Skessuhorn - 13.11.2019, Qupperneq 50
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 201950
Í júní kom út í ölítið breyttri útgáfu
barnabókin Á ferð og flugi með
ömmu eftir Hallberu Fríði Jóhann-
esdóttur með myndum eftir Bjarna
Þór Bjarnason. Bókin kom einnig
út á ensku í þýðingu Hrannar Rík-
harðsdóttur og ber titilinn Granny
and her little one exploring Akra-
nes. Bókin er innbundin og prent-
uð í Prentmeti, en gefin út af höf-
undi. „Bókin segir frá ömmu og
Frey sem ferðast saman milli fjalls
og fjöru á Akranesi. Freyr fær að
heyra sögur um skessur, sjóslys, fá-
tækt fólk, Langasandinn, Akrafjall-
ið og Elínarhöfðann. Tilgangur-
inn með útgáfu bókarinnar er að
varðveita gamlar sögur og sagnir
af Akranesi, gera þær aðgengileg-
ar fyrir börn og glæða örnefni lífi
í máli og myndum. Það er trú mín
að mikilvægt sé fyrir alla að þekkja
sína heimabyggð, ekki síst börnin.
Þau þurfa að fá að kynnast helstu
náttúruperlum Akraness og venjast
á að njóta þeirra, með eða án full-
orðinna,“ segir Hallbera í samtali
við Skessuhorn.
Ráðist var í endurútgáfu bókar-
innar þar sem hún hefur verið ófá-
anleg í nokkur ár. „Akranes stækk-
ar ört, börn eldast og önnur fæðast.
Efni bókarinnar heldur gildi sínu en
örlitlar breytingar hafa verið gerðar
á texta hennar. Sementsverksmiðj-
an er til dæmis horfin og Guðlaug
komin á Langasand. Íbúum hefur
fjölgað á Akranesi og sama má segja
um fjölda ferðamanna sem heim-
sækja bæinn. Þess vegna var ráðist
í það verk að láta þýða bókina yfir
á ensku. Með því er verið að gera
efnið aðgengilegt fyrir stærri hóp
lesenda og vekja athygli á Akra-
nesi út fyrir bæjarmörkin. Og hver
kannast ekki við að vanta litla gjöf
til að senda vinum erlendis? Þá er
falleg bók um Akranes tilvalin gjöf
því þó Ferð á flugi með ömmu sé
skrifuð með börn í huga þá á efni
hennar fullt erindi til allra,“ segir
Hallbera.
Hægt er að nálgast bækurnar í
bókabúðum Pennans, í Akranes-
vita og hjá höfundi í síma 865-0530
eða í gegnum netfangið hallberaj@
gmail.com. mm
Út er komin bókin Höfuðstafur,
háttbundin kvæði, eftir Gunnar J.
Straumland. Gunnar er kennari,
myndlistarmaður og kvæðamað-
ur. Hann fæddist á Húsavík, er af
þingeyskum ættum í móðurætt en
föðurætt hans er úr Skáleyjum á
Breiðafirði. Hann er nú búsettur í
Melahverfi í Hvalfjarðarsveit ásamt
eiginkonu sinni Önnu Guðrúnu
Torfadóttur grafíklistakonu.
Frá unglingsárum hefur Gunn-
ar ort, bæði háttbundin kvæði og
frjálsari í formi. Undanfarna áratugi
hefur hann einbeitt sér að marg-
breytileika íslenskra bragarhátta
og yrkir allt frá hinu hefðbunda
ferskeytluformi til dróttkvæða og
sléttubanda. Fjallar hann í ljóðum
sínum um náttúruna, pólitík og allt
til hálfkærings, eins og hann sjálf-
ur lýsir því. Sum ljóðanna í Höfuð-
staf eru frá árunum eftir hrun en
flest ort á síðustu þremur til fjór-
um árum. Bókina prýða þrettán
myndir af málverkum höfundar, en
Gunnar hefur haldið fjölda mynd-
listarsýninga hér á landi og erlend-
is. Ljóð hans, kvæði og lausavísur
hafa víða birst í safnritum, tímarit-
um og blöðum en Höfuðstafur er
hans fyrsta sjálfstæða bók. Það er
bókaútgáfan Sæmundur sem gefur
Höfuðstaf út.
