Skessuhorn - 27.03.2019, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 29
Dalabyggð -
miðvikudagur 27. mars
Heimavinnsla í Dölum. Fundur
um heimavinnslu afurða í
félagsheimilinu Árbliki kl. 17:00
til 20:00. Erindi flytja Ólafur
Sveinsson, atvinnuráðgjafi
SSV, Ólafur Þór Hilmarsson
hjá Matís, Erlendur Björnsson
á Seglbúðum, Páll Kr. Pálsson
frá fyrirtækinu Áttum, Hlédís
Sveinsson ræðir um Beint frá
býli og REKO og Þorgrímur Einar
Guðbjartsson á Erpsstöðum
segir frá heimavinnslu. Halla
Sigríður Steinólfsdóttir
annast fundarstjórn. Nánar
á Facebook-viðburðinum
Heimavinnsla í Dölum.
Akranes -
miðvikudagur 27. mars
Leiklistarklúbbur NFFA sýnir
söngleikinn Rock of Ages í
Bíóhöllinni á Akranesi kl. 20:00.
Miðasala á www.midi.is.
Hvalfjarðarsveit -
fimmtudagur 28. mars
Skemmtikvöld í Heiðarskóla
kl. 19:30. Fjáröflun 9. og 10.
bekkjar sem er að fara í ferðalag
til Brighton í vor. Tískusýning frá
Ozone, Hans og Grétu, Búkollu
og fleirum. Sölubásar þar sem
hægt verður að kaupa rúbrauð,
handverk, kex, second hand og
alls kyns góðgæti. Ásta Marý
Stefánsdóttir, Páll Sólmundur
Eydal og Jónína Magnúsdóttir
flytja tónlistaratriði. Kaffisala,
tívolíþrautir fyrir krakkana og
happadrætti. Allir velkomnir.
Akranes -
fimmtudagur 28. mars
Opinn fundur með þingönnum
VG á Gamla Kaupfélaginu kl.
20:00. Lilja Rafney Magnúsdóttir,
Kolbeinn Óttarsson Proppé og
Ólafur Þór Gunnarsson mæta og
svara spurningum fundarmanna.
Öll velkomin!
Borgarbyggð -
fimmtudagur 28. mars
Félagsvist í hátíðarsalnum í
Brákarhlíð kl. 20:00. Annað kvöldið
í þriggja kvölda keppni sem
dreifist á fjögur kvöld. Veitingar í
hléi. Góð kvöld- og lokaverðlaun.
Allir velkomnir.
Borgarbyggð - laugardagur 30.
mars
Dagur skólanna í Borgarbyggð
Allri skólar sveitarfélagsins á öllum
skólastigum kynna starfsemi sína
í Hjálmakletti milli kl. 13:00 og
15:00. Sjá nánar frétt í Skessuhorni
vikunnar.
Grundarfjörður -
laugardagur 30. mars
Prjónahittingur á Kaffi Emil kl.
14:00. Allir velkomnir hort sem er til
að prjóna eða bara til að spjalla.
Snæfellsnes -
laugardagur 30. mars
Jarðarstund á Snæfellsnesi.
Myrkvum Snæfellsnes saman í eina
jarðarstund kl. 20:30 til 21:30.
Borgarbyggð -
sunnudagur 31. mars
Auður djúpúðga - Sagan öll. Vilborg
Davíðsdóttir stígur á stokk Sögulofts
Landnámssetursins í Borgarnesi
og segir söguna af konunni sem á
enga sína líka í landnámssögunni.
Vilborg lauk þríleik sínum um
Auði djúpúðgu síðasta haust
með bókinni Blóðug jörð og hafa
gagnrýnendur og lesendur hlaðið
verkið lofi. Miðaverð kr. 3.500 og
miðasala er á www.landnam.is.
Sýningin hefst kl. 16:00.
Borgarbyggð -
mánudagur 1. apríl
Síðasta námskeiðskvöld Ármanns
Jakobssonar um Tolkien og
íslenskar miðaldabókmenntir
verður mánudaginn 1. apríl kl.
20 í Bókhlöðu Snorrastofu. Efni
kvöldsins verður; Tolkien, ragnarök
og hetjuskapur – Snorra-Edda.
Viðburðurinn hefst kl. 20:00.
Grundarfjörður -
þriðjudagur 2. apríl
Fræðslufundur Alzheimersamtaka
Grundarfjarðar í Samkomuhúsinu í
Grundarfirði kl. 17:00 til 18:30.
Borgarbyggð -
þriðjudagur 2. apríl
Fyrirlestur Steinunnar
Kristjánsdóttir fornleifafræðings
um klausturhald, konur og pólitík í
Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20:30 og
aðgangseyrir er kr. 500. Sjá nánar
frétt í Skessuhorni vikunnar.
Borgarbyggð -
þriðjudagur 2. apríl
Flamengótónleikar á Hvanneyri
Pub kl. 20:30. Reynir Hauksson
gítarleikari flytur þekkt verk úr
heimi flamengótónlistarinnar í
bland við eigin tónsmíðar.
Nýfæddir Vestlendingar Á döfinni
Óska eftir íbúð á
Akranesi
Óskum eftir íbúð til
leigu á Akranesi. Erum
par með fastar tekjur.
Dóttir kærastans
kemur til okkar aðra
hvora helgi. Skilvísum
greiðslum heitið.
Upplýsingar í síma
695-8679.
Markaðstorg
Vesturlands
LEIGUMARKAÐUR
11. mars. Stúlka. Þyngd: 4.068 gr.
Lengd: 51 cm. Foreldrar: Tinna
Steindórsdóttir og Valdimar
Þór Guðmundsson, Akranesi.
Ljósmóðir: Lára Dóra Oddsdóttir.
19. mars. Drengur: Þyngd: 4.146
gr. Lengd: 53 cm. Foreldrar:
Dagmara Adamsdóttir og Jón
Símon Gíslason, Mosfellsbæ.
Ljósmóðir: Lára Dóra Oddsdóttir.
Getir þú
barn þá
birtist það
hér, þ.e.a.s.
barnið!
www.skessuhorn.is
19. mars. Drengur. Þyngd: 3.816
gr. Lengd: 51,5 cm. Foreldrar:
Thelma Dögg Theodórsdóttir
og Trausti Jón Þór Gíslason,
Mosfellsbæ. Ljósmóðir: G. Erna
Valentínusdóttir.
20. mars. Stúlka. Þyngd: 4.664 gr.
Lengd: 55 cm. Foreldrar: Guðný
Björk Proppé og Arnþór Örvar
Ægisson, Reykjavík. Ljósmóðir:
Erla Björk Ólafsdóttir.
23. mars. Drengur. Þyngd: 3.604
gr. Lengd: 50 cm. Foreldrar: Sjöfn
Hilmarsdóttir og Ívar Erlendsson,
Borgarnesi. Ljósmóðir: Jóhanna
Ólafsdóttir.
25. mars. Stúlka. Þyngd: 3.588
gr. Lengd: 51. cm. Foreldrar:
Katarzyna Hanna Wasyl
og Brynjar Þór Óskarsson,
Hafnarfirði. Ljósmóðir: Lára Dóra
Oddsdóttir.
25. mars. Drengur. Þyngd: 3.594
gr. Lengd: 55 cm. Foreldrar: Ólöf
Rún Skúladóttir og Hartmann
Bragi Jónsson, Húnaþingi vestra.
Ljósmóðir: Anna Björnsdóttir og
Sandra Bjarnadóttir nemi.