Skessuhorn - 13.11.2019, Síða 46
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 201946
Áratugahefð er fyrir því að verslun-
in Módel við Þjóðbraut 1 á Akranesi
bjóði gestum og gangandi á kúnna-
kvöld. Um er að ræða kvöldopnun
þar sem ýmis tilboð og kynningar
eru í gangi og jólavörurnar komnar
í hillurnar. Engin undantekning var
á því að þessu sinni, en síðastliðinn
fimmtudag var sameiginlegt kúnn-
akvöld Módels og verslunarinnar
Hans og Grétu sem starfrækt er í
sama húsi. Viðtökur voru góðar en
fjölmenni var statt á kúnnakvöldi
þegar ljósmyndari Skessuhorns leit
við um áttaleytið.
mm
Föstudaginn 1. nóvember var
merkilegur dagur í Grunnskól-
anum í Borgarnesi. Þá var fyrsta
máltíðin elduð í nýju og glæsilegu
eldhúsi skólans en síðustu 17 ár
hafa nemendur farið yfir á Hótel
Borgarness til að borða í hádeg-
inu. Fyrsti kokkurinn í nýja eld-
húsinu er Borgnesingurinn Snæ-
björn óttarsson og segir hann
eldhúsið vera bæjarfélaginu öllu
til sóma. „Þetta er mjög vel búið
eldhús og þar er allt til alls,“ seg-
ir Snæbjörn sem augljóslega er
ánægður með nýju starfsaðstöð-
una. Snæbjörn ólst upp í Borg-
arnesi og lærði kokkinn á Hót-
el Borgarnesi. Þá vann hann sem
kokkur í Hyrnunni í nokkur ár
og prófaði einnig að starfa á Brú í
Hrúafirði. Þá lá leið hans til Dan-
merkur þar sem hann bjó í 13 ár
og vann á háskólasjúkrahúsi við að
elda fyrir lækna og hjúkrunarfræð-
inga. Árið 2015 flutti hann aftur
heim til Íslands og fór að vinna á
Hótel Bifröst þar sem hann var til
1. desember í fyrra. Hann tók til
starfa hjá Grunnskólanum í Borg-
arnesi 1. maí og tók því þátt í að
velja inn tæki og leita að tilboðum
fyrir búnað í nýtt eldhús.
Miða við að fara ekki
yfir 10% fitu
Fyrsta máltíðin í eldhúsinu var
pizza og voru krakkarnir allir af-
skaplega ánægðir með það. „Ég
var búinn að hlera aðeins hvað
það væri sem þau vildu og flestir
töluðu um að vilja pizzu. Ég var
ekkert að segja þeim hvað ætti að
vera í matinn og leyfði þeim að-
eins að spá í þessu og byggja upp
smá spennu,“ segir Snæbjörn og
brosir. Borgarnes er heilsuefl-
andi samfélag og verður því far-
ið eftir viðmiðum Embættis land-
læknis um heilsueflandi grunn-
skóla í mötuneyti skólans. „Við
erum með ákveðin lýðheilsumark-
mið sem við förum eftir. Þau snúa
mest að því að skera niður sykur
og fitu og að hafa sem minnst af
unnum kjötvörum. Viðmiðið er að
fita sé ekki meira en 10% af hverri
máltíð. Það er þó aðeins sveigj-
anleiki með það ef við förum yfir
10% einn daginn reynum við að
fara undir það næsta dag svo með-
altalið sé ekki upp fyrir 10% fita,“
útskýrir Snæbjörn og bætir því
við að í eldhúsinu sé til að mynda
hvorki djúpsteikingapottur eða
stórar steikarpönnur.
Ánægður á nýjum
vinnustað
Aðspurður segist Snæbjörn
spenntur fyrir því að elda fyrir
börn. „Þau eru svo hreinskilin og
ef þú stendur þig ekki færðu bara
að heyra það og ég er hrifinn af
því,“ segir hann og hlær. „Það er
aðeins öðruvísi að elda fyrir börn.
Maður kryddar matinn til dæmis
ekki mjög mikið, sérstaklega ekki
fyrir þessi yngstu. En það hefur
komið mér á óvart að sjá hvað þau
geta borðað rosalega mikið og það
er rosalega gaman að gefa þeim
að borða,“ segir hann og bætir því
við að börnin mættu þó vera kald-
ari við að smakka eitthvað nýtt.
„Krakkarnir eru frábærir og kon-
urnar sem eru með mér hér í eld-
húsinu líka og starfsandinn mjög
góður. Ég get eiginlega ekki beð-
ið um neitt meira,“ segir hann
ánægður. argSvipmynd úr björtum og litríkum borðsal. Ljósm. Grunnskólinn í Borgarnesi.
Lýðheilsustefna í nýju mötuneyti Grunnskólanns í Borgarnesi
Snæbjörn Óttarsson er fyrsti kokkurinn í nýja eldhúsinu í Grunnskólanum í Borgarnesi.
Snæbjörn fær góða aðstoð í eldhúsinu
frá þeim Silju Jónsdóttur og Ingu Birnu
Tryggvadóttur.
Ljósm. Júlía Guðjónsdóttir.
Fyrsta máltíðin í Grunnskólanum í
Borgarnesi var 1. nóvember.
Ljósm. Grunnskólinn í Borgarnesi.
Dagbjartur Ingvar Arelíusson frá Brugghúsi Steðja kynnti
jólabjórinn í ár.
Kúnnakvöld í Módel í aðdraganda aðventu
Jólatengdar vörur og skraut heillaði marga, meða annars Ingigerði Guðmunds-
dóttur sem hér virðir úrvalið fyrir sér.
Kristján Einarsson skoðar úrval af pottum, dreglum og
skrauti.
Systurnar Móeiður og Helga Dóra Sigvaldadætur kíktu við.