Læknablaðið - jan. 2020, Side 20
20 LÆKNAblaðið 2020/106
Y F I R L I T
hvort meðganga sé skynsamleg vegna aðstæðna. Það getur ver-
ið alger frábending fyrir meðgöngu ef heilsa móðurinnar versnar
eða ef líf hennar er í hættu vegna meðgöngunnar. Sem dæmi má
nefna konu með Marfans-heilkenni með víkkun á ósæðarrót og
hættu á ósæðarflysjun sem getur leitt til dauða.3
Mæðradauði er í dag fjarlæg hugsun enda er tíðnin nú aðeins
brot af því sem áður var, eða um 4-5/100.000 fæðingar.4,5 Til sam-
anburðar var tíðni mæðradauða á Íslandi við upphaf 20. aldar um
400/100.000 fæðingar.6 Það jafngildir því að um 16 konur létust ár-
lega í tengslum við meðgöngu eða fæðingu en í dag deyr að með-
altali ein kona á 10 ára fresti vegna þess.
Setji meðgangan heilsu móður í hættu hefur það um leið áhrif á
heilsu fósturs þar sem vöxtur þess og heilsa er háð heilsu móður-
innar. Mikilvægt er að missa aldrei sjónar á því að heilsa móður-
innar er í forgrunni, að tryggja þarf heilsu hennar áður en hugað
er að heilsu fósturs.
I. SKIMANIR Á MEÐGÖNGU
Skimun fyrir sýkingum. Grunnhugsunin er að skima fyrir sýk-
ingum þar sem meðferð bætir horfur, annaðhvort móður eða
barns, eða beggja. Í leiðbeiningum frá Embætti landlæknis er mælt
með að skimað sé fyrir einkennalausri sýklamigu, lifrarbólgu B,
HIV, rauðum hundum og sárasótt og ef slíkar sýkingar eru til stað-
ar má setja inn meðferð sem bætir hag móður og fósturs.7 Löng
hefð er fyrir því að skima fyrir mótefnum rauðra hunda hér á landi
og þekkt er að veiran er fósturskemmandi, en bólusetning hófst
árið 1977 fyrir konur á barneignaaldri og 1989 fyrir alla.8 Mælt
er með skimun samkvæmt áhættuþáttum fyrir lifrarbólgu C líkt
og víðar,9 en sums staðar er mælt með skimun fyrir alla.10 Ekki
er mælt með almennri skimun fyrir klamydíu en hins vegar er
mælt með að skima ef áhættuþættir eða einkenni eru til staðar.7
Skimun fyrir cytomegalo-veiru og bogfrymilsýkingum þykja ekki
skila ávinningi fyrir móður eða barn.7 Skimun fyrir streptókokk-
um af hjúpgerð B (GBS) hefur lengi verið til umræðu hér á landi
og verið umdeild. Í Bretlandi leggjast samtök fæðingalækna gegn
slíkri skimun11 en samtök bandarískra fæðingalækna mæla með
skimun allra við 35.-37. viku og síðan meðferð í fæðingu hjá þeim
konum sem fá jákvæða ræktun.12 Leiðbeiningar landlæknis mæla
ekki með almennri skimun fyrir GBS á meðgöngu en verklagsregl-
ur Landspítala fela í sér meðhöndlun við GBS ef ræktun frá móður
hefur verið jákvæð á meðgöngunni í þvagi eða frá leggöngum, ef
um fyrirburafæðingu er að ræða og ef móðir fær hita í fæðingu.13
Skimun fyrir meðfæddri missmíð og litningafrávikum.
Grunnhugsunin er að skima fyrir litningafrávikum og meðfæddri
missmíð fóstra og veita verðandi foreldrum ráðgjöf þar að lútandi.
Stundum er hægt að setja inn meðferð á fósturskeiði til að bæta
horfur, í öðrum tilfellum að undirbúa fæðingu og veita meðferð á
Mynd 1. Áhrif undirliggjandi sjúkdóms móður á meðgöngu. Mynd 2. Áhrif meðgöngu á undirliggjandi sjúkdóm móður. Myndir/Getty Images.
Hefur sjúkdómur móður áhrif á fósturvöxt og þroska, tíðni
meðfæddra missmíða eða hvort fæðing verður fyrir fulla
meðgöngu?
Dæmi: insúlínháð sykursýki móður.
Ef sykurstjórnun er slæm á fyrsta þriðjungi meðgöngu aukast
líkur á fósturláti og meðfæddri missmíð fósturs. Einnig eru meiri
líkur á fyrirburafæðingu, að barnið verði of stórt og að legvatn
verði of mikið. Fylgikvillar við fæðingu eru algengari, til dæmis
axlarklemma og afleiðingar hennar. Loks eru auknar líkur á
fæðingarinngripum vegna ofvaxtar fósturs og skaða tengdum því.
Vandamál nýburans geta verið margvísleg og eru vel þekkt en
hástig þess er sykursýkiheilkenni (diabetic fetopathy).
Getur meðganga valdið versnun á sjúkdómsástandi móður? Eru
áhrif meðgöngu tímabundin meðan á meðgöngu stendur eða til
frambúðar?
Dæmi: meðfæddur hjartagalli móður.
Á meðgöngu minnkar mótstaða í útlimaæðum sem lækkar
blóðþrýsting. Blóðmagn eykst um 30-50% og til að mæta því
verður aukning á útfalli hjartans og hjartsláttartíðni móður eykst.
Það fer eftir undirliggjandi vanda hvort hjarta móðurinnar getur
svarað þessu álagi. Ef til dæmis er um að ræða þrengingu í
míturloku getur álag vegna meðgöngu leitt til hjartabilunar og/eða
hjartsláttartruflana.