Skessuhorn - 13.11.2019, Síða 41
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 2019 41
Húsafell Resort ehf. fékk úthlutað
úr uppbyggingarsjóði SSV á sínum
tíma styrk til gerðar á gönguleiða-
neti um Húsafell. Í kjölfarið voru
gerð bílastæði með styrk frá Ferða-
málajóði. Við bílastæðin eru komin
upp þrjú upplýsingaskilti, eitt með
heildar gönguleiðakorti, annað með
korti af Bæjargilinu og þriðja kort-
ið með sögurhingnum en á þeirri
leið er að finna tíu silfurskildi sem
segja frá hverjum og einum stað.
Unnsteinn Elíasson hleðslumeist-
ari sá um að hlaða vegg og gera fínt
í kringum skiltin og Sigurbjörg ósk
Áskelsdóttir, landslagsarkitekt hjá
Landlínum ehf., teiknaði stæðið.
arg/ Ljósm. Hrefna Sigmarsdóttir
Veitingastaðurinn Skúrinn var
opnaður á nýjum stað við Aðal-
götu 25 í Stykkishólmi mánudag-
inn 4. nóvember síðastliðinn. Eft-
ir að rekstri verslunarinnar Bensó
var hætt um miðjan september
ákváðu eigendur Skúrsins að flytja
alla starfsemi þangað, en hún hafði
fram að þeim tíma verið á tveimur
stöðum í bænum. „Við erum ánægð
með flutninginn,“ segir Arnþór
Pálsson, einn fjögurra eigenda
Skúrsins, í samtali við Skessuhorn.
„Viðbrögðin frá íbúum hafa ver-
ið frábær og það er búið að ganga
mjög vel fyrstu vikuna,“ segir hann
ánægður.
Eigendur Skúrsins eru, auk Arn-
þórs, þau Þóra Margrét Birgis-
dóttir, Rósa Kristín Indriðadótt-
ir og Sveinn Arnar Davíðsson. Frá
miðjum septembermánuði hafa þau
staðið í ströngu við framkvæmdir
í nýju húsnæði. „Við þurftum að
stækka eldhúsið töluvert, breyta
salnum og ýmislegt fleira til að
gera staðinn að okkar,“ segir Arn-
þór. Hann segir að hamborgararn-
ir, vefjurnar, pitsurnar og vængirn-
ir verði á sínum stað en auk þess
verði hægt að fá sælgæti, tóbak,
ís og bílavörur og fleira í Skúrn-
um. „Eftir flutningana verðum
við svona grunnsjoppa sem legg-
ur áherslu á góðar veitingar. Það
finnst okkur skemmtileg breyting.
Það er meira rennirí af fólki allan
daginn en á veitingastöðum, alltaf
að tínast inn fólk. Við erum mjög
kát með þetta og reiknum með
að þetta verði bara gaman,“ segir
hann. „Hér verður opið alla daga
frá kl. 10 til 22. Grillið opnar fyr-
ir hádegið og verður opið fram á
kvöld og við byrjum að baka pitsur
kl. 17:00, eins og var á pizzastaðn-
um okkar. Boltinn verður í boði á
skjánum og ef einhver vill horfa á
eitthvað sérstakt þá fær hann bara
fjarstýringuna. Þetta verður að vera
heimilislegt og kósí,“ segir Arnþór
Pálsson að endingu. kgk
3Miðflokkurinn hélt flokksráðsfund
sinn í Reykjanesbæ um liðna helgi,
þann fimmta frá stofnun flokksins.
Þar voru samþykktar tólf ályktanir
um áherslur flokksins þetta haustið.
nánar upplýsingar um þær má lesa
á heimasíðu flokksins:
1. Opinber stjórnsýsla og einföld-
un regulverks
Við ætlum að lækka skatta, leggja
áherslu á ráðdeild og skilvirkni rík-
isrekstrar, draga úr umfangi íþyngj-
andi regluverks og virða sjálfs-
ákvörðunarrétt sveitarfélaga varð-
andi sameiningar.
2. Málefni eldri borgara og lífeyr-
isþega
Við ætlum m.a. að efna loforð stjórn-
valda um að leiðrétta kjör eldriborg-
ara og annarra sem reiða sig á líf-
eyrisgreiðslur og afnema skerðing-
ar sem draga úr hvata til sjálfsbjarg-
ar og koma á sveigjanlegum starfs-
lokum.
3. Heilbrigðismál
Við ætlum að bregðast við bráða-
vanda Landspítala m.a. með endur-
skoðun á stjórnun, mönnun og inn-
kaupum, byggja upp heilbrigðiss-
þjónustu á landsbyggðinni og reisa
nýjan landspítala á nýjum stað.
4. Staða iðn- og verkmenntunar
Við ætlum að efla iðn- og verk-
menntun m.a. í samvinnu við at-
vinnulífið og tryggja að iðnám sé
metið jafnt á við bóknám.
5. Orkustefna til framtíðar
Við höfnum orkustefnu ESB en
styðjum orkustefnu sem tryggir nýt-
ingu og arð til samfélagslegra verk-
efna, við viljum áfram takmarka
framsal valds í stjórnarskrá og stöðva
orkupakka 4 leiði hann til frek-
ara framsals fullveldis eða framsals
stjórnunar auðlinda.
6. Innlend matvælaframleiðsla
Miðflokkurinn vill sóknaráætlun
fyrir íslenska matvælaframleiðslu
byggða á langtímastefnu um fæðu-
öryggi, samfélagslegu mikilvægi og
byggðaþróun.
7. Efling ferðaþjónustu og at-
vinnulífs
Við ætlum að lækka tryggingagjald
og efna til samtals við sveitarfélögin
um lækkun skatta á atvinnuhúsnæði
ásamt því að vinna með atvinnulífinu
að eflingu þess.
8. Umhverfismál
Við höfnum skattagleði ríksstjórnar-
innar og viljum raunhæfar aðgerðir
í umhverfismálum í stað sýndarað-
gerða. nýta þarf sorp, auka skóg-
rækt og innlenda framleiðslu.
9. Samgöngur og flugumferð
Við höfnum auknum umferðar-
sköttum, leggjum áherslu á upp-
byggingu varaflugvalla og bætta að-
stöðu á Keflavíkurflugvelli.
10. Þjóðarsjóður í skugga skatt-
heimtu
Miðflokkurinn leggst gegn stofnun
þjóðarsjóðs og vill nýta fjármunina
í innviðauppbyggingu og/eða lækk-
un álaga á heimili og fyrirtæki.
11. Bætt löggæsla og aðgerðir
gegn fíkniefnavá
Við ætlum að efla forvarnir og
merðferðarúrræði í samstarfi við
fagaðila, styrkja lög- og tollgæslu
í baráttunni við innflutning ólög-
legra fíkniefna, lyfja oþh.
12. Heildstæð byggðastefna
Við ætlum að efla landið allt með
heildstæðir byggðastefnu þar sem
önnur stefnumótun t.d. orkustefna,
sókaráætlun í matvælaframleiðslu
og umhverfisstefna vinnur saman.
-fréttatilkynning
Arnþór Pálsson á bakvið afgreiðsluborðið í nýju húsnæði Skúrsins. Ljósm. sá.
Skúrinn opnaður á
nýjum stað
Tólf áhersluatriði flokksráðs Miðflokksins
Þrjú upplýsingaskilti eru við bílastæðin þar sem hægt er að finna upplýsingar um
gönguleiðir.
Bílastæði við gönguleiðir á Húsafelli