Skessuhorn - 13.11.2019, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 201910
Maður var í Héraðsdómi Vestur-
lands dæmdur til tíu mánaða fang-
elsisvistar, sem er skilorðsbundin
til þriggja ára, fyrir brot gegn bók-
haldslögum, skattalögum og pen-
ingaþvætti. Auk þess var honum
gert að greiða 36,1 milljón króna í
sekt innan fjögurra vikna frá upp-
kvaðningu dómsins, ellegar sæta
tólf mánaða fangelsisvist. Dóm-
ur var upp kveðinn í Héraðsdómi
Vesturlands föstudaginn 1. nóvem-
ber síðastliðinn.
Manninum var gefið að sök að
hafa sem framkvæmdastjóri fyrir-
tækis rangfært bókhald hlutafélags-
ins með útgáfu rangra kreditreikn-
inga, í þeim tilgangi að taka fjár-
muni úr félagi sínu í eigin þágu.
Sömuleiðis að hafa brotið gegn
skattalögum, með því að hafa sleppt
því að telja fram rúmlega 34 millj-
ónir í skattskyldar tekjur vegna
tekjuáranna 2012, 2013 og 2014.
Þá hafi hann ekki gefið upp rúm-
lega 10,5 milljóna króna tekjur frá
öðru einkahlutafélagi og heldur
ekki notkun á erlendu kreditkorti
sem þriðji aðili greiddi fyrir. Með
því hafi ákærði komist hjá því að
greiða rúmlega 20,6 milljónir króna
í tekjuskatt og útsvar.
Þá var honum sömuleiðis gefið
að sök að hafa stundað peninga-
þvætti með því að hafa nýtt ávinn-
ing af brotum sínum, samtals rún-
mlega 20,6 milljónir króna, í eigin
þágu.
Játaði brot sín
Í dómnum kemur fram að maður-
inn hafi skýlaust játað brot sýn fyr-
ir dómi og að játning hans sé studd
sakargögnum. Maðurinn hefur ekki
komist í kast við lögin áður og mat
dómstóllinn játningu hans honum
til málsbóta. Því þótti dómstóln-
um hæfileg refsing hans ákveðin tíu
mánaða fangelsi, skilorðsbundin til
þriggja ára.
Ákærði hafði þegar greitt van-
greiddan tekjuskatt og skattaá-
lag þegar dómurinn var kveðinn
upp ákvað dómstóllinn að fésekt
ákærða skyldi nema tvöfaldri van-
goldinni upphæð vanskilanna, sem
er lágmarksrefsing skv. lögum um
tekjuskatt. Sú fjárhæð sem und-
an var dregin var tæpar 44,6 millj-
ónir og vantaldar skattgreiðslur
vegna þeirra rúmar 20,6 milljónir.
Var manninum því gert að greiða
að lágmarki rúmar 41,2 krónur að
frádregnum skattgreiðslum vegna
álags vantalsin tekjuskatts, sam-
tals tæpar 5,2 milljónir. Samtals var
hann því dæmdur til að greiða 36,1
milljón króna í sekt innan fjögurra
vikna frá uppkvaðningu dómsins,
ellegar sæta tólf mánaða fangelsi.
Skipaður verjandi afsalaði sér
þóknun fyrir verjendastörf sín og
engan sakarkostnað leiddi af rann-
sókn og rekstri málsins.
kgk
Ásmundur Einar Daðason félags-
málaráðherra og Kristján Sturlu-
son sveitarstjóri Dalabyggðar,
skrifuðu á föstudaginn undir vilja-
yfirlýsingu um aðkomu stjórnvalda
að uppbyggingu á leiguhúsnæði í
Búðardal. Viljayfirlýsingin snýr að
því að fjölga leiguíbúðum í sveit-
arfélaginu en mikill skortur hef-
ur verið á íbúðarhúsnæði í Dala-
byggð um lengri tíma. Jafnframt
var tekin fyrsta skóflustungan að
fimm leiguíbúðum sem byggja á í
bænum. Þrjár þeirra tengjast lands-
byggðaverkefni Íbúðalánasjóðs og
áttu þátt í því að ráðist var í frekari
framkvæmdir.
Skrifað var undir viljayfirlýs-
inguna á opnum kynningarfundi
um húsnæðismál á landsbyggðinni
sem haldinn var í Dalakoti í Búð-
ardal. Við sama tækifæri kynnti Ás-
mundur Einar þær aðgerðir sem
gripið hefur verið til að undan-
förnu til þess að bregðast við erf-
iðu ástandi á húsnæðismarkaði,
ekki hvað síst á landsbyggðinni.
Fór hann sérstaklega yfir aðgerðir
í tengslum við landsbyggðarverk-
efni Íbúðalánasjóðs en Dalabyggð
er eitt þeirra sveitarfélaga sem valið
var til þátttöku í verkefninu.
„Fimm nýjar íbúðir þykir í stóra
samhenginu kannski ekki ýkja mik-
ið en víða á landsbyggðinni geta
þær bylt húsnæðismarkaðnum á
viðkomandi svæði. Ekki eingöngu
vegna þess að sveitarfélögin eru
minni heldur einnig vegna þess að
víða hefur lítið sem ekkert verið
byggt af nýju íbúðarhúsnæði árum
saman,“ sagði Ásmundur Einar við
undirritunina.
