Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - jan. 2020, Side 41

Læknablaðið - jan. 2020, Side 41
LÆKNAblaðið 2020/106 41 „Svo skipti erfðabreytileiki sjúklinga máli. Í sama faraldr- inum gat einn fengið önnur einkenni en annar,“ segir hann. „Það er þekktur breytileiki í sumum lifrarensímum og flutn- ingsprótínum sem getur skýrt það.“ Sukku ef saklausar Hann segir að vegna vanþekkingarinnar og ólíkra sjúkdóms- einkenna hafi fólk leitað skýringa og fundið í nornum og göldrum þeirra. Ein af aðferðunum til að komast að því hver ætti að hafa verið að verki hafi verið að setja þvag sjúklingsins í köku og láta sjúklinginn snæða. Hann hafi þá átt að geta gef- ið upp hver væri sökudólgurinn. „Oftast voru konur nefndar. Þær voru pyntaðar og fengn- ar til að játa. Ein af aðferðunum til að reyna hvort þær væru sekar eða saklausar var að binda þær á höndum og fótum, henda í vatn. Ef þær sukku og drukknuðu voru þær saklausar. Ef þær flutu voru þær nornir og brenndar á báli. Dauðadómur hvort sem var.“ Hann segir að menn hafi skoðað hvort galdraofsóknirnar tengist korndrjólum og ljóst sé að það geri þær að einhverju leyti. Metsölubók í 100 ár Magnús talaði um bókina Nornahamarinn. Höfundar voru tveir þýskir guðfræðingar. Bókin var gefin út 1486 og var handbók nornaofsókna og gaf leiðbeiningar um hvernig mætti finna, pynda og lífláta nornir. Bókin var mest prentaða og selda bók- in í Evrópu í heila öld, fyrir utan Biblíuna. „Færa má rök fyrir því að ergótismi og Nornahamarinn hafi á tímabili ýtt mjög undir nornaofsóknir, þótt fleira komi til,“ segir hann. Galdraofsóknir eiga sér langa sögu í Evrópu. Þær blómstruðu á árunum 1500-1700 en mun síðar hér á landi og beindust þá mest gegn körlum sem ristu galdrastafi. Talið er að 50-100.000 nornir og galdramenn hafi verið tekin af lífi á þessu tímabili. Magnús segir að hefði fólk áttað sig á upprunanum og hætt að borða kornið hefði eitrunin rjátlast af þeim á nokkrum dögum. „En þeir vissu það ekki og fólk hélt áfram að borða matinn,“ segir hann. Hann segir í dag strangt eftirlit með korndrjólum, sérstak- lega þar sem rúgur sé ræktaður. Strax á 18. öld hafi menn fundið leiðir til að losa sveppinn frá korni fyrir notkun. Magnús segir korndrjólana hafa nýst í lækningaskyni. Um 1800 hafi verið farið að kanna hvort nota mætti þá til lækninga. Ergótamín sé æðaherpandi og notað við mígreni, metýsergíð varni mígreni og metýlergómetrin sé legherpandi og hafi verið notað í fæðingu. Dó Noregskonungur af korndrjólaeitrun? Magnús Jóhannsson, prófessor emeritus, segir að í Heimskr- inglu Snorra Sturlusonar sé Magnús II Haraldsson Nor- egskonungur nefndur. Hann hafi ekki verið konungur nema í þrjú ár. „Þá dó hann. Ég held hann hafi dáið 24 ára gamall. Í Heimskringlu stendur að hann hafi dáið úr reformasótt og því hefur verið haldið fram að reformasótt sé ergótismi.“ Trérista frá 1517 af heilögum Anton sem var portúgalskur dýrlingur kenndur við Padúa. Hann var vinsæll verndari og eitt af því góssi sem hann hélt verndarhendi yfir var tapað/fundið, hann var líka verndari fátækra, fiskimanna og ferðamanna. Hans banamein var ergót-eitrun. Annað heiti veikinnar er Saint Anthony's Fire. Sjúklingurinn fékk ofskynjanir, svarta útlimi og rann á þá æði. Á miðöldum voru þessi teikn talin af trúarlegum toga og dæmi um illa anda, en var raunar sýking sem átti sér mun jarðneskari og nærtækari skýringar. Þetta fyrirbæri var kallað ignis sacer (heilagur eldur). Sérstakir spítalar voru reistir til að glíma við veikina og þar unnu munkar af reglu heilags Anthony frá Egyptalandi. Veikin var síðan kennd við hann, Saint Anthony's Fire. Mynd birt með leyfi Getty Images.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.