Skessuhorn - 27.03.2019, Side 10
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 201910
Strompur Sementsverksmiðjunn-
ar sálugu á Akranesi var felldur
síðastliðinn föstudag. Til stóð að
fella strompinn kl. 12:15 en því
var frestað. Það var síðan kl. 14:16
að dýnamíthleðsla í um 25 metra
hæð var sprengd og andartaki
síðar féll efri hluti strompsins til
jarðar. Upphaflega stóð til að fjór-
um sekúndum síðar yrði sprengd
hleðsla við rætur strompsins, en
við fyrri sprenginguna féll brak
úr skorsteininum á vírana og því
ekki hægt að fella neðri hlutann
strax. Þegar var hafist handa við
að tengja vírana við neðri sprengi-
hleðsluna að nýju og kl. 15:00
var sprengt við rætur stromps-
ins. Neðri hlutinn féll til jarðar
og þar með lauk rúmlega 60 ára
sögu sementsstrompsins sem eins
helsta kennileitis Akranesbæjar.
Fyrirtækið Work North ehf.
annaðist verkið í samstarfi við
undirverktakann Dansk Spræng-
ing Service, sem veitti sérfræðiað-
stoð ásamt því að skipuleggja og
stjórna fellingu strompsins.
Fjöldi áhorfenda
Mikill viðbúnaður var í bæn-
um þegar strompurinn var felld-
ur. Hús í nágrenninu voru rýmd á
meðan sprengt var og 160 metra
öryggissvæði sett upp hringinn í
kringum strompinn. Innan þess
svæðist fékk enginn að vera óvar-
inn. Lögregla lét loka nokkr-
um götum fyrir umferð og stóðu
björgunarsveitarmenn vaktina við
lokanirnar.
Skömmu fyrir fellingu stromps-
ins var gefið hljóðmerki samfellt
í eina mínútu og síðan látið vita
með öðrum hljóðmerkjum þeg-
ar sprengt var. Áhorfendur gátu
því búið sig undir að sjá stromp-
inn falla. Fjölmargir fylgdust með
viðburðinum á sérstökum áhorf-
endasvæðum vel utan öryggis-
svæðisins sem og annars staðar í
bænum. Þá fylgdust margir með
beinum útsendingum frá fellingu
strompsins á netinu. Má geta þess
að Skessuhorn sendi beint frá við-
burðinum í samstarfi við ÍA TV
og þegar mest lét var útsendingin
spiluð í 6.090 viðtækjum á sama
tíma.
Kennileiti liðins tíma
Sementsverksmiðja ríkisins var
reist á árunum 1956 til 1958.
Formlega tók verksmiðjan til
starfa við hátíðlega athöfn 14. júní
1958 þegar Ásgeir Ásgeirsson, þá-
verandi forseti Íslands, lagði horn-
steinn að verksmiðjunni. Skömmu
síðar komu fyrstu sementspokarn-
ir framleiddir á Akranesi á mark-
að. Framleiðslu var hætt síðla árs
2011. Alla tíð frá byggingu verk-
smiðjunnar hefur skorsteinninn
verið eitt helsta kennileiti bæjar-
ins, enda gnæfði hann í 68 metra
hæð yfir bænum. Meðan enn var
framleitt sement á Akranesi not-
uðu íbúarnir hann gjarnan til að
lesa í vindáttina.
Akraneskaupstaður eignaðist
Sementsreitinn árið 2014 og árið
2015 fékk starfshópur um framtíð
reitsins í hendur tillögur þriggja
arkitektastofa. Allar miðuðu þær
að blandaðri byggð á reitnum og
árið 2016 var unnið nýtt deili-
skipulag reitsins. Eftir að þeirri
vinnu lauk var samið við Work
North ehf. um niðurrif á bygg-
ingum og búnaði verksmiðjunn-
ar í byrjun desember 2017. Haf-
ist var handa við að rífa um ára-
mótin 2017 og 2018 og hafa þær
framkvæmdir staðið yfir síðan.
Næsta mál á dagskrá er að hreinsa
steypustyrktarjárnið úr steyptum
strompinum. Verktakinn selur
brotajárnið í áföngum og von er
á fyrsta skipinu sem sækir brota-
járnið í ágúst.
kgk
Strompurinn fallinn
Eitt helsta kennileiti Akranesbæjar til rúmlega sextíu ára
Búmm! Fyrri sprengihleðslan sprengd í um 25
metra hæð. Ljósm. kgk.
Fallið hefst. Ljósm. kgk. Efri hlutinn kominn hálfa leið niður. Ljósm. ki. Toppstykkið skellur á jörðinni. Ljósm. kgk.
Ekki tókst að sprengja neðri hlutann strax á eftir þeim efri, eins og til stóð. Hann
var sprengdur um kl. 15:00. Ljósm. ki.
Neðri hlutinn felldur. Ljósm. kgk.
Strompur ei meir. Séð frá Faxabraut. Ljósm. kgk.
Næsta mál á dagskrá er að hreinsa steypustyrktarjárnið úr strompnum. Nóg er af
því, eins og sjá má á myndinni. Ljósm. ki.
Nemendur leikskóla voru meðal þeirra sem gerðu sér dagamun og fylgdust með í
tilefni dagsins. Ljósm. gbh.
Mikill fjöldi fólks safnaðist saman til að fylgjast með viðburðinum. Hér má sjá
hvar hálfgerð umferðarteppa hefur myndast á Jaðarsbraut. Ljósm. gbh.
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri var ánægður þegar strompurinn hafði verið
felldur.