Skessuhorn


Skessuhorn - 27.03.2019, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 27.03.2019, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 17 SK ES SU H O R N 2 01 9 Auglýsing um skipulag - Akraneskaupstaður Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 – miðsvæði M2. Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi 11. desember 2018, tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017, skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fyrirhuguð breyting nær til M2 Akratorg, Kirkjubraut, Stillholt, 7,9 ha að flatarmáli. Breytingin felst í að með auknu byggingarmagni skal auka við bílastæði í göturými, með samnýtingu og með bílageymslum neðanjarðar þar sem aðstæður leyfa. Skilmálar um fjölda bílastæða vegna aukinnar nýtingar skulu settir í deiliskipulag. Breyting á deiliskipulagi Stofnanareits er auglýst samhliða. Breyting á deiliskipulagi Stofnanareits – Kirkjubraut 39 Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi 12. febrúar 2019 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Stofnanareits skv. 43. gr. skipulags- laga nr. 123/2010. Breytingin tekur til lóðarinnar nr. 39 við Kirkjubraut og felst í að byggja upp verslun / hótel á lóðinni. Nýtingarhlutfall er aukið úr 0,4-0,6 í 1,56 og byggt verði allt að 4. hæða hús í götulínu. Breyting á aðalskipulagi Akraness 2005-2017, vegna miðsvæðis M2 er auglýst samhliða. Breytingartillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18, Akranesi og á heimasíðu Akraneskaupstaðar frá og með 29. mars til og með 12. maí 2019. Tillagan er einnig til kynningar á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna til 12. maí 2019. Skila skal skriflegum athugasemdum í þjónustuver Akraneskaup- staðar að Stillholti 16-18, eða á netfangið skipulag@akranes.is. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Atvinnuveganefnd Alþingis hef- ur sent sveitarfélögum til umsagn- ar frumvarp til laga um fiskeldi. Í því felst meðal annars áhættumat vegna erfðablöndunar við nátt- úrulega laxastofna, úthlutun eldis- svæða til fiskeldis í sjó, stjórnvalds- sektir ef á lögunum er brotið og fleiri atriði. Sveitarfélagið Borgar- byggð fékk frumvarpið til umsagn- ar og bókaði allítarlega vegna þess, enda eru fjölmargar af fengsæl- ustu laxveiðiám landsins að finna í sveitarfélaginu og miklir hagsmun- ir í húfi. Í bókun byggðarráðs frá síðasta fimmtudegi segir m.a. að byggðar- ráð hvetji Alþingi til að gera nauð- synlegar endurbætur á frumvarp- inu svo tryggt verði að lífsafkomu íbúa á þeim svæðum landsins, þar sem virði laxveiðiáa skiptir veru- legu máli í viðhaldi búsetu og af- komu almennings, verði ekki ógn- að. „Á Vesturlandi nær starfsemi veiðifélaga og veiðifélagsdeilda til 620 lögbýla. Á Vesturlandi eru tekjur veiðifélaga og veiðiréttar- hafa um þriðjungur af öllum slík- um tekjum á landinu. Þar fyrir utan er margvísleg afleidd þjón- usta í tengslum við laxveiði sem skapar tekjur og lífsviðurværi fyr- ir íbúa sveitarfélagsins. Í Borgar- byggð einni er að finna nokkar af verðmætustu laxveiðiám landsins. Því er það gríðarlegt hagsmunamál fyrir Borgarbyggð og nærsveit- ir á Vesturlandi að tekið sé mið af þýðingu villtra laxastofna fyrir af- komu íbúanna og búsetuskilyrðum í héraðinu þegar Alþingi fjallar um frumvarp til laga um fiskeldi. Sjálf- bær nýting íslenskra laxa- og sil- ungastofna er ein meginstoð land- búnaðar í Borgarbyggð.“ Gríðarlega miklum hagsmunum ógnað Þá minnir byggðarráð á að sam- kvæmt nýrri skýrslu Hagfræði- stofnunar HÍ eru 69% af launa- kostnaði og hagnaði í landbún- aði á Vesturlandi vegna tekna af stangveiði. „Þegar lagt er mat á þessa stöðu fyrir landið í heild sinni er þetta hlutfall 28%. Sjókví- aeldi á frjóum norskum laxi er ógn við verðmæti sem hafa verið varð- veitt í margar kynslóðir á lögbýl- um landsins. Ef þessi tekjustofn laskast eða hverfur mun það hafa ófyrirsjánlegar afleiðingar í búsetu í dreifðum byggðum sveitarfélags- ins. Útsvars- og fasteignaskattar margra sveitarfélaga í laxveiðihér- Telja náttúrulega laxastofna eiga að njóta vafans uðum Íslands geta skerst verulega ef svo skyldi fara, með alvarlegum afleiðingum fyrir þessi samfélög.“ Byggðarráð bendir jafnframt á að frumvarpið samræmist ekki þeirri markmiðsyfirlýsingu sem kemur nú- gildandi lögum um fiskeldi sem fel- ur í sér að vöxtur og viðgangur fisk- eldis megi ekki gerast á kostnað við- gangs og nýtingar villtra fiskstofna. „Í athugasemdum frumvarpsins sem varð að lögum nr. 71/2008 er sér- staklega tekið fram að þegar ekki fara saman hagsmunir þeirra sem eiga veiðirétt samkvæmt lax- og silungsveiðilögum og hins vegar hagsmunir þeirra sem stunda fisk- eldi eigi þeir síðarnefndu að víkja. Ekkert samráð hefur verið haft við sveitarfélög þar sem stór hluti íbúa á lífsafkomu sína að stóru eða öllu leyti undir tekjum af veiðihlunnind- um. Alþingi verður að grípa í taum- ana og forða afleiðingum þess að tugmilljónir laxa af framandi stofni verði hafðir í netpokum við strend- ur landsins með tilheyrandi hættu á sleppingarslysum. Í því samhengi er rétt að minna á að Erfðanefnd landbúnaðarins telur að áætlanir um stóraukið laxeldi í sjókvíum hafi ófyrirséðar afleiðingar og ráðleggur stöðvun á útgáfu leyfa.“ Að lokum segir í ályktun byggð- arráðs: „Byggðarráð Borgarbyggð- ar ítrekar mikilvægi þess að gætt sé fyllstu varfærni í því að auka fiskeldi í sjó þannig að ekki verði unninn óafturkræfur skaði á þeirri sérstöðu sem Ísland hefur í okkar heimshluta vegna hinna einstöku villtu laxa- stofna sem styrkja búsetu og veita atvinnu í gegnum verðmætar lax- veiðiár.“ mm Það er jafnan stór stund þegar laxveiðisumarið hefst. Hér er rennt fyrir fyrstu fiskana í fyrrasumar. Sindri Sigurgeirsson með fyrsta lax sumarsins á króknum en honum til aðstoðar er Einar Sigfússon. Ljósm. mm.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.