Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2020, Blaðsíða 35

Læknablaðið - jan. 2020, Blaðsíða 35
LÆKNAblaðið 2020/106 35 yfir staðfest krabbameinsvaldandi efni fyrr en árið 2011.“ Hálftómt eða yfirfullt glas Hún bendir myndrænt á hvernig líkaminn virki. „Ég lýsi þessu sem eiturefnaglasi innra með fólki. Við erum alltaf að verða fyrir pínu eituráhrifum í senn og taka inn hormónatruflandi efni. Alla ævina er þetta glas að fyllast og tæmast.“ Líkaminn hreinsi sig og afeitri eftir mætti. „En ef alltaf er bætt á glasið og engar ákvarðanir teknar um að sneiða hjá því sem getur skaðað líkamann, yfirfyllist glasið og það flæðir upp úr,“ segir hún. „Þá getur sjúkdómur tekið sér bólfestu í líkamanum.“ Afeitrunarlíffæri þurfi sinn tíma til að starfa, eins og lifrin og nýrun. „Ég er að segja þetta svo fólk geti tekið málin í sínar hendur og aukið líkurnar á að það haldi heilsu lengur. Mér finnst það ein mikilvægustu skilaboð sem fólk getur fengið frá okkur læknum,“ segir hún. Danskir læknar fyrirmyndir Una nefnir að í Danmörku stígi læknar fram og vari við hættunni í umhverfinu og nefnir Philippe Grandjean, prófessor í umhverfislæknisfræði í Harvard og Syd- dansk Universitet. „Hann segir: Ekki borða ólífrænan mat, sérstaklega ekki eigirðu von á barni því í móðurkviði eru þau óvarin. Ýmislegt getur því haft áhrif á taugakerfi þeirra,“ hefur Una eftir honum. Hún nefnir einnig nýlega rannsókn á 948 mæðrum frá því þær voru þungaðar til 18 ára aldurs barn- anna þeirra sem leidd var af Syddansk Universitet og Grandjean er meðhöfundur að. „Hún sýnir fylgni milli skordýraeiturs í blóði mæðranna og þess að börn þeirra væru með ADHD. Rannsóknin sýnir marktæka fylgni og líkurnar á að börn- in hefðu ADHD jukust næstum því um helming hjá þeim mæðrum sem höfðu mest skordýraeitur í blóðinu miðað við þær sem höfðu minnst,“ segir Una. „Þetta segir manni að fáfræði er alsæla og langflestir lifa við hana. Mér finnst það sárt. Mig langar að stoppa fólk á kassa í búðum og benda því á hvað það er að kaupa.“ Ákveðin litarefni í nammi valdi til að mynda einbeitingarörðugleikum hjá börnum. „Það er skylda að merkja nammi með innihaldslýsingu en það er auðvitað ekki gert þegar það er í nammibarnum,“ segir Una. „Börn eru því að innbyrða efni sem hafa neikvæð áhrif á taugakerfi þeirra.“ En til hvaða ráða grípur hún sjálf nú þegar hún ert ólétt? „Ég nota ekki ilmvatn. Ég hætti að nota ilmkerti og vellyktandi heima fyrir. Ég hef hent öllum kremum sem ekki eru svansvottuð. Ég nýti öpp sem hjálpa mér að fylgjast með eiturmagni í snyrtivörum, meðal annars eitt sem heit- ir Think Dirty,“ segir hún. „Ég hef áttað mig á að ég hef eytt hundruðum þúsunda króna í snyrtivörur sem eru stútfull af ilmefnum og skaða mig því þau hafa hormónatruflandi áhrif. Ég kaupi eins mikið lífrænt og ég get, bæði matvæli og snyrtivörur, og er meðvituð um umhverfið,“ segir hún. Mikilvægt sé að opna umræðuna í mæðravernd hér á landi. Öfgafullt eða alvöru áhyggjur? En finnst læknum hún ekki öfgafull? „Ég hef rætt við nokkra lækna sem hafa komið á fyrirlestra mína. Þeir eru áhugasamir. Þeir sem hafa talað við mig vita að ég predika ekki persónulega skoðun mína heldur byggi orð mín á rannsóknum. Ég er ekki að selja neina vöru og hef enga beina hagsmuni heldur vil aðeins fólki vel og vara það við,“ segir hún. „Ég hef óbilandi trú á þessu og áhuga. Þetta er mér hjart- ans mál.“ Matarhugsun hefur brenglast í fólki „Næringarfræði var ekki svona flókin í gamla daga. Þá var spurt um prótein, fitu og kolvetni. Nú er staðan sú að búið er að framleiða matarstykki sem eiga að koma í stað máltíðar og fólk hefur misst gagnrýna hugsun,“ segir Una Emilsdóttir læknir og nefnir mikilvægi þess að læknar kynni sér fræðin og hversu mjög þau hafi breyst. „Menntskælingur hugsar ekki: voðalega er skrítið að ég geti skipt út máltíð fyrir orkustykki sem er eins og nammi. Hann hugsar bara hvort kökudeigsbragðið eða súkkulaði sé betra,“ segir hún. „Ungt fólk hefur alist upp við að hægt sé að fá allan fjandann úti í búð. Vítamín í gúmmíbangsaformi, samanþjöppuð stykki í stað máltíðar með öllu því bragði sem hugurinn girnist. Þau drekka fjólubláa og bláa orkudrykki, sem líta út fyrir að vera baneitraðir og líkjast engu í náttúrunni,“ segir Una. Helsta gagnrýna hugsunin sem fólk hafi gagnvart mataræði sé hvort það sé fitandi. „Fólk hugsar um kaloríur. Það hugsar ekki; ætli séu litarefni í þessu sem eru mér skaðleg? Ætli séu hormónatruflandi eða krabbameinsvaldandi efni í vörunni? Fáar konur hugsa um skaðleg efni í snyrtivörum fyrr en eitthvað kemur upp á. Oft er það þegar fólk lendir í áfalli, fær sjúkdómsgreiningu eða upplifir veikindi ættingja.“ Þá fer fólk í naflaskoðun. Það er mikilvægt að efla gagnrýna hugsun fólks um neyslu sína og mataræði. Hlustið á viðtalið á hlaðvarpi Læknablaðsins

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.