Íbúðalánasjóður mun koma að
útfærslu verkefnisins og hefur sjóð-
urinn ákveðið að leggja sveitarfé-
laginu til eins milljón króna styrk
til þróunar þess. Sjóðurinn mun
jafnframt leggja til fimm milljóna
króna viðbótarframlag til byggingar
íbúðanna, sem heimilt er að veita á
svæðum þar sem skortur er á leigu-
húsnæði og bygging íbúða hefur
verið í lágmarki vegna misvægis á
milli byggingarkostnaðar og mark-
aðsverðs íbúðarhúsnæðis. Styrkur-
inn er veittur sem hluti af sérstöku
tilraunaverkefni sjóðsins. Samhliða
því hefur ráðherra lagt fram frum-
varp um breytingu á almennum
íbúðum sem tryggir að hægt verð-
ur að veita slíkt viðbótarframlag á
fleiri landsvæðum þar sem misvægi
byggingarkostnaðar og markaðs-
verðs íbúða er til staðar.
mm
Mannbjörg varð þegar Blíða
SH sökk norður af Langeyjum á
Breiðafirði um hádegisbilið þriðju-
daginn 5. nóvember síðastliðinn.
Þrír voru um borð. Báturinn datt
út úr tilkynningaskyldu stjórn-
svöðvar Landhelgisgæslunnar á
tólfta tímanum og skömmu síðar
barst frá honum neyðarskeyti. Þá
sást einnig neyðarblys á lofti. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var kölluð út
þegar í stað, sem og sjóbjörgunar-
sveitir í nágrannabyggðum. Skip
og bátar í grenndinni voru sömu-
leiðis beðnir um að halda á vett-
vang.
Klukkan 12:08 hafði mönn-
unum þremur, sem voru komnir
í björgunarbát, verið bjargað um
borð í Leyni SH en Blíða var þá
sokkin. „Samvinna björgunaraðila
og skipa á svæðinu var til algjörrar
fyrirmyndar en búið var að bjarga
mönnunum um borð í fiskiskipið
rúmum hálftíma eftir að neyðar-
kallið barst,“ sagði um atvikið á vef
Landhelgisgæslunnar. Blíða SH
var gerð út af Royal Iceland og var
á beitukóngsveiðum á Breiðafirði.
Skipið var 61 tonn smíðað 1971 og
stækkað 1988.
Ekki vitað hvers vegna
skipið sökk
Ekki er vitað hvers vegna skip-
ið sökk. Lögregla og fulltrúar
siglingasviðs rannsóknarnefnd-
ar samgönguslysa tóku skýrslur
af skipverjum daginn eftir óhapp-
ið. Morgunblaðið hafði eftir Jóni
Arilíusi Ingólfssyni, rannsókn-
arstjóra siglingasviðs, að böndin
berist ekki að neinu sérstöku at-
riði. Sagði hann að samhliða væri
unnið að gagnasöfnun um skipið,
ferðir þess, stöðugleika og annað
sem skipti máli. Taldi hann víst að
kafað verði niður að skipinu til að
kanna hvort þá komi eitthvað í ljós.
Í kjölfar rannsóknar mun nefndin
skila skýrslu um atvikið.
Á miðvikudagskvöld sagði ólaf-
ur Jónsson, annar tveggja skip-
stjóra Blíðu sem var í fríi í landi
þegar báturinn sökk, að Blíða hafi
verið í góðu standi. Skipið hafi far-
ið í slipp í vor þar sem það hafi ver-
ið yfirfarið og tekið í gegn. Blíða
steytti á skeri 18. júní síðastliðinn
en ólafur kvaðst ekki hafa orðið
var við að neinar skemmdir hefðu
hlotist af því óhappi.
Blíða var á beitukóngsveiðum
norður af Langeyjum á Breiða-
firði. Veður var ágætt á svæðinu, en
skipið sökk svo hratt að skipverj-
arnir þrír náðu ekki að klæða sig
í björgunargalla. Þeim var bjarg-
að um borð í Leyni SH af björg-
unarbáti, sem var á hvolfi í sjón-
um. Voru þremenningarnir orðn-
ir kaldir og þrekaðir þegar áhöfn-
in á Leyni bjargaði þeim um borð.
Þaðan var siglt með þá rakleiðis til
hafnar og þeim komið undir lækn-
ishendur í Stykkishólmi.
kgk
Ásmundur Einar tekur fyrstu skóflustunguna að byggingu nýrra leiguíbúða í Búðardal og sveitarstjórn fylgist með.
Ljósm. Steina Matt.
Hefja byggingu
leiguhúsnæðis í Búðardal
Dæmdur fyrir skattsvik
og peningaþvætti
Tíu mánaða skilorðsbundin fangelsisvist og 36 milljóna króna sekt
Mannbjörg á
Breiðafirði
Blíða SH í Stykkishólmshöfn.
Blíða SH þegar hún steytti á skeri í október 2015. Báturinn sökk á Breiðafirði á
þriðjudaginn í síðustu viku. Ljósm. úr safni/ sá.