Skessuhorn - 13.11.2019, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 201916
ný afþreyingar- og þjónustumiðstöð
hefur verið tekin í notkun á Húsa-
felli. Húsið var byggt af PJ bygg-
ingum á Hvanneyri og flutt í heilu
lagi að Húsafelli í byrjun október.
Húsið, sem er staðsett við hliðina á
Húsafell Bistró, er að mestu tilbúið
en lokið var við frágang utanhúss í
gær. Í húsinu verður Into the Gla-
cier og Húsafell Giljaböð með mót-
töku viðskiptavina og upphafsstað
ferða í Giljaböðin og á Langjök-
ul. Þar gefst viðstkiptavinum kost-
ur á að undirbúa sig fyrir ferðirn-
ar og nýta salernisaðstöðu. Einnig
verður aðstaða fyrir starfsmenn og
leiðsögumenn í húsinu. Loks verð-
ur þar afgreiðsla fyrir tjaldstæðið á
Húsafelli og ýmsa aðra afþreyingu,
eins og ferðir í Víðgelmi og göngu-
ferðir um svæðið.
arg/ Ljósm. Elmar Snorrason.
Hjónin Hreiðar Már Jóhannesson
og Hulda Hildibrandsdóttir hafa
opnað barinn Skipperinn að Þver-
vegi 2 í Stykkishólmi. Barinn var
opnaður á laugardaginn, 9. nóvem-
ber síðastliðinn. Hreiðar segir að
um algera skyndiákvörðun hafi ver-
ið að ræða hjá þeim hjónum. „Það
var annað hvort að ég færi aftur á
sjóinn eða myndi búa mér til heils-
ársvinnu,“ segir Hreiðar í samtali
við Skessuhorn, en þau reka einnig
ferðaþjónustufyrirtækið Ocean Ad-
ventures og starfa bæði þar á sumr-
in. „Við heyrðum af því að strák-
arnir í Skúrnum, sem var áður í
þessu húsi, væru að færa sig um set.
Við vorum bara uppi í sófa heima
og hentum því fram í gríni hvort
við ættum ekki að heyra í eiganda
hússins og athuga hvort við gætum
fengið það leigt til að reka bar. Ég
held að það hafi liðið tveir tímar frá
því við vorum að grínast með þetta
þangað til við vorum komin með
húsið á leigu, án þessa að vita neitt
almennilega hvað við værum að
fara að gera,“ segir Hreiðar léttur
í bragði. „Það eru fimm vikur síð-
an og við erum búin að opna,“ bæt-
ir hann við.
Hreiðar segir að opið verði á
Skipp ernum alla virka daga frá
18:00 til 1:00 en um helgar frá
því fyrir hádegi til 3:00 um nótt-
ina. Eldhúsið verði opið til 10:00
á kvöldin, bæði virka daga og um
helgar. Á matseðlinum verða fisk-
ur og franskar, kjúklingasalat og
svínarif og boltinn í beinni á skján-
um þegar svo ber undir. „Síðan
þegar við verðum komin aflmenni-
lega af stað ætlum við að bæta við
nautalokum og humarlokum,“ seg-
ir Hreiðar.
Hann segir viðtökurnar hafa
verið góðar. „Við auglýstum ekk-
ert að við værum að fara að opna,
vildum ekki fá einhverja bombu því
við vissum ekki hvað væri að fara
að gerast. En samt var nánast fullt
hús til kl. 3:00 um nóttina,“ segir
hann. „Þetta er það sem vantaði í
Hólminn. Við höfum tekið eftir því
eins og aðrir í ferðaþjónustunni og
bæjarbúar að það hefur vantað bar
sem er opinn lengur en níu á kvöld-
in sem er hægt að vísa fólki á,“ segir
hann og bætir því við að reksturinn
leggist vel í þau. „Bæjarbúar taka
líka rosalega vel í þetta framtak og
þeir sem hafa litið við eru mjög já-
kvæðir og ánægðir með að einhver
hafi látið verða af því að opna bar.
nú geta allir sem eru að leita sér
að rólegum stað til að setjast nið-
ur á kvöldin og fá sér bjór eða vín-
glas komið til okkar,“ segir Hreiðar
Már að endingu. kgk
Samtök iðnaðarins, Félag vinnu-
vélaeigenda, Tækniskólinn og
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið hafa tekið höndum saman
um að koma á laggirnar nýju námi
í jarðvinnu í fyrsta sinn hér á landi.
Samkomulag þess efnis var undir-
ritað í byrjun vikunnar. Markmið-
ið með samkomulaginu er að koma
á formlegu jarðvinnunámi á fram-
haldsskólastigi sem undirbýr nem-
endur undir margvísleg störf við
jarðvinnu og getur jafnframt verið
grunnur frekara náms. Framfara-
sjóður Samtaka iðnaðarins hefur
styrkt verkefnið um fimm milljón-
ir króna.
Jarðvinnuverktakar fá eins og
stendur ekki nægilegt hæft fólk til
starfa og skortur á nýliðun í faginu
er mikið áhyggjuefni. Tilgangur
námsins er því að breyta því, stuðla
að nýliðun og auka færni og þekk-
ingu þeirra sem vinna eða munu
vinna við jarðvinnu, meðal annars
með tilliti til öryggis, gæða, skil-
virkni og tækninýjunga. Um leið
verður faginu gert hærra und-
ir höfði til samræmis við það sem
þekkist erlendis. mm
Frá undirritun samkomulags
vegna náms í jarðvinnu, talið
frá vinstri: Hildur Ingvarsdóttir
skólameistari Tækniskólans,
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, Óskar
Sigvaldason formaður Félags
vinnuvélaeigenda og Sigurður
Hannesson framkvæmdastjóri SI.
Samið um nýtt nám í jarðvinnu
Frágangur fyrir utan húsið kláraðist í gær.
Afþreyingar- og þjón-
ustumiðstöð tekin í
notkun á Húsafelli
Ný afþreyingar- og þjónustumiðstöð hefur verið tekin í notkun á Húsafelli.
Hulda Hildibrandsdóttir og Hreiðar Már Jóhannesson. Ljósm. sá.
Opnuðu barinn Skipperinn í Stykkishólmi
„Þetta er það sem
vantaði í Hólminn“