Skessuhorn - 27.03.2019, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 15
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 2. apríl 2019
kl. 20:30 í Bókhlöðu Snorrastofu
Í fyrirlestrinum verður farið yfir
sögu klausturhalds í landinu og
hvernig konur og nýjar reglur
um sambúðarmál fléttuðust í
deilur kirkjuvalds og höfðingja.
Kaffiveitingar og umræður
Aðgangur kr. 500
Verið velkomin
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Klausturhald,
konur og pólitík
Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur flytur
Við höldum 1. vetrardag hátíðlegan og
blásum til veislu í Kaupfélagi Borgfirðinga
laugardaginn 25. október 2008 kl. 12-15
Flugger litir veita ráðgjöf og verða með tilboð
Mjólka kynnir vörur sínar
Kynning á hreinsiefnum frá Kemi
Kynning og tilboð á Kerckhaert
járningavörum, umboðsmaður
á staðnum, býður upp á ís
* Vetrarskeifurnar með
breiða teininum komnar *
Tískusýning á vetrarfatnaði,
tilboð á fatnaði frá 66°N
10 - 50 % afsláttur af völdum vörum
í versluninni
Royal Canin, glaðningur fylgir
öllum pokum af hunda-og kattamat.
Umboðsmaður á staðnum
Kaffi og rjómaterta
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Íbúar í Hvalfjarðarsveit – Akranesi
Deildarfundur Hvalfjarðardeildar
Kaupfélags Borgfirðinga verður haldinn að
Laxárbakka fimmtudaginn 28. mars 2019 kl. 20:30.
Dagskrá:
Rekstur KB 2018 og horfur á árinu 2019, 1.
rekstrur og fjárfestingar
Kosning deildarstjóra og fulltrúa á aðalfund KB 2.
2019
Félagið býður fundarmönnum upp á kaffi og með því!
Deildarfundur
Hvalfja ða deildar
Kaupfélags Borgfirðinga
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
Í síðustu viku kom flutningaskipið
Citadel með salt til Ólafsvíkurhafn-
ar. Sökum veðurs var ekki hægt að
hefja uppskipun fyrr en sólarhring
eftir komu. Skipað var upp þúsund
tonnum af salti og fóru 300 tonn í
Valafell, 600 tonn í KG fiskverk-
un en 100 tonn voru sett á lager á
hafnarbakkanum. Til flutninganna
voru notaðir þrír trailerar frá Ragn-
ari og Ásgeiri. Þurfti fimm lyftara,
þrjá í Ólafsvík og tvo í Rifi. Cita-
del sem er frá Hollandi er skip af
stærri gerðinni, rúmlega 110 metra
langt og 14 metra breitt og um
4000 tonn.
þa
Með þúsund tonn af salti
Á fimmtudagskvöld tók sveitar-
félagið Borgarbyggð formlega
við hugbúnaðinum OneLandRo-
bot. Um er að ræða nýtt umsókna-
og úttektarkerfi byggingafulltrúa
sveitarfélagsins. Hugbúnaðinum
er ætlað að gera byggingaleyfisum-
sóknir skilvirkari og aðgengilegri
fyrir húsbyggjendur, ásamt því að
gera umsækjendum og öllum sem
koma að verkinu kleift að fylgjast
með stöðu mála í gegnum íbúagátt
sveitarfélaganna. Borgarbyggð er
með fyrstu sveitarfélögum lands-
ins til að tölvuvæða þennan hluta
stjórnsýslunnar. Vonir standa til
að hugbúnaðarlausnin komi sér vel
fyrir umsækjendur, auk þess sem
hún geti eflt nauðsynlegt utanum-
hald og eftirfylgni við umsóknir á
sviði byggingafulltrúa.
Með innleiðingu hugbúnaðar-
ins munu allar umsóknir um bygg-
ingaleyfi og tilkynningar um fram-
kvæmdir fara fram rafrænt í gegn-
um íbúagáttina. Byggingastjórar
og iðnmeistarar skrá sig sömuleiðis
rafrænt, svo ekki þarf lengur að skila
inn undirskriftum til byggingafull-
trúa á pappír. Þar með sparast ekki
aðeins pappír heldur einnig tími,
því með aðstoð tækninnar geta allir
sem koma að tilteknu verki skilað
inn undirskriftum með rafrænum
skilríkjum hvar sem þeir eru staddir
í heiminum, svo lengi sem þeir geta
tengst internetinu.
Fram kom í máli Ingimars Arn-
dal og Hrafnkels Erlendssonar frá
OneSystems, að með innleiðingu
kerfisins mætti spara allt að 40%
þess tíma sem í dag fer í pappírs-
vinnu og afgreiðslu. Þeir fóru síðan
yfir OneLandRobot hugbúnaðar-
lausnina, sögðu frá því hvernig hún
virkaði og sýndu hvernig á að nota
hana. Jafnframt sýndu app sem
beintengt er kerfinu og er hand-
hægt við eftirlit og úttektir á verk-
um.
Það voru Gunnlaugur A. Júlíus-
son sveitarstjóri og Þórólfur Ósk-
arsson byggingafulltrúi sem tóku
formlega við kerfinu fyrir hönd
Borgarbyggðar. Töluverðar um-
ræður spunnust um hugbúnaðinn
og þeir sem mættir voru á kynn-
inguna spurðu þá Ingimar og
Hrafnkel spjörunum úr. Var ekki
annað að heyra á þeim sem við-
staddir voru en að þeim litist vel á
nýja hugbúnaðinn og töldu að hann
ætti eftir að koma sér vel í framtíð-
inni.
kgk
F.v. Hrafnkell Erlendsson og Ingimar Arndal frá OneSystems, sem afhentu hugbúnaðinn og sýndu hvernig hann virkar,
Þórólfur Óskarsson, byggingafulltrúi Borgarbyggðar og Gunnlaugur A. Júlíusson, sveitarstjóri Borgarbyggðar.
Hluti viðstaddra fylgist náið með kynningu Hrafnkels og Ingimars á hugbúnaðarlausninni OneLandRobot.
Tóku við nýjum hugbúnaði
byggingafulltrúa
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is