Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - jan. 2020, Blaðsíða 50

Læknablaðið - jan. 2020, Blaðsíða 50
50 LÆKNAblaðið 2020/106 L I P R I R P E N N A R Björn Hjálmarsson barna- og unglingalæknir á BUGL bjornhj@landspitali.is Hin ríka þagnar- og trúnaðarskylda lækn- is stafar af því að hann starfar með skjól- stæðingum innan ramma friðhelgi þeirra einkalífs. En hvaða sálarstarf skyldi vera innrammað af henni? Það er mannhelgin. Þessi tvö hugtök og hugsjónir virðast öðr- um fremur gefa mönnum lagaleg, félags- leg og siðferðileg réttindi umfram það sem dýrin njóta. Um er að ræða sjálf kjarna- hugtök siðvæðingar og andlegrar tilveru mannsins. Starfsemi líkama og huga er bundin af náttúrulögmálum en sálin lýtur andlegum frelsislögmálum. Löggjafinn hefur skilgreint friðhelgi í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sbr. greinar 71-76. Mannhelgi er ekki skilgreind í stjórnarskrá þótt hugtak- ið sé notað í lögum hér á landi. Mannhelgi er innsti og helgasti kjarni mannlegs lífs. Friðhelgi einkalífs er landhelgi eða varnarmúr um mannhelgina. Í lögum um sjúkraskrár nr. 55/2009 er mannhelgi tengd sjálfsákvörðunarrétti sjúklinga. Sjálfræði er ein af höfuðsiðareglum heilbrigðis- og líf-siðfræðinnar. Þaðan sprettur þörfin fyrir upplýst samþykki skjólstæðinga fyrir allri meðferð. Friðhelgi er félagslegur réttur manns til þess að gera það sem hugur hans stendur til, án þess að vera stöðvaður. Friðhelgi verndar eignarrétt, tjáningarfrelsi, félaga- frelsi, atvinnufrelsi og athafnafrelsi frá afskiptum samfélagsins. Friðhelgi felur í sér rétt sjúklings til þess að hafna meðferð og halda upplýsingum leyndum. Friðhelgi vísar til neikvæðs frelsis Isaiah Berlin, frelsi frá afskiptum ( freedom from interference). Mannhelgi er réttur til persónulegs öryggis og hýsir sjálfsmynd okkar, kynvit- und, kynáttun, hugarfar, hjartalag, trúarlíf og annað andlegt líf mannsins. Mannhelgi varðveitir sjálfsákvörðunarrétt einstak- lings, það er persónubundinn rétt manns til þess að vera og verða það sem hann sjálfur kýs sér. Mannhelgi hýsir alla virka merkingarleit mannsins. Hún samrým- ist jákvæðu frelsi Isaiah Berlin um rétt til sjálfstæðrar persónumótunar ( freedom as self-mastery, which asks not what we are free from, but what we are free to do). Mannhelgi eru okkar helgustu vé sem enginn mann- legur máttur má snerta, nema líf liggi við eða vel skilgreind samfélagsleg ógn. Mannhelgin býr í sálinni sem skáldin herma upp á hjartað. Valdimar Briem kvað: „Slá þú hjartans hörpustrengi“. Hvað skyldu þessir strengir heita? Hverjir eru hornsteinar mannhelgi? Það eru þrjú andleg frelsislögmál sem kölluð eru tign, göfgi og reisn. Tign er lögmál ástarinnar. Það snýst um hæfileika, vilja og getu til þess að elska og vera elskaður. Hæfileik- inn að verða ástfanginn er yfirnáttúrleg náðargáfa. Ástarþráin er trúlega okkar sterkasta þrá. Tign er uppistöðulón djúpr- ar gleði og hamingju. Hin sanna vinátta Aristótelesar er á þessum sálarstreng sem og þakklæti, hollusta, heilindi, sjálfsálit og sjálfstraust. Þeir læknar sem leggja alúð í öll sín verk geisla af tign. Þeir hafa hugfastan boðskap Hippókratesar: Primum non nocere. Göfgi er lögmál náðarinnar. Á þeim sálarstreng er hæfileikinn til þess að skynja og skapa fegurð, að iðrast og fyrir- gefa. Göfgun er gróðurvin frelsisþrár, feg- urðarþrár og friðarþrár. Æðsta þroskastig göfgi er að verða hjartahreinn og vaxa inn í andlega nægtavitund. Göfugir læknar finna sig verðuga þeirrar ábyrgðar að hjálpa öðrum. Reisn er lögmál dáðarinnar. Afreksþráin er móðir hennar. Dugnaður, þrautseigja, hetjuskapur, stolt, sjálfsvirðing og sakleysi eru bjartar nótur á þessum sálarstreng. Æðsta þroskastig reisnar er að verða fátækur í anda og höndla hina tæru vitund (sattva). Það er mikil reisn yfir þeim læknum sem mesta fagþekkingu og færni hafa. Læknir verður fyrst að upplifa og skilja lögmál eigin friðhelgi og mannhelgi til þess að geta upplifað þessar hugsjónir í skjól- stæðingum sínum. Hann þarf að læra að hlusta með hjartanu og geta numið hin veiku skilningsboð sálar sinnar. Það er óhugsandi án þess að róa öldurót hugans. Virkasta leiðin til þess er að temja sér hinar forngrísku höfuðdyggðir: hófstill- ingu, hugrekki, réttvísi og visku auk þess sem lögmál kærleikans má ekki vanta. Hugleiðslu ættu allir læknar að læra í sínu grunnnámi. Þroskaðir varnarhættir sjálfsins forða okkur frá því að taka eigin vanlíðan eða veikleika út á skjólstæðing- um okkar. Sú köllun að verða læknir veitir djúpa gleði þegar henni er vel sinnt. Kjarnamarkmið allra lista er að skapa fegurð. Til þess að læra læknislistina þarf læknir að temja sér að beita ástríki og kær- leika, virkri fegurðarþrá auk þess að afla sér traustrar faglegrar þekkingar og færni. Af þeirri samsuðu sprettur sú fegurð sem við flokkum undir læknislist. Hún er óhugsandi án þekkingar og skilnings læknis á lögmálum mannhelgi og djúpri virðingu fyrir friðhelgi einkalífs. Hin sanna læknislist breytir bölvun í blessun og er sögð æðsta list lífsins (Toyohiko Kagawa). Læknislist

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.