Læknablaðið - Jan 2020, Page 29
LÆKNAblaðið 2020/106 29
F R É T T A S Í Ð A N
Læknaráð ályktar um
óhóflegt álag á læknum
Stjórn Læknaráðs lýsti um miðjan desember
yfir áhyggjum af starfsskilyrðum og vinnu-
álagi á læknum Landspítala. „Setja þarf upp
viðmið fyrir hámarksfjölda sjúklinga á hvern
lækni sem gæðavísi fyrir þjónustu,“ segir í
ályktuninni.
„Fari hlutfallið yfir ákveðin mörk skal grípa
til viðeigandi ráðstafana.“ Læknaráð vísaði
í margumrædda skýrslu McKinsey frá árinu
2016 sem sýnir að læknar á Landspítala sinni
fleiri heimsóknum og innlögnum á hvert
stöðugildi en starfssystkyni við erlend saman-
burðarsjúkrahús geri.
Krabbameins-
áætlunin til
2020 úrelt
Félag krabbameinslækna bendir á að
Krabbameinsfélag Íslands spái um 25-30%
fjölgun nýrra krabbameinstilvika til viðbót-
ar við það sem nú greinist til ársins 2030.
Augljóst sé því að uppfæra þurfi áætlanir
um mönnun sem unnin hafi verið á árunum
2013-2016 og stuðst er við í krabbameins-
áætlun til ársins 2020. Sú vinna sé nú þegar
úrelt.
„[V]elta má upp þeirri spurningu hvort
aðrir þættir í krabbameinsáætlun séu einnig
orðnir úreltir og hvenær þörf sé endur-
skoðunar?“ Þetta segir í ályktun sem sam-
þykkt var á aðalfundi Félags krabbameins-
lækna í byrjun desember.
Félagið bendir á að krabbameinslæknar
séu of fáir miðað við áætlunina og að í áætl-
uninni sé talað um að nægjanlegt fjármagn
fylgi framkvæmd áætlunarinnar. „Orð eru
til alls fyrst en vonandi mun þessum orðum
verða fylgt eftir með athöfnum öðrum en
sparnaði eins og virðist vera raunin.“
Fimm verktakar vilja
byggja nýja spítalann
Fimm sækjast eftir því að byggja nýja meðferðarkjarnann við Hringbraut fyrir
Landspítala: Eykt, Íslenskir aðalverktakar, Ístak, Rizzani De Eccher Island og ÞG
verktakar. Niðurstöður eftir yfirferð forvalsgagna verða kynntar 6. janúar.
Þungamiðja starfsemi spítalans kemur til með að vera í nýja meðferðarkjarnanum
og er stærsta byggingin 70.000 fermetrar að stærð.
Ebba Margrét Magnúsdóttir er formaður
Læknaráðs. Mynd Védís.