Skessuhorn - 13.11.2019, Qupperneq 37
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2019 Matarauður - Veisla á Vesturlandi 37
Steikur, snitsel, gúllas og hakk. Minnst 1/8 úr skrokk.
Mýranaut ehf / Leirulæk, 311 Borgarnes / myranaut.is / s. 868 7204
ÍSLENSKT
GÆÐA UNGNAUTAKJÖT
BEINT FRÁ BÝLI
Við í Langaholti höfum ákveðið að bjóða upp á fjölbreytt
fiskihlaðborð á laugardagskvöldum í vetur. Fiskihlað-
borðin okkar verða síbreytileg, það sem er í boði hverju
sinni eru þær tegundir sem snæfellskir sjómenn afla á
hverjum tíma af gjöfulum fiskimiðum Breiðafjarðar og
Faxaflóa. Við sækjum fiskinn á bryggjuna og fullvinnum
í okkar eldhúsi. Ævinlega verða á hlaðborðinu tvær teg-
undir af súpu, fimm tegundir af gröfnum/marineruðum
og heitreyktum smáréttum úr hafinu sem og fimm ólíkir
aðalfiskréttir og að sjálfsögðu kaka á eftir.
Hvert fiskihlaðborð verður spennandi óvissuferð fyrir
bragðlaukana.
Nóvemberdagskráin í Langaholti er eftirfarandi:
9. nóv. Villibráðaveisla (uppselt)
16. nóv. Fiskihlaðborð.
23. nóv. Bjúgnahátíð.
30. nóv. Fiskihlaðborð.
Langaholt
Tilboð á fimm rétta vestlenskri veislumáltíð dagana
13.-20. nóvember.
Nánari upplýsingar á Facebook síðu Bjargarsteins.
Bjargarsteinn í
Grundarfirði
Hótel Glymur er dásamlegt lítið hótel sem staðsett er
í Hvalfirðinum, umlukið fallegri náttúru. Hótelið er með
22 hlýleg herbergi með frábæru útsýni til fjalls eða yfir
Hvalfjörð. Öll herbergin eru á tveimur hæðum með bað-
herbergi og setustofu á neðri hæðinni og svefnherbergi
á efri hæðinni. Svíturnar okkar heita Hallgrímsstofa, eftir
Hallgrími Péturssyni og Guðríðarstofa eftir Guðríði Sím-
onardóttur (Tyrkja-Guddu, konu Hallgríms). Sex glæsileg
heilsárshús eru við Hótel Glym. Stórfenglegt útsýni er
yfir Hvalfjörðinn úr stórum gluggum sem snúa í suður.
Frábær aðstaða er til funda og ráðstefnuhalds á Hótel
Glymi.
Við verðum með opið jól og áramót og munum gefa
út matseðla fyrir aðfangadag, jóladag, gamlárkvöld og
nýjárskvöld. Um jól og áramót munum við einnig taka
vel á móti hópum í mat þó gestir séu ekki í gistingu
hjá okkur.
Hótel Glymur