Skessuhorn - 13.11.2019, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 201914
nýjasta hótelið á Vesturlandi er
á Varmalandi í Stafholtstungum
í Borgarfirði, í húsi sem upphaf-
lega var byggt undir starfsemi Hús-
mæðraskólans á Varmalandi sama
ár og síðari heimsstyrjöldinni lauk.
Á síðustu fimm árum hefur hús-
ið verið stækkað og endurbætt fyr-
ir hundruði milljóna króna. Skóla-
hald í húsmæðraskólanum lagð-
ist af seint á níunda áratugnum og
eftir það var húsið í ýmissi tilfall-
andi notkun. Meðal annars var rek-
ið þar sumarhótel og skólasel frá
grunnskólanum á staðnum þegar
nemendur voru þar flestir á upp-
gangsárum Háskólans á Bifröst.
Árið 2015 seldi Borgarbyggð hús
fyrrum húsmæðraskólans fyrirtæk-
inu Iceland Incoming ehf. sem hóf
í kjölfarið umfangsmiklar endur-
bætur og stækkun á húsinu. Grafið
var út úr kjallarahæð, miklar breyt-
ingar gerðar á húsaskipan innan-
húss og viðbygging byggð við enda
hússins og hæð að hluta þar sem
veislusal vantaði til að þjóna nýjum
þörfum hótels. Þetta metnaðarfulla
verkefni fór á endanum í þrot þeg-
ar breytingar voru vel á veg komn-
ar. Keyptu núverandi eigendur, við-
skiptafélagarnir Þórir Garðarsson
og Sigurdór Sigurðsson hjá Gray-
line Iceland, húsin haustið 2018.
Fengu þeir landslagsarkitekt til að
hanna lóð umhverfis húsið. Lóðin
var tekin niður, rúmgóð bílastæði
gerð og aðkoman að húsinu þann-
ig bætt. Á þeirra vegum er nú búið
að ljúka framkvæmdum og búið að
opna glæsilegt 60 herbergja heils-
árshótel.
Blaðamaður Skessuhorns kíkti í
síðustu viku í heimsókn á hótelið
og ræddi við Helenu Vignisdótt-
ur hótelstjóra. Hún er bjartsýn á
hótel- og veitingarekstur á þessum
stað. Hótelið sé vel í sveit sett, þar
er kyrrlátt og fallegt, en þó stutt í
allar áttir. Útsýni af nýjum veit-
ingasal á þriðju hæð er stórbrotið
þaðan sem fjallahringur héraðsins
nýtur sín vel.
Miðsvæðis í héraðinu
Aðspurð segist Helena í upphafi
samtals okkar að hún hafi ekki haft
neina tengingu við Borgarfjörð
áður en hún tók þetta starf að sér. Á
Varmalandi hafi henni þó strax far-
ið að líða vel. Sjálf er hún menntuð
í ferðamálafræðum í Danmörku og
starfsreynsla hennar fram að þessu
hefur einkum verið hjá ferðaskrif-
stofum og við hótelrekstur. „Það
sem mér fannst strax heillandi við
Varmaland var hversu staðurinn
og húsin taka vel á móti fólki þeg-
ar ekið er hingað heim. Varmaland
er í rauninni skjólsæl og falin perla
milli fallegra klettabelta. Frá hús-
unum er fallegt útsýni þar sem þau
standa fremur hátt í landinu. Þá er
Varmaland í raun mjög miðsvæð-
is, á krossgötum til allra átta. Héð-
an er stutt í ýmsa afþreyingu í upp-
sveitum Borgarfjarðar, en það er
einnig stutt í Borgarnes og á höfuð-
borgarsvæðið. Sem dæmi er ég ein-
ungis klukkutíma og korter heim-
an frá mér í Hafnarfirði og hing-
að í vinnuna. Ég er ekki í vafa um
að orðspor okkar í framtíðinni mun
skapast af kyrrðinni sem hér ríkir,
náttúrufegurðinni, sundlauginni og
annarri aðstöðu. Útsýnið frá nýja
veitingastaðnum á þriðju hæð er
engu líkt. Saman við góða matar-
upplifun ætlum við að gera gestum
heimsókn hingað ógleymanlega,“
segir Helena.
Staðurinn greyptur í
huga margra
Hótel Varmaland er búið öllum
helstu nútímaþægindum og getur
að sögn Helenu tekið allt að 138 í
gistingu. Hótelið var formlega opn-
að gestum 19. júlí í sumar. Reynd-
ar höfðu þá mánuði áður 60 ára
Varmalandsmeyjar fengið að halda
nemendamót sitt á staðnum þar
sem rifjuð voru upp gömul kynni úr
námi og leik. „Það er svo gaman að
því hversu margir eiga ljúfar minn-
ingar héðan frá Varmalandi. Bæði
„stelpurnar“ sem hér stunduðu
nám en ekki síður ungu mennirnir
sem gerðu hosur sínar grænar fyrir
þeim á sínum tíma. Ég hef fundið
vel hversu sterkar rætur þessi skóli
hefur í hugum margra og minn-
ingar héðan eru greinilega margar.