Gunnar er nú kennari við Var-
márskóla í Mosfellsbæ þar sem
hann sinnir almennri kennslu
grunnskólabarna. Oft hefur hann
þó kennt valáfanga í bragfræði og
ljóðagerð og kveðst halda því að
nemendum sínum að tileinka sér
kveðskap eftir megni. Sjálfur er
hann virkur í starfi Kvæðamanna-
félagsins Iðunnar og Kvæðamanna-
félaginu Snorra í Reykholti þar sem
hann gegnir nú formennsku. Fé-
lagar í Snorra koma saman reglu-
lega yfir vetrartímann, kveða rímur,
miðla fróðleik, segja sögur úr sveit-
inni og spjalla. Félagið heldur til að
mynda árlega samkomu á Þorra sem
fer fram í útihúsum. „Við vorum
í fjósinu á Refsstöðum fyrsta árið
en höfum í tvö síðustu skiptin ver-
ið í fjárhúsunum hjá Dagbjarti og
Dísu í Hrísum. Sjálfur hef ég boð-
ið hænsnakofa okkar hjóna í Mela-
hverfinu undir þessar samkomur,
en því fróma boði hefur verið hafn-
að sökum plássleysis. nú erum við
hjónin hins vegar að byggja fjörutíu
fermetra stækkun við húsið okkar
þar sem við hyggjumst koma okk-
ur upp aðstöðu til listsköpunar og
aldrei er að vita nema við getum
hýst samkomu hjá Kvæðamanna-
félaginu Snorra þar þegar fram líða
stundir,“ segir kennarinn, listamað-
urinn og ljóðskáldið.
Að endingu er hér ljóð
eftir Gunnar:
Æviferil ærlegan
aldrei skaltu trega.
Ekkert sýnist of né van
allt fer mátulega.
mm
Í haust gaf Forlagið út bókina Ferð-
in á heimsenda - Leitin að vorinu,
eftir Sigrúnu Elíasdóttur á Ferju-
bakka í Borgarfirði. Um er að ræða
myndskreytta barnabók fyrir 8-12
ára lesendur, fantasía í skálduð-
um heimi. Sigmundur Breiðfjörð
glæðir dreka og forynjur lífi með
skemmtilegum myndum.
Í umfjöllun Katrínar Lilju Jóns-
dóttur í Lestrarklefanum segir að
bókin sé hreinræktuð furðusaga um
félagana Húgó og Alex frá norður-
heimi. „Eitt árið bólar ekkert á vor-
inu svo félagarnir eru fengnir til
þess að stefna í hættuför til þess að
leita að vorinu. Sigrún skapar heil-
an fjórskiptan heim og mjög líklega
fá lesendur að kynnast heiminum
frekar í væntanlegum framhalds-
bókum,“ skrifar Katrín.
Aðspurð segir Sigrún að hug-
myndin að bókinni hafi orðið til
fyrir nokkrum árum þegar hún var
að nema ritlist í Háskóla Íslands.
„Þá var ég í námskeiði hjá Krist-
ínu Helgu, mömmu Fíu Sólar, sem
hét Fjölskyldubókmenntir því við
vorum að einbeita okkur að því að
lesa og skrifa efni sem gæti höfðað
til allrar fjölskyldunnar. Þá byrjaði
ég að skrifa söguna um Húgó og
Alex og ég kláraði hana síðan sem
lokaverkefni í skólanum. Þaðan fór
hún svo til Forlagsins og er nú loks
komin á prent, þannig að já, hún er
búin að vera nokkur ár í vinnslu.“
Höfundur á sjálf tvo nútíma
drengi sem hafa skýrar hugmynd-
ir um hvað þeir vilja í bókum;
hraða atburðarás, húmor og nóg af
skrímslum. mm
Gunnar J. Straumland gefur út bókina Höfuðstaf
Gunnar J Straumland heldur hér á eintaki af bók sinni Höfuðstaf.
Leitin að vorinu eftir
Sigrúnu Elíasdóttur
Hallbera Fríður Jóhannesdóttir með bækurnar á ensku og íslensku.
Á ferð og flugi með ömmu
aftur fáanleg og nú á ensku líka