Skessuhorn - 27.03.2019, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 201916
Þegar gengið er inn á veitingastað-
inn Sker í Ólafsvík finnur maður
vel fyrir nálægð hafsins. Það er
Lilja Hrund Jóhannsdóttir, 25 ára
kokkur, sem er eigandi staðarins
en hún var að undirbúa daginn á
Skeri þegar blaðamaður Skessu-
horns hitti hana þar á föstudaginn
og ræddi við hana um lífið og veit-
ingareksturinn. Lilja er fædd og
uppalin í Rifi og eftir grunnskóla
hóf hún nám í Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði en fann
fljótlega að hún vildi breyta til og
prófa eitthvað nýtt. Hún fór þá í
Hússtjórnarskólann á Hallorms-
stað þar sem hún fann sig í mat-
reiðslunni. „Ég var kannski ekki
sú besta í handavinnunni en ég
útskrifaðist með hæstu einkunn
í matreiðslu og fann að þar átti
ég heima. En mér fannst ég samt
ekki eiga heima í kokkastarfi því
ég trúði því að það væri bara fyrir
karla,“ útskýrir Lilja. Eftir útskrift
hélt hún því aftur í FSN og fór að
vinna í eldhúsinu á Hótel Hellis-
sandi. „Á hótelinu fann ég áhug-
ann á matreiðslunni bara aukast
og þá ákvað ég að láta vaða og
skráði mig í kokkanám. Á meðan
vinkonur mínar stefndu á að læra
förðunarfræði, hjúkrunarfræði eða
eitthvað svona venjulegt fann ég
aldrei almennilega hvað ég vildi
læra, ekki fyrr en ég byrjaði og
fann mig í kokknum,“ segir Lilja
sem hóf námið árið 2014.
Var ekki á leiðinni
í rekstur
Lilja útskrifaðist sem kokkur í des-
ember 2017 og rétt hálfu ári síð-
ar opnaði hún Sker í Ólafsvík.
„Ég var ekkert á leiðinni að opna
veitingastað nærri því strax,“ seg-
ir Lilja en eftir nám vann hún um
tíma á Vox veitingastað á Hilton
hótel í Reykjavík. „Ég vann á Vox
með námi og var á samningi þar.
Eftir útskrift fékk ég boð um gott
starf þar, sem ég þáði. Það voru svo
mamma og pabbi sem plötuðu mig
hingað í Ólafsvík aftur. Þau keyptu
þetta húsnæði og spurðu hvort ég
vildi ekki opna veitingastað hér.
Hvernig segir maður eiginlega nei
við því,“ segir Lilja og hlær. „Mér
fannst ég þurfa að gera svo margt
áður en ég myndi taka þetta skref,
ferðast, prófa að vinna á fleiri stöð-
um og bara lifa smá lífinu áður en
ég færi að binda mig við einn stað.
En ég hugsaði svo með mér að þó
ég opni veitingastað er ég ekkert
föst hér alltaf, það er nægur tími
fyrir allt hitt sem ég gæti viljað
gera seinna,“ segir hún og bros-
ir. Aðspurð segist hún þó aldrei
hafa séð fyrir sér að búa til lengd-
ar í Reykjavík. „Ég er sveitastelpa
og mig langaði vissulega alltaf að
koma heim aftur og búa hér, þó
ég hafi ekki verið á leiðinni heim
strax.“ Lilja tók þátt í herferð und-
ir yfirskriftinni Kvennastarf, þar
sem hún vildi vekja athygli á því
að kokkastarfið væri ekki bara fyr-
ir karla. „Kynjahlutföllin í kokka-
stéttinni eru mjög ójöfn og karlar í
miklum meirihluta. En þetta starf
er ekki síður fyrir konur og ég er
ánægð að sjá að þeim hefur fjölg-
að. Í mínum útskriftarhópi vor-
um við sex konur sem þótti mjög
gott.“
Sker er fjölskyldustaður
Auk þess að vera að koma á lagg-
irnar sínum eigin veitingastað er
Lilja einnig í meistaranámi og
stefnir á útskrift í maí. „Ég ákvað
að fara strax í meistaranámið,
svona á meðan ég kann enn að
nota excel og svona,“ segir Lilja
og hlær. „En þetta er mikil vinna
og það er lítill tími fyrir annað en
skóla og vinnu núna. Um leið og
ég á einn dag í fríi hér bruna ég í
bæinn í skólann. Og svo erum við
enn á fyrsta ári með veitingastað-
inn og enn að átta okkur bara á
öllu svo ég er eiginlega alltaf hér,
líka þegar ég er í fríi. Ég er stund-
um skömmuð af starfsfólkinu fyrir
að hanga alltaf hér þegar ég á að
vera heima. Það er bara svo erfitt
að sleppa takinu og mig langar svo
mikið að vera alltaf hér og fylgjast
með og bara vera með í öllu,“ seg-
ir Lilja og bætir því við að á fjöl-
skyldan hennar ver öll miklum
tíma á veitingastaðnum. „Þetta er
fjölskyldustaður. Mamma er með
litla búð hér við hliðina og það er
innangengt í hana. Svo vinnur hún
oft hér með mér og pabbi er hús-
vörðurinn okkar sem sér um að
allt sé í lagi. Við erum bara eigin-
lega alltaf öll hér, ég, mamma og
pabbi,“ segir Lilja.
Bestu pizzurnar
Á Skeri er fjölbreyttur matseð-
ill en Lilja segir áhersluna vera að
geta boðið upp á mat við öll tilefni.
„Við viljum vera með matseðil sem
hentar hvort sem fólk vill fara fínt
út að borða, til dæmis við sérstakt
tilefni, eða þegar fólk fer út að
borða til að gera sér dagamun. En
hvort sem það er fínni maturinn
eða hversdagslegri matur er mark-
miðið að hafa bara góð hráefni og
besta mat sem ég get boðið upp á.
