Hugur og hönd - 01.06.2006, Page 4
Gler og þræðir
Verk systranna Sigrúnar og Ólafar Einarsdætra
Auður Gestsdóttir
Gler Þræðir nefndist sýning sem
haldin var í Bókasafni Mosfellsbæjar
í ágúst síðastliðnum. Nafnið er
þannig tilkomið að á sýningunni
voru verk unnin úr gleri og þráðum,
þ.e. glerlistaverk eftir Sigrúnu Ein-
arsdóttur og eiginmann hennar
Soren Larsen, sem nú er látinn, og
textílverk eftir Olöfu Einarsdóttur,
systur Sigrúnar. Það sem okkur sem
sáum sýninguna þótti afar nýstár-
legt og alveg sérstaklega heillandi,
voru verk sem voru unnin af systr-
unum sameiginlega og nokkur af
þeim öllum þremur, þar sem gleri
og þráðum var teflt saman. Þau
voru unnin úr steyptu og blásnu
gleri og ullarþráðum, silfurþráðum,
hrosshári og sísal.
Ferðinni var því heitið einn fagr-
an haustdag til Bergvíkur á Kjalar-
nesi til fundar við þær systur til þess
að gefa lesendum blaðsins kost á að
kynnast þeim og verkum þeirra.
Raunar hefur verið fjallað um þær
báðar í eldri árgöngum af Hug og
hönd, um Sigrúnu (og Soren) 1988 í
grein eftir Rúnu Gísladóttur undir
heitinu Glerfín listsköpun og Ólöfu
1989 eftir sama höfund undir heit-
inu Nýjabrum.
Uppruni og menntun
Það er engin tilviljun að systurnar
leggja fyrir sig listhandverk. Þær
ólust upp í hópi sex systkina í Kópa-
vogi, þar sem öll systkinin voru
síteiknandi. Systurnar voru fimm og
einn bróðir, Ólöf yngst, fædd 1959,
sjö árum yngri en Sigrún. í fjölskyld-
unni var mikill áhugi á hvers konar
handverki og listum. Faðirinn sá til
þess að börnin hefðu ætíð nægan
pappír og liti. Flann hét Einar Júlíus-
Leysingar eftir Ólöju og Sigrúnu. Gler, hör, hrosshár og sísal 2004.
son, ættaður úr Hafnarfirði, en alinn
upp á Snæfellsnesi og í Herdísarvík,
var húsasmiður að mennt en starfaði
einnig sem arkitekt eftir að hafa sótt
námskeið í Iðnskólanum í húsa-
teiknun. A eftirstríðsárunum var
mikið byggt hér á landi og skortur á
lærðum arkitektum svo að boðið var
upp á slík námskeið fyrir húsasmiði.
Mörg hús í Kópavogi eru teiknuð af
Einari, einkum í Hvömmunum og á
Alfhólsvegi. Móðir systranna, Ólafía
Jóhannesdóttir, sem var ættuð úr
Hrútafirði, fékkst töluvert við
handavinnu þó að hún ynni úti, t.d.
prjónaði hún mikið en fór aldrei eftir
4 HUGUROG HÖND 2006