Skessuhorn - 27.03.2019, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 201928
Sumarlesari
vikunnar
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Þriðjudaginn 2. apríl næstkomandi
flytur Steinunn Kristjánsdóttir forn-
leifafræðingur fyrirlestur í Bókhlöðu
Snorrastofu um klausturhald, konur
og pólitík.
Kristnitakan um árið 1000 fól í sér
nýja stjórnskipan í landinu, byggðri
á reglugerðum frá höfuðstöðvum
kaþólsku kirkjunnar í Róm. Í fyrstu
gekk ágætlega að fylgja þeim eftir en
eftir að Gregor páfi VII hóf að inn-
leiða siðbætur sínar upp úr miðri 11.
öld urðu um þetta deilur. Hérlendis
var deilt um staðina, skipan í kirkju-
leg embætti, refsingar og – síðast en
ekki síst – ríkjandi sambúðarform.
Eftir að deilunum lauk undir lok 13.
aldar náði Rómarkirkja að koma sér
í býsna vænlega stöðu hér á landi,
m.a. í gegnum öflugt klausturhald. Í
fyrirlestrinum verður farið yfir sögu
klausturhalds í landinu á kaþólskum
tíma og það hvernig konur og nýjar
reglur um sambúðarmál fléttuðust í
deilur kirkjuvalds og höfðingja. Fyr-
irlesturinn hefst að venju kl. 20:30
og boðið verður til kaffiveitinga og
umræðna. Aðgangseyrir er kr. 500.
Steinunn fæddist í Barðastrandar-
sýslu árið 1965. Hún stundaði m.a.
nám við Héraðsskólann í Reykholti
en lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Ísafirði 1986 og stundaði
síðan nám í fornleifafræði við háskól-
ann í Gautaborg. Þaðan lauk hún BA
prófi í greininni árið 1993 og meist-
araprófi ári síðar. Doktorsprófi lauk
hún við sama skóla árið 2004. Stein-
unn stjórnaði fornleifarannsóknum
á Skriðuklaustri frá 2002 til 2012 og
hefur sinnt rannsóknum á klaustur-
haldi hérlendis síðan þá. Hún hóf
störf sem lektor í fornleifafræði árið
2006, fékk framgang í stöðu dósents
árið 2010 og síðan stöðu prófessors
árið 2012. Steinunn er einnig deild-
arforseti Sagnfræði- og heimspeki-
deildar HÍ.
Ýmislegt fleira á döfinni
Vorið verður litað fjölbreytilegu
menningarlífi í Reykholti. Auk fyr-
irlesturs Steinunnar Kristjánsdótt-
ur 2. apríl um klausturhald, konur
og pólitík má nefna að síðasta nám-
skeiðskvöld Ármanns Jakobssonar
um Tolkien og íslenskar miðaldabók-
menntir verður mánudaginn 1. apríl
kl. 20 í Bókhlöðu Snorrastofu. Efni
kvöldsins verður: Tolkien, ragna-
rök og hetjuskapur – Snorra-Edda.
Reynir Hauksson Flamenco-gítar-
leikari heldur tónleika í Reykholts-
kirkju mánudaginn 8. apríl kl. 20:30
og þann 30. apríl verður síðasti fyrir-
lestur vetrarins í röðinni Fyrirlestrar
í héraði, en hann flytur Trausti Jóns-
son veðurfræðingur og áhugamað-
ur um tónlist: „Var hún á leiðinni?“
Svipast um eftir upphafi íslenskrar
dægurtónlistar – með fáeinum tón-
dæmum.
Barnamenningarhátíð
Miðvikudaginn 8. maí blæs Snorra-
stofa til barnamenningarhátíð-
ar í Reykholti í annað sinn með
miðstigsnemendum skóla úr hér-
aðinu. Fyrsta hátíðin af þessu tagi
var haldin vorið 2016. Dagur-
inn hefst með því að börnin leggja
fram eigin sköpun sem orðið hef-
ur til í námi á miðstigi um miðald-
ir Snorra Sturlusonar og eftir það
verður þeim boðið að njóta mið-
aldastemningar, sem reidd verður
fram af öðrum handverks- og lista-
mönnum. Má þar nefna leiksýn-
inguna Gísla Súrsson frá Kome-
díuleikhúsinu, ritstofu frá Stofnun
Árna Magnússonar sem sett verð-
ur upp á staðnum, tónlist hjá tón-
listarhópnum Umbru, brauðgerð
hjá Bryndísi Geirsdóttur og Hinu
blómlega búi í Árdal og farið verð-
ur í ratleik um staðinn með aðstoð
hljóðleiðsagnar-appsins Snorra frá
Locatify.
Auk alls þessa má nefna Prjóna-
bóka-kaffið í bókhlöðunni, kvæða-
kvöld Kvæðamannafélagsins
Snorra í Reykholti og að endingu
fjölskyldudags við Reykholtsskóga
22. júní, Líf í lundi, á vegum skóg-
arbænda á Vesturlandi, skógræktar-
innar á Vesturlandi (Skorradal) og
Skógræktarfélags Borgarfjarðar.
