Skessuhorn - 27.03.2019, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 19
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Strandabyggð óskar eftir að ráða byggingarfulltrúa til starfa með aðsetur á Hólmavík. Auk
Strandabyggðar sinnir starfsmaðurinn verkefnum byggingarfulltrúa fyrir Árneshrepp, Dalabyggð,
Kaldrananeshrepp og Reykhólahrepp.
Um er að ræða 100% starf. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa
nýtt starf á traustum grunni. Helstu verkefni eru samkvæmt lögum og samþykktum sveitarfélaganna hverju
sinni á sviðum byggingareftirlits, samkvæmt skipulags- og mannvirkjalögum.
BYGGINGARFULLTRÚI
Starfssvið
• Ábyrgð á stefnu sveitarstjórnanna í málaflokkum
sem undir hann heyra
• Framkvæmd byggingarmála, byggingareftirlits
• Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir
og útreikningar
• Undirbúningur og eftirfylgni funda nefnda
sveitarfélaganna er sjá um byggingarmál
• Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar
sem sinna verkefnum á sviði byggingarmála
• Önnur tilfallandi verkefni svo sem varðandi
viðhald, minniháttar hönnunarverkefni o.s.frv.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun á sviði byggingarmála skv. 8. gr.
mannvirkjalaga nr. 160/2010
• Þekking og reynsla að þeim málaflokkum sem
falla undir sviðið
• Þekking og reynsla af stjórnun, áætlanagerð
og rekstri
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
er æskileg
• Metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni
og leiðtogahæfileikar
• Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir
samstarfs- og samskiptahæfileikar
• Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti
Nánari upplýsingar veitir:
Geirlaug Jóhannsdóttir,
geirlaug@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur til og með 14. apríl nk.
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi
kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
við viðkomandi stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um.
Aðalfundur Símenntunarmið-
stöðvarinnar á Vesturlandi verður
haldinn miðvikudaginn 3. apríl 2019,
kl. 10:15 á Hótel Hamri í Borgarnesi.
Dagskrá:
Ársskýrsla – farið yfir starfsemi síðasta árs•
Endurskoðaður ársreikningur lagður fram•
Kosning í stjórn til næstu tveggja ára•
Önnur mál•
Allir velkomnir!
Aðalfundarboð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Nemendafélag Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi frumsýndi
söngleikinn Rock of Ages fyrir
fullu húsi í Bíóhöllinni á Akranesi
á föstudagskvöldið síðasta. Söng-
leikurinn gerist í Los Angeles þar
sem klassísk rokklög frá áttunda
áratugnum ráða ríkjum. Sherrie er
ung stúlka sem flytur til LA með
stóra drauma. Hún fær vinnu á
skemmtistaðnum Bourbon room
en framtíð staðarins er ekki traust.
Það stendur til að loka staðn-
um en aðdáendur Bourbon room
mótmæla og berjast fyrir að halda
staðnum opnum.
Stuðið réði ríkjum á sviðinu,
og í salnum öllum, og tekst leik-
urum einstaklega vel að halda at-
hygli áhorfenda. Þrátt fyrir held-
ur dramatískan söguþráð var mik-
ill húmor í sýningunni og mik-
ið var hlegið í salnum. Tónlist-
ina ættu flestir að þekkja en hún
samanstendur af stórsmellum átt-
unda áratugarins, lög frá Bon Jovi,
Twisted Sister, Poison, Styx og
fleiri rokkhljómsveitum. Krakk-
arnir fluttu lögin öll mjög vel og af
miklu öryggi. Söngurinn heyrðist
vel og ekki var annað að sjá en öll-
um hafi liðið vel á sviðinu. Þá var
hljómsveitin á sviðinu allan tímann
og spilaði stórt hlutverk í sýning-
unni. Nemendafélagið vann sýn-
inguna í samstarfi við Tónlistar-
skóla Akraness og skilaði samstarf-
ið sér vel í vel framsettri tónlist.
Leikurinn var ekki síðri en tón-
listin en allir stóðu sig með stakri
prýði, það heyrðist vel í öllum og
ekki að finna annað en allir væru
með sínar línur alveg á hreinu.
Mjög gott flæði var á sýningunni
og til að poppa upp stemninguna
og eyða út öllum dauðum stund-
um var sögumaður sem hélt áhorf-
endum vel upplýstum um hvað var
að gerast hverju sinni. Það kom
vel út og braut upp sýninguna og
dramatískan söguþráð með húmor
sem passaði mjög vel inn í. Sviðs-
myndin var góð og gerði mikið
fyrir sýninguna og upplifunin var
dálítið eins og maður væri kom-
inn inn á gamlan rokkklúbb í bíó-
mynd. Notast var við skjávarpa til
að gefa betri mynd af því hvar sýn-
ingin gerist og kom það mjög vel
út. Viðtökur gesta á frumsýning-
unni bentu til þess að allir væru
hæstánægðir og fengu krakkarnir
standandi lófatak í lok sýningar.
Þetta var vel heppnuð og flott sýn-
ing sem vert er að sjá.
arg
Mikið stuð í salnum á frumsýn-
ingu Rock of Ages
Starfsmaður
Óskum eftir starfsmanni í fullt starf
í smiðju okkar á Grundatanga.
Upplýsingar, Björn í síma 660 3537
eða bjorn@stalsmidjan.is
Atvinna á Grundartanga
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9