Hugur og hönd - 01.06.2006, Page 6
Gler í Bergvík
Árið 1980 héldu Sigrún og Soren til
Islands. Þau fóru strax að leita að
hentugu húsnæði fyrir glerverk-
stæði en ekki blés byrlega fyrir þeim
í upphafi. Soren vann fyrst í al-
mennri byggingavinnu en varð um-
sjónarkennari við keramikdeild
Myndlista- og handíðaskólans 1980-
84 og Sigrún vann á auglýsingastofu
til að byrja með. Tækifærið kom svo
1981 þegar Atvinnumálanefnd Kjal-
arness bauð þeim hænsnahús til af-
nota sem stóð í Bergvík en þegar
þau fóru að skoða það sáu þau fjár-
hús þar rétt hjá sem hafði staðið
lengi ónotað. Soren sá strax að það
myndi henta þeim betur. Þau tóku
það á leigu og byrjuðu á að moka út
úr húsinu, sem var ekkert smáræðis-
verk. Þau innréttuðu húsið sjálf,
byggðu ofn og settu upp olíubrenn-
ara. Þarna kom sér vel að Soren var
lærður múrari og kunni vel til
verka. í júlí 1982 var fyrsti hluturinn
blásinn og Gler í Bergvík varð til,
sem var fyrsta verkstæðið á Islandi
þar sem framleiddir voru nytjahlutir
og listmunir úr blásnu gleri. Þannig
urðu Sigrún og Soren brautryðjend-
ur í þessari tegund glerlistar hér á
landi og enn þann dag í dag er þetta
eina verkstæðið sinnar tegundar hér.
I fyrstu vann Sigrún eingöngu við
glerblásturinn en síðan fór hún að
kenna Soren að blása gler. Einnig
fékk hún kennara sinn frá Dan-
mörku til að koma hingað og kenna
honum. Árið 1986 byggðu þau upp
hlöðuna, þar sem nú er gallerí, og
árið 1990 reistu þau sér íbúðarhús í
Bergvík.
Nytjahlutir sem Sigrún og Soren
unnu úr gleri hlutu strax mjög góðar
undirtektir. Gerður Hjörleifsdóttir
verslunarstjóri Islensks heimilisiðn-
aðar við Hafnarstræti tók þeim fagn-
andi, sagðist reyndar hafa beðið eftir
þeim. Glermunir frá Bergvík hlutu
heiðurssess í versluninni og urðu
brátt gríðarlega vinsælir. Má heita
að hluti frá Bergvík sé að finna á
flestum íslenskum heimilum. Á
fimm ára afmæli Glers í Bergvík var
haldin myndarleg sýning á verkum
þeirra í íslenskum heimilisiðnaði og
aftur á 10 ára afmælinu árið 1992.
Ólöf fór að vinna hjá systur sinni
og mági til þess að hafa launavinnu
meðfram sinni eigin listsköpun árið
1984. Hún framleiðir t.d. fuglana -
hönnun Sigrúnar og Sorens - sem
hafa orðið svo vinsælir. Auk þess að
gera nytjahluti unnu Sigrún og
Soren að sjálfstæðri listsköpun hvort
um sig og tóku þátt í fjölda sýninga.
Þau fengu einnig styrk til að sækja
skólann í Haystack 1997, þar sem
Soren sótti námskeið í glerblæstri en
Sigrún kynnti sér málmsmíði. Þau
hafa hlotið margs konar viðurkenn-
ingar og eru verk þeirra á ýmsum
söfnum. Einnig skráðu þau nytja-
muni sem unnir voru í Bergvík
fyrstu árin og afhentu eintök þeirra
á Hönnunarsafn Islands.
Samvinna systranna
En hvernig kom það til að þær fóru
að vinna saman verk úr efnum sem
virðast algjörar andstæður, annars
vegar köldu og hörðu og hins vegar
mjúku og hlýju?
Systurnar telja að það hafi ein-
hvern veginn þróast af sjálfu sér að
þær fóru að vinna að sameiginleg-
um verkum. Þær eru mjög nánar og
góðar vinkonur og hafa alltaf rætt
mikið saman um hvað þær eru að
gera hverju sinni og hafa þannig
góða innsýn í verk hvor annarrar.
Ólöf leitaði oft í smiðju Sorens með
lausnir á upphengingu verka sinna
sem var henni mikil hjálp. Þarna
myndaðist farvegur fyrir samvinnu.
Þegar 20 ára afmælissýning Glers í
Bergvík í Listasafni ASÍ var í undir-
búningi buðu Sigrún og Soren Ólöfu
að taka þátt í henni með þeim og
sýna þar verk sín. Eftir nokkra um-
hugsun telja þær að Soren hafi
stungið upp á því að þau kompón-
eruðu öll þrjú saman sameiginlegt
verk. Það varð svo úr að þau þrjú
unnu saman tvö verk sem voru á
þeirri sýningu. Sýningin þótti takast
svo vel að þeim var boðið að sýna í
Glasmuseet Ebeltoft og Kunst-
industrimuseet í Kaupmannahöfn.
Einmitt þegar þessar sýningar voru í
undirbúningi gerðist sá hörmulegi
atburður 28. mars 2003 að Soren
fórst í bílslysi.
Græn púfa eftir Ólöfu Einarsdóttur. Verk unnið úr hör, hrosshári og sísal 2004.
6 HUGUROG HÖND 2006