Snorrastofa þakkar Uppbygg-
ingarsjóði Vesturlands og sveitarfé-
laginu Borgarbyggð þann stuðning,
sem veittur hefur verið undanfarin
ár til verkefna á borð við þau, sem
að ofan greinir og tekur fagnandi á
móti vori komanda.
-fréttatilkynning
Litríkt vor framundan í Snorrastofu
Steinunn Kristjánsdóttir fornleifafræðingur flytur erindi sem verður næst í röð viðburða í Snorrastofu.
Hvers vegna hefur tafist hjá starfs-
hópi um kjör eldri borgara, sem
standa höllum fæti, sem ráðherra
skipaði í vor og var ætlað að skila
tillögum fyrir 1. nóvember 2018,
að skila tillögum sínum og hvenær
er von á tillögum frá hópnum?
Þessa spurningu lagði Ellert B.
Schram fyrir félagsmálaráðherra
þegar hann tók sæti á Alþingi í
nokkra daga fyrr á þessu ári, elsti
þingmaðurinn til að setjast á þing í
lýðveldissögunni. Hann lætur enn
ekki deigan síga þrátt fyrir að vera
kominn nokkuð við aldur. Bar-
áttumál hans eru kjör eldri borg-
ara landsins. Á þingi hófst hann
þegar handa, flutti ræður, sendi
skriflega fyrirspurn til félags- og
barnamálaráðherra og spurði fjár-
málaráðherra, Bjarna Benedikts-
son, spjörunum úr. Einmitt þenn-
an sama Bjarna sem hefur ýmist
verið forsætisráðherra eða fjár-
málaráðherra mörg undanfarin ár
og hefur ítrekað, bæði skriflega og
opinberlega, lofað eldri borgurum
bættum hag, staðfastlega frá árinu
2013.
Það þarf ekki að tíunda hér að
íslenskt samfélag hefur búið við
sögulegt góðæri allt þetta tímabil
og efnahagslegt svigrúm því ver-
ið umtalsvert. Engar efndir hafa
hins vegar orðið og á íslensku máli
heita þetta ekkert annað en svik.
Í stjórnarsáttmála núverandi ríkis-
stjórnar eru sömu loforðin gefin,
að bæta hag þeirra eldri borgara
sem höllustum fæti standa.
Frekar en ekkert, þá skipaði fé-
lags- og barnamálaráðherra einn
starfshópinn enn fyrir ári síðan.
Verkefnið var að afla sér þekkingar
og upplýsinga um kjör aldraðra og
jafnvel koma með tillögur um úr-
bætur. þetta var hrein tímaeyðsla,
því það lágu þegar fyrir ítarlegar
upplýsingar um stöðu okkar lakast
settu eldri borgara. Þetta er ein-
faldlega sá hópur sem nýtur ein-
göngu greiðslna almannatrygg-
inga og engra eða lítilla greiðslna
úr lífeyrissjóði, þeir sem búa í
leiguhúsnæði og þeir sem hafa
takmörkuð réttindi í almanna-
tryggingakerfinu á Íslandi vegna
búsetu erlendis.
Í svari ráðherra við fyrirspurn
Ellerts kom harla lítið fram annað
en að Skýrsla starfshóps um kjör
aldraðra lægi fyrir. Í skýrslunni er
staðfest að hlutfall þeirra aldraðra
á bilinu 65-74 ára sem eru undir
lágtekjumörkum sé um 8% á Ís-
landi. Alls eru því um 3000 ein-
staklingar á landinu 65 ára og eldri
sem hafa tekjur undir fátæktar-
mörkum, sennilega þó mun fleiri.
Í þessum hópi eru einstaklingar
sem lifa við mikinn kvíða, vanlíð-
an og skert lífsgæði, verða að neita
sér um að leita heilbrigðisþjón-
ustu, geta ekki leyst út lyf sín og
eiga stundum ekki fyrir mat í lok
mánaðar. Vandi þeirra sem búa í
leiguhúsnæði á ótryggum og upp-
sprengdum markaði kemur síðan
í ofanálag. Við aðstæður þar sem
vonleysið eitt blasir við er hætta á
að andleg og líkamleg heilsa gefi
eftir og að ótímabær og kostnað-
arsöm úrræði verði þrautalend-
ingin, þ.e. stofnanavistun.
Fram hefur komið í samtölum
við forráðamenn samtaka aldr-
aðra að dæmi séu um algjöra upp-
gjöf í hópi aldraðra. Engin merki
sjást þó enn um frumkvæði ríkis-
stjórnarinnar til þess að stíga ein-
hver skref til móts við blásnautt,
aldrað fólk á Íslandi. Er nema
von að spurt sé hvaða áform fjár-
málaráðherra og ríkisstjórnin hafi
varðandi aldrað fólk sem er á von-
arvöl og hvort ný fimm ára fjár-
málaáætlun sem verður lögð fram
á næstu dögum muni endurspegla
áform um að kjörum allra eldri
borgara verði þokað upp fyrir fá-
tæktarmörk.
Guðjón S: Brjánsson.
Höf. er alþingismaður Samfylk-
ingarinnar í NV-kjördæmi.
Pennagrein
Bláfátækt í
boði Bjarna