Skessuhorn - 27.03.2019, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 201918
Það var gleðileg stund í Borgarnesi
síðastliðinn föstudag þegar hald-
ið var upp á sjötíu ára afmæli Björg-
unarsveitarinnar Brákar. Dagskrá-
in hófst kl. 17:00 þegar eldri félagar
tóku fyrstu skóflustunguna að nýju
björgunarsveitarhúsi að Fitjum 2,
með aðstoð Guðna Th. Jóhannes-
sonar, forseta Íslands. Eftir að pilt-
arnir höfðu farið langt með grunn-
inn að nýja húsinu var förinni heit-
ið á Hótel Borgarnes þar sem boðið
var til afmælisveislu og hátíðardag-
skrár í tilefni dagsins. Sett var upp lít-
il sýning á björgunarsveitarbúnaði,
bæði gömlum og nýjum. Meðal ann-
ars mátti sjá þar nokkra eldri búninga
sem sveitin hefur notað við björg-
unarstörf í áranna rás. Komu þeir úr
fórum Guðna Haraldssonar, fyrrver-
andi félaga sveitarinnar. Guðni færði
sveitinni síðan búningana til eignar í
lok sýningarinnar.
Kveðjur og gjafir
Einar Pálsson var formaður afmælis-
nefndar og tók að sér að stjórna af-
mælisveislunni. Hann bauð gesti
velkomna og kynnti til leiks Ein-
ar Örn Einarsson, formann Björg-
unarsveitarinnar Brákar, sem flutti
stutt ávarp. Þór Þorsteinsson, vara-
formaður Landsbjargar, bar sveit-
inni kveðju frá stjórn Landsbjarg-
ar og færði sveitinni sjúkratösku og
sjúkrakassa að gjöf frá slysavarna-
félaginu. Guðbrandur Örn Arnarson
frá Landsbjörgu fór yfir allt það nýj-
asta í aðgerðastjórnun í fræðsluerindi
sínu. Gunnlaugur Júlíusson, sveitar-
stjóri Borgarbyggðar, færði björgun-
arsveitinni kveðju sveitarstjórnar og
gjöf frá sveitarfélaginu og María Jóna
Einarsdóttir, formaður Kvenfélags
Borgarness, afhenti björgunarsveit-
inni peningagjafir í tilefni afmælisins.
Annars vegar 250 þúsund króna gjöf
frá kvenfélaginu en einnig 50 þúsund
króna peningagjöf frá afkomendum
foreldra hennar, Einars Guðbjarts-
sonar og Guðrúnar Betu Grímsdótt-
ur, með ósk um að sú gjöf yrði nýtt til
einhvers er tengist sjóbjörgun.
Útkall í miðri veislu
Elín Matthildur Kristinsdóttir sagði
frá jákvæðri reynslu sinni af því að
ganga til liðs við björgunarsveitina
fyrir þremur árum síðan. Í miðju er-
indi Elínar Matthildar fór að heyr-
ast í fjölmörgum farsímum í saln-
um. Útkall hafði borist og björg-
unarsveitarmenn streymdu úr saln-
um. Útkall þetta var reyndar hluti af
dagskrá kvöldsins og ætlað að sýna
hvernig brugðist hefði verið við hefði
raunverulegt boð um aðstoð borist.
„Svona virkar þetta,“ sagði Elín og
útskýrði að björgunarsveitarmenn
stykkju frá hverju sem er þegar skyld-
an kallaði, hvort sem þeir væru stadd-
ir í vinnu eða veislu. Þakkaði hún
vinnuveitendum og öðrum fyrir þann
stuðning og skilning sem björgunar-
sveitarfólki er sýndur þegar boð berst
og það þarf að stökkva í útkall fyrir-
varalaust.
Hjónin Bjarni K. Þorsteinsson og
Guðrún Kristjánsdóttir voru heiðruð
fyrir starf sitt í þágu björgunarsveit-
arinnar í áranna rása, en Guðrún var
til að mynda gjaldkeri Brákar í hvorki
meira né minna en 27 ár.
