Skessuhorn - 27.03.2019, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.976 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.580. Rafræn áskrift kostar 2.337 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.160 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Hlúum að atvinnulífi
heima fyrir
Þrátt fyrir að við Íslendingar höfum orð á okkur fyrir að vera harðgerð þjóð og
þrautgóð á raunastund erum við samt ekki endilega góð á öllum sviðum. Enda
hver er svo sem gallalaus? Í gegnum tíðina höfum við náð að áorka ýmsu og
kannski er afrek út af fyrir sig að hafa einfaldlega lifað af hörmungar og vosbúð
sem ýmist hefur verið af mannavöldum, vegna veðráttu eða náttúruhamfara.
Kannski í ljósi þess hversu rík við erum af auðlindum hættir okkur engu að
síður til að vera dálítið kærulaus. Við styðjum uppbyggingu en gleymum að
hlúa að því sem við höfum. Kannski má benda á sem dæmi Þórðargleði margra
vegna ófara WOW air um þessar mundir. En ég ætla að taka annað dæmi okk-
ur nær. Fyrir rúmum sextíu árum var byggð sementsverksmiðja á Akranesi.
Þar var framleitt úrvals sement til mannvirkjagerðar, allt þar til framleiðslu
var hætt 2011. En framleiðslu var ekki hætt vegna þess að íslenskt sement væri
eitthað verra en það innflutta. Þvert á móti. Henni var hætt vegna þess að við
gleymdum að hlúa að fyrirtækinu og gæta þess sem verðmæts vinnuveitanda.
Það slysaðist í hendur manna sem hirtu úr því peninga sem notaðir voru í
óskyld verkefni. Undir það síðasta, þegar framleiðsla og sala sements var hvað
mest í sögu fyrirtækisins, átti fyrirtækið varla fyrir launum. Því fór svo á end-
anum að fyrirtækið fór í þrot og eftir stóðu yfirgefin mannvirki sem bæjar-
félagið leysti að lokum til sín fyrir uppsprengt verð. Þekktasta tákn þessarar
verksmiðju, sementsstrompurinn, var svo felldur á föstudaginn. Hlaut sömu
örlög og tuddinn í fjósinu sem hættur var að geta sinnt kúnum. Fall stromps-
ins markar formleg endalok atvinnustarfsemi þar sem á þriðja hundruð manns
störfuðu þegar best lét. Framleiddu vöru úr hráefni sem að mestu var inn-
lent. Fyrirtæki sem skapaði raunveruleg verðmæti, ekki bara tölur í excelskjali
töskufjárfestis. Við Íslendingar gleymdum að hlúa að fyrirtækinu og því fór
þetta svona illa. Hús og önnur mannvirki verða því hér eftir byggð úr norsku
og dönsku sementi. Sementi sem veitir Dönum og Norðmönnum atvinnu við
framleiðsluna af því að þessar þjóðir hafa vit á að hlúa að því sem þær hafa.
En endalok sementsframleiðslu eru alls ekki neitt einsdæmi í íslenskri at-
vinnusögu. Nú er ekki lengur í tísku að beita slagorðum á borð við „kaup-
um íslenskt“ eða „verslum í heimabyggð“. Það þykir ekki fínt. Landamæri eru
horfin og fólk leiðir ekki einu sinni hugann að þessu þegar það kaupir óséð
tuskuflíkur frá Kína sem Íslandspóstur flytur svo til landsins með tapi og til-
heyrandi kostnaði skattborgara. Þar er engu eirt í vitleysisganginum. Þá byggj-
um við upp fiskveiðistjórnunarkerfi sem leyfir sölu veiðiheimilda milli byggða
og tugir eða hundruðir starfa hverfa á einni nóttu. Við samþykkjum hljóða-
laust samþjöppun í matvælavinnslu og töpum frá okkur hundruðum starfa,
t.d. við rækjuvinnslu, slátrun og mjólkurvinnslu. Bankastofnanir og trygginga-
félög eru komnar í eigu fákeppnisfyrirtækja með höfuðstöðvar í Reykjavík og
því höfum við ekkert að segja um þau störf lengur, enda fækkar þeim stöðugt.
Þannig gæti ég áfram talið. Sporin hræða og mér finnst einhvern veginn eins
og öllum sé drullusama. Meira að segja eru blikur á lofti í ræktun grænmetis.
Rafmagn til lýsingar er svo hátt verðlagt af Rarik að það borgar sig ekki fyrir
garðyrkjubændur að rækta grænmeti nema á sumrin þegar sól er hæst á lofti.
Tómatana getum við svo keypt frá Danmörku, Hollandi, Spáni og Marokkó.
Ræktaðir undir vökvun vatns sem að grunninum til er klórhreinsaður sjór eða
jafnvel skólp. Verði okkur að góðu - við eigum ekki betra skilið!
Mér finnst kominn tími til að fólk endurveki þá hugsun að hlúa að þeim
fyrirtækjum sem við þó höfum og skynsamlegt er að verði áfram til. Þau skipta
nefnilega máli. Ekki eingöngu fyrir lífsafkomu þeirra sjálfra, heldur okkar allra
vegna. Fjölbreytt og blómlegt atvinnulíf er nefnilega leiðin til að sporna gegn
fækkun á landsbyggðinni og ekki síður gegn vexti hálfdauðra svefnbæjarsam-
félaga, þar sem íbúar aka burtu til vinnu fyrir sólarupprás og koma heim í
myrkri á kvöldin.
Magnús Magnússon
Umsækjendur sem óskuðu aðstoð-
ar Umboðsmanns skuldara (UMS)
vegna fjárhagsvanda fjölgaði um
6,5% á árinu 2018 miðað við árið á
undan. Mest fjölgaði umsækjend-
um sem voru á aldrinum 18-29 ára.