Fólk hefur einnig lýst ánægju sinni
með að húsin séu komin í notkun
að nýju,“ segir Helena.
Styrkleiki að geta tekið
stóra hópa
Aðspurð segir hún að vel hafi
gengið að manna störf á hótelinu.
„Við erum með um tuttugu starfs-
menn, mest Íslendinga. Við hlið
mér starfar Dóra Takefusa sem að-
stoðar hótelstjóri og til okkar hef-
ur gott fólk ráðist til starfa. Það
kom mér á óvart hversu vel gekk
að ráða í störfin. Um tíu manns eru
í fullu starfi og tíu eru hlutastarfs-
menn, meðal annars nokkrir nem-
endur við Landbúnaðarháskólann
á Hvanneyri sem taka vaktir sam-
hliða því að stunda nám.“ Helena
segir að það líti vel út með bókan-
ir. nú í haust hófst af krafti mark-
aðssetning sem felst meðal annars í
að láta erlendar og íslenskar ferða-
skrifstofur og íslensk fyrirtæki vita
af þessum nýja möguleika í gist-
ingu og mat í Borgarfirði. Full-
bókað er margar helgar og seg-
ir Helena ánægjulegt að sjá hversu
margir íslenskir hópar eru að boða
komu sína. „Það er styrkleiki okkar
að geta tekið stóra hópa t.d. í ráð-
stefnur, árshátíðir, afmæli og alls-
kyns viðburði. Við njótum einnig
góðs af því að hér er bæði sundlaug
og Þinghamar er stórt félagsheim-
ili í göngufæri frá okkur. Við erum
í afar góðu sambandi við Guðmund
Finnsson húsvörð sem er einkar
lipur og frábær maður í samskipt-
um. Sundlaugin hefur verið opn-
uð þegar við höfum óskað eftir því
og félagsheimilið er hægt að leigja
bæði fyrir fjölmennustu veislurn-
ar, ráðstefnur og slíkt. Sundlaugin
á Varmalandi gegnir auk þess lyk-
ilhlutverki í að bæta upplifun gesta
sem hér dvelja,“ segir hún.
Calor merkir varmi
Á efstu hæð hótelsins er glæsileg-
ur veitingastaður með sæti fyrir 140
gesti og útsýni til allra átta. Auk
þess er sérsalur sem hægt er að loka
af fyrir smærri hópa. Veitingastað-
urinn hefur fengið nafnið Calor
Restaurant. Boðið er upp á morg-
unverðarhlaðborð sem er innifal-
ið í gistingunni, árstíðatengdan „a
la carte“ matseðil og hópamatseð-
il. Kokkarnir á Calor vinna í miðju
rýmisins, í opnu eldhúsi, og geta
gestir fylgst með þeim að störfum
á milli þess sem notið er útsýnis í
gegnum glerveggi sem þekja þrjár
hliðar veitingasalarins. Helena seg-
ir að nafnið á veitingastaðnum sé
latneskt og merki hita eða varma og
tónar því vel við gufuna sem leggur
frá hvernum á Laugalandi, skammt
fyrir neðan hótelið. „Útlendingar
tengja vel við þetta nafn, en mörg-
um Íslendingum finnst það fram-
andi í fyrstu. Við höfum hér tvo
kokka, Íslending og Pólverja, sem
laða fram það besta í matargerð.
Við höfum veitingastaðinn opinn
á kvöldin frá klukkan 18:30-21:30
og hingað getur fólk komið til að
njóta. Sveitungar eru farnir að
koma og prófa matinn hjá okkur
og nú erum við farin að kynna jóla-
hlaðborð sem verða alla föstudaga
og laugardaga frá 15. nóvember til
14. desember. Það lítur mjög vel út
með bókun í þau en ég hvet fólk til
að leita upplýsinga og skipuleggja
ferð til okkar,“ segir Helena.
Helena hótelstjóri segist mjög
bjartsýn á framhaldið á Hótel
Varmalandi nú fjórum mánuðum
eftir að það var opnað formlega.
„Ég finn vel að þetta hótel býður
upp á ótrúlega skemmtilega mögu-
leika jafnt fyrir Íslendinga sem er-
lenda ferðamenn - og hvet fólk til
að hafa samband ef það langar að
prófa nýja upplifun í mat eða gist-
ingu.“ mm
Hótel Varmaland er nýtt 60 herbergja hótel í hjarta Borgarfjarðar
Hótelstjórinn segir reynslu fyrstu
mánaðanna lofa mjög góðu
Hótelherbergi.
Drónamynd tekin í sumar af Hótel Varmalandi. Íbúðarhúsin sem tilheyra garðyrkjustöðinni Laugalandi til vinstri en fjær er
Þinghamar, sundlaugin og Grunnskóli Borgarfjarðar á Varmalandi.
Helena Vignisdóttir í anddyri Hótel Varmalands. Horft til norðurs yfir nýbygginguna og veitingastaðinn Calor.
Svipmynd úr veitingasalnum og úr gluggunum sést alla leið suður á Hafnarfjall og
Skarðsheiðina.