Ég lagði til dæmis mikla áherslu á
að pizzurnar okkar væru þær bestu
á svæðinu,“ segir Lilja en á Skerinu
er hægt að fá súrdeigspizzur með
fjölbreyttu áleggsúrvali. „Ég reyni
að hafa pizzurnar svona aðeins
öðruvísi en þessar hefðbundnu, þó
ég bjóði vissulega upp á allar hefð-
bundnu áleggstegundirnar líka.
En ég er til dæmis með döðlur
og ýmsar sósur og svona eitthvað
aðeins öðruvísi í bland við þetta
sem fólk fær sér venjulega á pizz-
ur,“ segir Lilja. Þá gerir hún all-
an mat frá grunni á veitingastaðn-
um, hvort sem það eru kökurn-
ar sem hún baka eða olíurnar sem
eru notaðar á matinn. „Hvítlauks-
olían okkar, majonesið, brauðið og
allt sem við bjóðum upp á er unn-
ið frá grunni hér. Og ég legg mikla
áherslu á að nota eins góð hráefni
og ég get og kaupi það sem ég get
hér í næsta nágrenni,“ segir Lilja.
Fiskurinn í uppáhaldi
Spurð hvort hún eigi sér uppá-
halds rétt á Skerinu segir Lilja
ekki geta gert upp á milli en seg-
ir þó skemmtilegast að elda fisk-
inn. „Ef ég fæ að elda fisk er deg-
inum bjargað. En ég fæ reyndar
að elda svona 20-30 fiskrétti á dag
svo það eru allir daga nokkuð góð-
ir bara,“ segir hún og brosir. All-
ur fiskurinn á Skerinu kemur beint
upp úr Breiðafirði. „Ég býð bara
upp á ferskan fisk sem kemur beint
hér upp úr sjónum við Breiðafjörð.
Það er svo skemmtilegt að geta
sagt fólki frá því að fiskurinn þeirra
er bara rétt nýkominn upp úr sjón-
um hér beint fyrir utan gluggann,“
segir Lilja og bendir út um stóra
glugga þar sem höfnin blasir við.
„Ég legg líka mikið upp úr fiski-
réttunum en fiskur er svo gott hrá-
efni og sem býður upp á svo marga
möguleika. Það er ekki bara hægt
að sjóða fisk og borða hann með
kartöflum. Fiskurinn er líka mjög
vinsæll á matseðlinum og ég hef
fengið mikið hrós fyrir góðan fisk.
Einn fararstjóri sagði við mig að ég
væri orðin fræg fyrir fiskinn,“ segir
Lilja. Fiskurinn og hafið spila stór-
an part í útliti staðarins og nafni.
„Nafnið Sker kom eiginlega til því
mig langaði að tengja saman sjó-
inn og eldhúsið. Sker getur tákn-
að sker úti í sjó og svo getur það
líka táknað að skera eitthvað, „hún
sker fiskinn“. Allt útlit staðarins
tengdum við líka sjónum. Spýt-
urnar á veggjunum eru úr gamalli
bryggu frá Rifi en langafi minn gaf
hluta af landareign sinni til þess að
láta byggja þessa bryggju. Bryggj-
an var svo rifin og ég ákvað að taka
hana og nýta hér,“ útskýrir Lilja
og bendir blaðamanni á bryggj-
una sem klæðir einn vegg veitinga-
staðarins. „Ljósin fyrir ofan borð-
in eru líka bara ryðguð rör sem ég
lét liggja í sjónum í svolítinn tíma
til að láta ryðga. Allar skrúfur voru
líka látnar ryðga til að ná þessu út-
liti,“ segir Lilja.
Veisluþjónusta
Á Skeri er einnig veisluþjónusta
og segir Lilja nóg hafa verið um
að vera í því í vetur. „Ég elska að
gefa fólki að borða í veislum og ég
lærði mikið inn á veisluþjónustu
þegar ég vann á Vox. Það passar
líka vel fyrir svona veitingastað að
bjóða upp á veisluþjónustu því það
er mest að gera í því yfir veturinn
þegar það er minna af fólki á veit-
ingastaðnum,“ segir Lilja. „Það
hefur líka tekist rosalega vel til, ég
hef séð um árshátíðir og þorrablót
og alltaf heppnast allt vel. Ég hef
líka alltaf gaman að þessu enda svo
heppin að vinna við áhugamálið
mitt. Ég get endalaust dundað mér
í eldhúsinu, hvort sem það er að
elda hér á Skerinu eða fyrir veisl-
ur, þetta er allt skemmtilegt,“ seg-
ir Lilja. Aðspurð segist hún vera
mjög virk og líði best ef hún hefur
alltaf nóg að gera. „Það er kannski
ástæðan fyrir því að ég hleð alltaf
á mig verkefnum. Ég þarf alltaf að
hafa eitthvað að gera. Og í þau fáu
skipti sem ég fæ dauða stund fer
ég í blak eða fótbolta eða eitthvað,
svona til að kúpla mig aðeins frá
eldhúsinu stundum, það er nauð-
synlegt líka,“ segir Lilja og brosir.
arg
„Ef ég fæ að elda fisk er deginum bjargað“
-segir Lilja Hrund, kokkur og eigandi Skers í Ólafsvík
Lilja er ungur kokkur í Snæfellsbæ
sem opnaði Sker veitingastað í
Ólafsvík síðasta sumar.
Mynd af Lilju frá því hún tók þátt í
herferðinni Kvennastörf.
Ljósm. aðsend.
Hér sést hvernig gömul bryggja í Rifi klæðir einn vegginn á veitingastaðnum.