Umboðsmaður skuldara hefur áður
vakið athygli á vaxandi fjölda ungs
fólks í vanda vegna töku skyndi-
lána en UMS skilgreinir skyndi-
lán sem lán tekin á vefsíðum eða
með smáforritum í gegnum far-
síma. Lánin eiga það sameiginlegt
að einfalt er sækja um þau og þau
eru afgreidd afar skjótt. Bæði getur
verið um að ræða lán sem tekið er
samhliða kaupum á vöru eða þjón-
ustu en einnig lán þar sem ákveð-
in fjárhæð er lögð inn á reikning
lántaka. Einstaklingar sem leita sér
aðstoðar eiga það sameiginlegt að
hafa tekið fjölda skyndilána á stutt-
um tíma og komið sér í töluverð-
ar skuldir. Markaðssetning skyndi-
lána er öflug og áberandi og er
beint í miklum mæli að yngri kyn-
slóðinni með áherslu á auðvelt að-
gengi. Að mati UMS er mikilvægt
að kannað verði hvort hægt sé að
setja skorður við því hvernig þessi
þjónusta er markaðssett.
Ljóst er að einstaklingar geta
auðveldlega tekið mörg lán á stutt-
um tíma hjá ólíkum þjónustuað-
ilum og þannig skuldsett sig langt
umfram greiðslugetu. „Með því að
skrá skuldastöðu einstaklinga væri
hægt að koma í veg fyrir að sami
einstaklingur taki mörg lán hjá
ólíkum aðilum með ofangreind-
um afleiðingum. Með aðgangi að
slíkri miðlægri skrá gætu þeir sem
veita skyndilán betur metið láns-
hæfi umsækjenda eins og kveðið
er á um í lögum um neytendalán.
Slík skráning myndi auk þessi veita
yfirsýn yfir umfang útlána af þessu
tagi sem ekki er fyrir hendi í dag,“
segir í fréttatilkynningu UMS um
málið.
mm
Verulegur fjárhagsvandi ungs
fólks vegna skyndilána
Hér er skjáskot af vefsíðunni smalan.dk sem býður fólki peningalán með litlum
fyrirvara. Vefsíðunni er haldið út frá Kaupmannahöfn. Blaðamaður hafði ekki
verið staddur inni á síðunni lengur en í hálfa mínútu þegar hann fær skilaboð í
netspjalli með boði um aðstoð við að taka smálán.
Matvælastofnun hefur, í samvinnu
við Lyfjastofnun, kært vef með ís-
lensku léni til lögreglu og farið
fram á að honum verði lokað. Rétt-
hafi léns er skráður í Mið-Ameríku
en vefleit gefur til kynna starfsemi
í Ástralíu. Á vefnum eru auglýst til
sölu bæði ólögleg fæðubótarefni og
lyf. „Matvælastofnun varar við við-
skiptum við vefinn www.roidstop.
is og neyslu fæðubótarefna og lyfja
sem vefurinn segist selja. Neytend-
ur skulu ávallt vera á varðbergi þegar
kemur að kaupum á fæðubótarefn-
um og lyfjum á netinu,“ segir í til-
kynningu frá Matvælastofnun.
Á síðunni eru til sölu hættuleg efni
,s.s. DNP og Nootropics. Nýlega
féll dómur í Bretlandi vegna dauðs-
falls ungrar stúlku sem hafði neytt
DNP. Sölumaðurinn var dæmd-
ur í sjö ára fangelsi fyrir manndráp
af gáleysi og fyrir að selja hættulegt
efni til manneldis. Grunur er um að
nýlegt andlát einstaklings á Íslandi
megi rekja til inntöku á Nootropics
(tianeptine). Matvælastofnun barst
ábending um vefinn í gegnum hrað-
viðvörunarkerfi Evrópu um matvæli
og fóður (RASFF). mm
Kæra ólöglega netsölu
lyfja og fæðubótarefna
Efnið DNP er enn til sölu á vefsíðunni þrátt fyrir að vera flokkað sem hættulegt efni,
en dauðsfall breskrar stúlku er rakið til neyslu þess.
Laugardaginn 30. mars á milli
klukkan 13 og 15 munu skólar á
öllum skólastigum í Borgarbyggð
kynna starfsemi sína á Skóladegi
sem haldinn verður í Hjálmakletti.
Vítt og breitt um bygginguna verð-
ur margt forvitnilegt að sjá og hægt
að kynnast gróskumiklu skólastarfi
allra skólastiga í sveitarfélaginu.
Þetta er í fyrsta skipti sem skólarn-
ir kynna sig allir með þessum hætti.
Til skemmtunar verður boðið upp á
bíósýningar, Lubbastundir og söng-
stundir fyrir gesti og gangandi. Að
auki verður undirskrift samstarfs-
samnings. Á sviði verður sýnt brot
úr leikritinu Eftir lífið. Nemend-
ur stíga á stokk og flutt verða ljóð,
boðið uppá söng og tónlistarflutn-
ing og verðlaunaafhending verður í
hugmyndasamkeppni.
Á Skóladegi munu leikskólarnir
Andabær, Hnoðraból, Hraunborg,
Klettaborg og Ugluklettur kyn-
na sína starfsemi. Grunnskólarnir
verða Grunnskólinn í Borgar-
nesi, Grunnskóli Borgarfjarðar
og Laugargerðisskóli. Auk þess
Menntaskóli Borgarfjarðar, Tón-
listarskóli Borgarfjarðar og
Símenntunarmiðstöðin á Vestur-
landi. Þá munu Háskólinn á Bifröst
og Landbúnaðarháskóli Íslands
kynna sína starfsemi.
mm
Skóladagur í Borgarbyggð á laugardaginn