Skessuhorn - 27.03.2019, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 11
FUNDUR Á
AKRANESI MEÐ
ÞINGMÖNNUM VG
Með bréfi sem ritað var síðla í
nóvember á síðasta ári vakti Gunn-
laugur A Júlíusson sveitarstjóri
Borgarbyggðar máls á því við Veit-
ur að bæta þurfi bifreiðastæði og
aðstöðu við Deildartunguhver í
Reykholtsdal. Bendir hann á að
Deildartunguhver sé einstakt nátt-
úruvætti. „Með mikilli aukningu
á umferð ferðafólks á Íslandi, og
þar af leiðandi einnig í uppsveit-
um Borgarfjarðar, þá er Deildar-
tunguhver orðinn mjög fjölsótt-
ur ferðamannastaður. Hann hef-
ur mikið aðdráttarafl fyrir fólk sem
vill upplifa nándina við óbeislað-
an kraft náttúrunnar. Mikið skort-
ir hins vegar á að hvernum hafi ver-
ið sýndur sá sómi í uppbyggingu
við hann svo aðkoma ferðafólks sé
eins og æskilegt væri. Öryggismál-
um hefur verið vel sinnt en að öðru
leyti hefur ekki mikið áunnist. Sem
dæmi má nefna að fyrsta aðkoma
ferðafólks að Deildartunguhver er
holótt og illa hirt malarplan. Það
gefur auga leið að aðkoman að
þessum mikla og einstæða hver er
ekki aðlaðandi og ekki eins og eðli-
legt verður að teljast. Aðkoman að
Deildartunguhver stingur í stúf við
umhverfi annarra virkjana OR því
yfirleitt er það sameiginlegt með
stöðvarmannvirkjum orkuveitunn-
ar að aðkoma að þeim er til mikillar
fyrirmyndar,“ skrifar Gunnlaugur í
nóvember. Í samtali við Skessuhorn
kemur fram að Veitur hafi ekki enn
svarað erindinu.
Bæta verður ásýnd
Gunnlaugur bendir á það í erindi
sínu að hverinn sé ekki einung-
is eitt af merkilegri náttúruvættum
Íslands heldur hafi hann stöðu sem
vatnsmesti hver í Evrópu. „Í hvern-
um spretta fram 180 sekúndulítr-
ar af vatni sem er um 100°C heitt.
Um áratuga skeið hefur Deildar-
tunguhver verið uppspretta vatns
sem nýtt hefur verið til húshitunar
í Borgarnesi og Akranesi. Upphaf-
lega var það gert undir nafni Hita-
veitu Borgarness og Akraness en nú
er veitan hluti af samstæðu Orku-
veitu Reykjavíkur. Hverinn hefur
þannig bætt búsetuskilyrði og auk-
ið lífsgæði í héraðinu í hinu stóra
samhengi fyrir utan margt annað.
Vatn úr Deildartunguhver hefur
einnig nýst til uppbyggingar á at-
vinnustarfsemi í nágrenni hans.“
Bendir Gunnlaugur á að bæta
verði ásýnd og umgjörð Deildart-
unguhvers með því að malbika bíla-
planið og merkja það á tilheyrandi
hátt. „Það myndi gera alla aðkomu
og umgjörð hversins myndarlegri
og bæta upplifun ferðafólks sem vill
upplifa nálægð við þetta náttúruun-
dur. Hér með er því skorað á Veitur
ohf að sýna Deildartunguhver þann
sóma sem hann á skilið með því að
ráðast í fyrrgreinda framkvæmd á
vori komanda þegar frost er farið
úr jörðu.“
Ætla að bera í og slétta
bílaplan
„Okkur þykir leitt að farist hafi fyr-
ir að svara Gunnlaugi því við erum
alltaf tilbúin að ræða við sveitar-
stjórn, og aðra sem hagsmuna eiga
að gæta á svæðinu, um framtíðar-
fyrirkomulag við Deildartungu-
hver,“ segir í skriflegu svari sem
Ólöf Snæhólm Baldursdóttir upp-
lýsingafulltrúi sendi Skessuhorni
við fyrirspurn þessa efnis. Þar kem-
ur fram að undanfarin ár hafi Veit-
ur verið í miklum framkvæmdum
við Deildartunguhver sem auki
öryggi ferðafólks: „Meðal annars
með uppsetningu öryggishandriða
og endurbótum á göngustígum.
Í sumar verða eldri upplýsinga-
skilti við hverinn tekin niður og ný
skilti sett upp. Veitur taka undir að
ástand bílaplans gæti verið betra og
munu bregðast við með því að láta
bera í og slétta planið,“ segir Ólöf
Snæhólm. mm
Skorar á Veitur að bæta bílastæði og
merkingar við Deildartunguhver
Mynd tekin við hverinn sumarið 2017. Í forgrunni er malarstæði fyrir bíla, hverinn til vinstri og til hægri er nýbygging Krauma.