Brown neitar.
15. september
n Leikur fyrsta og eina leik sinn
fyrir New England Patriots. Hann
og Brady vinna vel saman og
Brown skorar eitt snertimark.
16. september
n Önnur kona stígur fram og
sakar Brown um kynferðisbrot.
Brown fer að áreita konuna
sem skrifaði um seinna málið í
Sports Illustrated.
20. september
n Rekinn frá Patriots, ellefu
dögum eftir að hafa skrifað
2 5 . J A N Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð