Skessuhorn - 13.11.2019, Side 35
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2019 Matarauður 35
Nýr og glæsilegur veitingastaður í Borgarnesi!
Digranesgötu 4, 310 Borgarnesi, sími 430-5600
Hollari valkostur við þjóðveginn!
Matarmikil salöt og heimagerður heitur matur
Staðgóður brönch um helgar
Við bjóðum einnig upp á heimagerðar samlokur, pasta– og núðlurétti, skyrboost,
pylsur, kaffi og kruðerí ásamt nesti í bílinn.
Einnig erum við með gott úrval af nauðsynjavörum
Rjómabúið Erpsstaðir, ásamt
Veiðistaðnum, veitingahúsi í Búð-
ardal, stóð fyrir osta- og vínkvöldi
föstudaginn 8. nóvember síðastlið-
inn. Fyrirkomulagið var með þeim
hætti að Rjómabúið Erpsstaðir
hafði valið fimm tegundir af ost-
um og Dominique Plédel Jónsson,
frá Vínskólanum, hafði parað við-
eigandi vín með til að smakka með
hverri sort af osti.
Þá voru einnig Svava frá sælke-
rasinnepi Svövu að kynna fram-
leiðslu sína og Ragna og Manuel
frá Kombuchia Iceland sem kynntu
drykkina sína. Einnig var boðið
upp á bollur bakaðar úr skyrmysu,
Islandus berja- og mysudrykk, graf-
ið ærfile frá Hundastapa og nauta-
jerky, sem eru þurrkaðar nautakjöts-
flögur. Rúsínan í pylsuendanum var
svo kynning Péturs Péturssonar á
Jöklu, rjómalíkjörnum sem hann er
við það að hefja framleiðslu á.
„Stemningin á föstudaginn var
hrikalega góð. Danjel, veitinga-
maður á Veiðstaðnum, átti stóran
þátt í að svona vel tókst til, en hann
reddaði öllu sem þurfti að redda,
þó síðasta stund væri runnin upp,“
segir Þorgrímur Einar á Erpsstöð-
um í samtali við Skessuhorn. Hús-
fyllir var á þessari hátíð, góð stemn-
ing og góðar veitingar.
mm/ Ljósm. Jón Trausti
Markússon
Osta- og vínkvöld
í Búðardal