Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.2006, Qupperneq 2

Hugur og hönd - 01.06.2006, Qupperneq 2
Menningarerfðir - góð sumargjöf Nú er langt liðið á 93. starfsár Heimilisiðn- aðarfélags Islands. Starfið hefur verið hefð- bundið og einkennst af grósku og krafti. Allar fastanefndir félagsins hafa starfað af miklum dugnaði og nefna má nefnd sem starfar að samstarfi norrænu félaganna en það starf hefur verið undir stjórn íslenska félagsins síðastliðin þrjú ár og verður svo fram til ársins 2007. Námskeið Heimilisiðn- aðarskólans eru vel sótt enda er áhugi á þjóðlegu handverki að aukast. Þessi aukni áhugi á þjóðlegu handverki var staðfestur á fundi sem haldinn var á Laufásveginum seint í janúar. Þangað höfðu verið boðaðir hugsanlegir samstarfs- aðilar um norræna heimilisiðnaðarþingið sem haldið verður á íslandi á næsta ári. Þarna voru fulltrúar frá verkmenntaskólum, iðnskólum og Listaháskólanum og allir greindu frá auknum áhuga ungs fólks á handverki og því að leita þjóðlegra fyrirmynda. Ahuginn á þjóðlegum hefðum er ekki aðeins bundirtn við handverkið. Vinsælar hljómsveitir tileinka sér rímnalög og aðra séríslenska tónlist og nýlega var haldinn fjölmennur stofnfundur félagsins Matur - saga - menning, en það hyggst setja á laggirnar miðstöð íslenskra matarhefða og fornrar matargerðar. Áhugi á þjóðlegri menningu er ekki bundinn Islandi. Um allan heim eru þjóðir að vakna, eða eru löngu vaknaðar, til vitundar um mikilvægi þess að viðhalda þjóðlegri menn- ingu sinni. Fjölþjóðleg menning flæðir um heiminn, stórar verslunarkeðjur og fyrirtæki selja vörur sínar og þjónustu um allan heim. Nánast hvar sem er í veröldinni er hægt að kaupa svipaðar vörur, borða sams konar mat, hlusta á sömu tónlistina. Um leið og þjóðir tileinka sér það sem er gott úr menningu annarra þjóða er mikilvægt að næra eigin menn- ingarrætur, styrkja það sem er sérþjóðlegt til að viðhalda fjölbreytileika og litríki mannlífs, hefða, siða, verklags og lista. Ef þjóð hlúir ekki að eigin menningu gerir það enginn annar. Þessu eru þjóðarleiðtogar að átta sig á, sem betur fer. I sumar fékk stjórn Heimilisiðnaðarfélagsins góða send- ingu frá menntamálaráðuneytinu, alþjóðasamning sem Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) hafði samþykkt í París 17. október 2003. Til tals hafði komið að íslendingar gerðust aðilar að samningnum og leitaði ráðuneytið álits Heimilisiðnarfélagsins þar um. Þetta er Samningur um varðveislu menningarerfða (Convention for the Safeguarding of the Intangible Cultural Heritage) en orðið menningarerfð er skilgreint í samningnum sem hefðir, siðir, venjur, þekking, verkkunnátta o. fl. sem flytjast frá kynslóð til kynslóðar og eru í stöðugri endursköpun. Þær þjóðir sem staðfesta samninginn skulu gera „ráðstafanir sem er ætlað að tryggja að menningarerfðir lifi áfram, m.a. með því að greina þær, skrá, rannsaka, varðveita, vernda, kynna, efla og miðla þeim, einkum með formlegri og óformlegri fræðslu, sem og með því að endurvekja ýmsa þætti þeirra." Ekki er að orðlengja það að stjórn HFÍ leist ákaflega vel á samning- inn og skoraði á menntamálaráðuneytið að staðfesta hann fyrir Islands hönd. Alþjóðasamningurinn um varðveislu menningarerfða gengur ekki í gildi fyrr en þremur mán- uðum eftir að 30 þjóðir hafa staðfest hann. Hægt er að fylgjast með framgangi samningsins á heimasíðu Menningar- málastofnunar Sameinu þjóðanna (www.unesco.org). Þar má sjá að íslend- ingar staðfestu samninginn 23. nóvem- ber 2005 og voru 27. ríkið sem gerði það. Þann 20. janúar voru ríkin svo orðin 30. Það þýðir að samningurinn gengur í gildi 20. apríl, eða á sumardaginn fyrsta, sem er ákaflega skemmtileg tilviljun og góð sumargjöf. Sumardagurinn fyrsti hefur átt nokkuð í vök að verjast og kaupahéðnar og atvinnurekendur hafa sumir hverjir viljað leggja hann af sem frídag. Að halda sumardaginn fyrsta há- tíðlegan er séríslensk hefð sem auðvitað á að varðveita sem slíka í fullu samræmi við samninginn sem Islendingar hafa staðfest og gengur í gildi þennan dag vorið 2006. Heimilisiðnaðarfélagið hefur frá upphafi staðið vörð um ákveðna þætti íslenskra menningarerfða, þ.e. hluta af hefð- bundinni verkkunnáttu og ýmiss konar þekkingu og tungu- taki henni tengdri. Önnur félög hafa sinnt öðrum þáttum, Kvæðamannafélagið Iðunn, Þjóðdansafélag Reykjavíkur og Glímusamband íslands, svo að einhver séu nefnd, og fjöl- margir einstaklingar úti um allt land hafa lagt hönd á plóg á ýmsum fjölbreyttum sviðum. Kannski ættu öll þessi félög og allt þetta fólk að stofna sameiginlegan samstarfsvettvang og styðja hvert annað í viðleitninni til að varðveita íslenska al- þýðumenningu. Fyrir tveimur árum tók stjórn HFÍ þátt í hugmyndasam- keppni Landsbanka íslands um miðbæ Reykjavíkur og fékk viðurkenningu fyrir þá hugmynd að komið yrði á laggirnar setri um lifandi íslenska menningu. Nú sýnist tilefni til þess að áhugafélög um verndun íslenskrar alþýðumenningar, handverksfólk, matargerðarfólk, glímukóngar og -drottning- ar, kvæðamenn, þjóðdansarar o.fl., taki sig saman og vinni með stjórnvöldum að framgangi svipaðrar tillögu. Stundum hefur verið bent á að myndarlegt og þjóðlegt hús við Skóla- vörðustíg væri upplagður staður þegar núverandi starfsemi verður lögð þar niður og flutt í nýtt fangelsi. Þar mætti svíða svið á hlóðum úti í garði og sjóða þau og bera fram á veit- ingastað annars staðar í húsinu ásamt ýmsum öðrum þjóð- legum réttum. Uti við væri líka eldsmiðja og annars staðar opin verkstæði handverksfólks þar sem væri smíðað og tálg- að, kembt og spunnið, ofið og prjónað, saumað og baldýrað og þannig mætti lengi telja. Á hátíðum og tyllidögum væru kveðnar rímur og dansaðir vikivakar. Þama væri opið hús fyrir ferðamenn og aðra og haldin námskeið í þjóðlegum hefðum og vinnubrögðum. Og þar væru auðvitað höfuð- stöðvar Félags áhugafólks um varðveislu íslenskrar alþýðu- menningar! Gleðilegt sumar. Sigrún Helgadóttir Formaður Heimilisiðnaðarfélags íslands 2 HUGUR 0G HÖND 2006

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.