Jakob Guðmundsson, gjaldkeri
Brákar og formaður húsbygging-
arnefndar, rakti sögu húsbygginga
sveitarinnar og sagði frá nýja björg-
unarsveitarhúsinu sem stendur til að
reisa að Fitjum 2 í Borgarnesi. Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands og
verndari Landsbjargar, árnaði björg-
unarfélögum heilla í tilefni afmæl-
isins. Hann kvaðst ekki hafa staðist
freistinguna að líta til sögunnar og
rifjaði upp söguna af Brák, sem gætti
Agli Skallagrímssyni og galt fyrir það
með lífi sínu. Af sama meiði væri
runnin sú samvinna, samúð og sam-
heldni sem björgunarsveitarfólk sýnir
í verki þegar kallið kemur.
Einar veislustjóri tók að lokum til
máls, þakkaði velunnurum sveitar-
innar fyrir að gleðjast með björgunar-
sveitarfólki í tilefni dagsins. Þá þakk-
aði hann Hótel Borgarnesi sem lagði
til húsnæði og veitingar afmælisveisl-
unnar endurgjaldslaust og styrkti
þannig sveitina. Einar færði Þorsteini
Magnússyni hótelstjóra stóran Neyð-
arkall að launum sem þakklætisvott
frá björgunarsveitinni.
Ánægja með daginn
Einar Örn Einarsson, formað-
ur Björgunarsveitarinnar Brákar, er
hæstánægður með hvernig til tókst,
en um 100 manns voru viðstaddir
skóflustunguna og 150 gestir mættu
í veisluna. „Mér fannst afmælið tak-
ast mjög vel og miðað við hvernig
veðrið þróaðist á afmælisdaginn tókst
þetta eiginlega betur en við þorðum
að vona. Ég skal alveg viðurkenna að
við áttum allt eins von á því að þeg-
ar við fengum platútkallið í veislunni
að jafnvel væri um að ræða alvöru út-
kall,“ segir Einar í samtali við Skessu-
horn. „En við í Björgunarsveitinni
Brák erum mjög ánægð með daginn
og þeir gestir sem ég hef rætt við eru
það líka. Gaman var að fá gömlu fé-
laga sveitarinnar til að taka skóflu-
stunguna að nýja húsinu og á hótel-
inu áttum við síðan notalega stund.
Sérstaklega fannst mér ánægjulegt
að forsetinn hafi séð sér fært að vera
með okkur allan tímann,“ segir Einar
Örn að endingu. kgk
Björgunarsveitin Brák er sjötug
Skóflustunga og stórveisla á afmælisdaginn
Veislugestir skoða björgunarsveitarbúnað en slíkur búnaður, bæði gamall og nýr,
var til sýnis í afmælisveislunni.
Spáð í spilin og rýnt í teikningar að nýja björgunarsveitarhúsinu, sem hægt var að
skoða í veislunni.
Einar Örn Einarsson, formaður Björgunarsveitarinnar Brákar, í ræðustól.
Elín Matthildur Kristinsdóttir flutti síðar um kvöldið ávarp þar sem hún sagði frá
jákvæðri reynslu sinni af því að hafa gengið í björgunarsveitina fyrir þremur árum
síðan.
Einar Pálsson, formaður afmælisnefndar, glaður í bragði.
Kristín Frímannsdóttir og Vigdís Ósk Viggósdóttir.
Afmælisdagskráin hófst þegar eldri félagar Björgunarsveitarinnar Brákar tóku fyrstu skóflustunguna að nýju björgunar-
sveitarhúsi að Fitjum 2 í Borgarnesi. Við moksturinn nutu þeir aðstoðar Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og verndari Landsbjargar, á tali við Jakob
Guðmundsson, gjaldkera Björgunarsveitarinnar Brákar, að skóflustungu lokinni.